23.03.1948
Efri deild: 87. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (1122)

196. mál, ríkisreikningurinn 1944

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég verð að segja það, að ég geri varla ráð fyrir, að forseti skeri niður umr. um þetta stóra mál hér. Deildin á ekki sök á því, að þetta mál er ekki komið fram fyrr. Þessu máli var útbýtt hér í gær, og það er sannarlega þess virði að ræða það nokkuð. Vil ég takmarka umræður mínar um þetta mál við þá liði eina. sem vísað er til aðgerða Alþ., eftir að fram hafa komið svör ríkisstj.

Ég vil nú spyrja hæstv. ráðh., hvernig hann lítur á það, þegar slíkar aths. koma við landsreikninginn. Lítur hann svo á, að það eigi þannig að láta þetta standa í sjálfum landsreikningnum eða gefa Alþ. tíma til að athuga og skera úr um þessi deiluatriði, eða er þess að vænta, að ráðh. láti athuga þessi atriði sérstaklega, eftir að búið er að samþykkja reikninginn? — Ég skal þá fyrst koma að sjöunda aths.

Ég hlustaði á hæstv. forsrh. í gær, sem varði miklu af ræðutíma sínum í að fordæma stjórnina á þessu fyrirtæki í tíð fyrrv. ríkisstj. Ég vildi spyrja hæstv. ríkisstj.: Hvernig er stjórnin á þessu fyrirtæki nú? Ég hrökk við við sumar þær upplýsingar, sem gefnar voru í gær um þetta mál, t.d. ef það er rétt, að enn sé verið að leigja birgðaskemmu fyrir 28 þús. kr. á ári, en svo skildist mér á hæstv. ráðh. Nú er vitanlegt, að síðan þessi ríkisstj. tók við hefur verið seld á leigu einhver allra bezta skemma, sem til er hér og Landssmiðjan átti, fyrir um 30 þús. kr. á ári. Mér er kunnugt um, að á sama tíma voru fluttar burt úr því húsi nýjar vélar, sem geymdar eru í hriplekum skúr með malargólfi og hljóta að eyðileggjast þar að óbreyttum aðstæðum. Við höfðum tækifæri til að skoða þær í vetur. Og ég veit ekki betur en sama ráðuneyti hafi leigt fyrir, að ég hygg, um 130 þús. kr. á ári margfalt minna húsnæði en landssmiðjan oft hefur leigt öðrum fyrir 30 þús. kr. Og ef í viðbót á að leigja hjall fyrir 28 þús. kr. til þess að halda uppi fyrirtækinu, finnst mér ekki um að villast, hver er sekastur um þessi mál.

Ég vildi því gjarnan vita, hvort ekki væri rétt að taka þessi mál til sérstakrar athugunar í sambandi við ríkisreikninginn, einkum þegar bent er á, að þessu verði vísað til aðgerða Alþ.

Viðvíkjandi 13. gr. vil ég líka benda hæstv. ráðh. á, að ég minntist á það í sambandi við fjárl., að rekstur m.s. Laxfoss væri til eftirbreytni fyrir Skipaútgerð ríkisins, því að á sama tíma sem þessi bátur græðir nær 100 þús. kr., tapar Skipaútgerðin hundruðum þúsunda á sams konar afgreiðslu. Væri því ástæða til að athuga, hvort ekki er hægt að koma betri skipan á rekstur þessarar ríkisstofnunar. Og ég veit ekki betur en að félagið, sem rekur m.s. Laxfoss, hafi greitt arð í ríkissjóð af þeim hluta, sem hann á í félaginu, meðan lagðir eru þungir skattar á þegnana til þess að greiða rekstur á því ríkisfyrirtæki, sem hér er um að ræða.

Ég skal ekki ræða um 8. og 9. gr., en vil aðeins benda á. að það er dálítið villandi, ef því er baldið fram, að hér sé um vanrækslu innheimtumanna að ræða, því að hér er um að ræða stórar upphæðir, sem deilt er um í málum fyrir mjög vafasaman úrskurð frá hv. 1. þm. N-M. í ríkisskattan. Mér er kunnugt um, að menn standa í sífelldum málum við þessa stofnun, og ætti hæstv. ráðh. að taka þessa stofnun til athugunar, þar sem þegnarnir ern gerðir varnarlausir í þessum málum.