17.11.1947
Neðri deild: 19. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í B-deild Alþingistíðinda. (1176)
28. mál, hækkun á aðflutningsgjöldum 1947
Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Það hefur komið í ljós, að þessi hækkun á benzíngjaldi er of há fyrir íslenzkar flugvélar. Það er einnig greinilegt, að þetta háa gjald hefur hindrað hér viðkomu erlendra flugvéla. Það er venja að leggja ekki hátt gjald á benzín, sem ekki er notað í landinu sjálfu, en mest það benzín, sem erlendu flugvélarnar nota, er notað utan við íslenzka landhelgi. Í Ed. gekk þetta frv. fram svo að segja mótmælalaust, og n. leggur til, að það verði samþ. óbreytt.