09.12.1947
Efri deild: 29. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)

72. mál, dýralæknar

Þorsteinn Þorsteinsson:

Hæstv. fjmrh. var nú í þessu að hringja til mín. Hann gat ekki verið viðstaddur, en óskaði eftir því, að mál þetta yrði tekið af dagskrá nú og umr. frestað, svo að það fari ekki út úr þessari d. nú þegar. Hann óskaði eftir að fá að athuga mál þetta betur, og ég sem form. landbn. veit, að n. verður með því, þar sem lítið er eftir á vegarenda hjá frv. Vil ég því óska eftir því við hæstv. forseta, að hann fresti umr. 05 taki málið út af dagskrá að þessu sinni.