27.10.1947
Neðri deild: 8. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)
17. mál, búfjártryggingar
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Þetta frv. er komið fram í ha. Ed. og var flutt af hv. landbn. þeirrar d. samkv. ósk hæstv. landbrh. Að öðru leyti er frv. undirbúið af Búnaðarfélagi Íslands. Þetta frv. er flutt til breyt. á l. um búfjártryggingar frá 1943 og lagt til, að sú ein breyt. verði gerð á þeim l., að vátryggja megi kynbótagripi hærra verði en sem svarar tvöföldu skattmati. Ef ekki má vátryggja kynbótagripi fyrir hærra verð en tvöfalt skattmat, munu engir búfjáreigendur, sem eiga góða kynbótagripi, telja nokkurs virði að vátryggja þá. Þess vegna er þetta frv. fram borið til þess að heimila að vátryggja þessa gripi fyrir þá upphæð, sem eigendur þeirra ákveða, en þó svo til tekið, að ef stjórn Brunabótafélagsins þykir vátryggingarupphæðin grunsamlega há, þá geti stjórn Brunabótafélagsins leitað álits ráðunauta Búnaðarfélags Íslands um það, hvort um of hátt verð sé að ræða, og gildir þá þeirra dómur um það, hvort eigi að lækka vátryggingarupphæðina frá því, sem eigendur hinna vátryggðu gripa hafa viljað vera láta um upphæðina.
Landbn. þessarar hv. d. var ásátt um að mæla með því, að frv. þetta gengi fram óbreytt. Og leyfi ég mér að óska eftir, að hv. þd. fallist á þessa ósk n. og samþykki frv. nú hér við þessa umr. og síðar út úr deildinni.