16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (1252)

111. mál, bráðabirgðafjárgreiðslu 1948

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Ég skal ekki gera það að neinu kappsmáli, hvort brtt. sú, sem hv. 2. þm. Reykv. lýsti hér, verður samþ. eða ekki. Stjórnin hefur ekki hugsað sér að taka alræðisvald í fjármálunum þennan tíma. Greinin er stíluð þannig af þeirri ástæðu, að sérstaklega síðast þegar fjárl. töfðust, þótti hvimleitt að leita hvað eftir annað til Alþ. Það verður aldrei séð fyrir, hve fljótt það gengur að koma saman fjárl., enda kemur þar margt til greina. Þetta þótti geta endurtekið sig nú, og yrði því um sama kvabb að ræða, ef sami tími yrði til tekinn. Að öðru leyti læt ég ekki meira um þetta sagt, það er á valdi d. og Alþ., og atkvgr. getur úr því skorið. Hér er ekki um höfuðatriði að ræða, síður en svo.