08.12.1947
Neðri deild: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (116)

1. mál, menntaskólar

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. —Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er samhljóða brbl.. sem sett voru s. l. haust. Í gildandi l. um menntaskóla er svo fyrir mælt, að þeir einir geti orðið fastir kennarar við menntaskólana, sem lokið hafa fullnaðarprófi við háskóla eða aðra sambærilega stofnun í aðalgreinum þeim, er þeir eiga að kenna, og einnig numið uppeldisfræði og stundað kennsluæfingar. Þó er veitt undanþága í þessum l. vegna þeirra, sem störfuðu í skólunum, þegar þessi lög öðluðust gildi. Þá eru og ákvæði í þessum l. um, að undanþágur frá þessum ákvæðum l. um uppeldisfræðinám og kennsluæfingar megi enn fremur veita, er sérstaklega stendur á og þörf krefur, samkvæmt nánari fyrirmælum í reglugerð. — Þetta frv. fer fram á að færa nokkuð út þessa undanþágu frá því, sem nú er gert ráð fyrir í gildandi l. Og þótti jafnvel svo mikla nauðsyn bera til þess, að brbl. voru gefin út um þetta efni á s.l. hausti, um það leyti er skólar tóku til starfa. — Í þeirri grein. sem nú er farið fram á að lögfesta hér, er gert ráð fyrir, að undanþáguákvæðið verði orðað þannig, að heimilt er að skipa þá kennara við menntaskólana, er lokið hafa fyrir 1. janúar 1949 kennaraprófi við Háskóla Íslands eða hliðstæðu prófi við sambærilega stofnun, þótt þeir hafi ekki uppfyllt það skilyrði að stunda nám í uppeldis- og kennslufræðum nú þegar eða fyrir 1. janúar 1949.

— Menntmn. hefur athugað og rætt þetta frv. og leggur einróma til, að frv. verði samþ. án breytinga.