12.12.1947
Neðri deild: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

102. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. N. hefur haft þetta mál til athugunar milli umræðna, en litlar breyt. gert enn þá. Eina breyt. hefur n. í hyggju að gera, en vegna þess að ég hef ekki náð til allra meðnm. minna, hefur hún ekki getað komið fram enn og mun því koma fram við 3. umr. Þessi brtt. er við 112. gr. Eins og kunnugt er, ríkir mikil óánægja út af þessari grein, einkum meðal bænda og þeirra, sem svipaðar ástæðar hafa. En með þeirri breytingu eða viðauka, sem hér er gert ráð fyrir, á að lækka iðgjöld á II. verðlagssvæði um 25%, en auk þess leggur n. til, að vinnutími sá, sem reiknað er með í sambandi við atvinnurekendagjöld til trygginganna, verði lækkaður úr 52 vikum í 13 víkur fyrir börn, sem vinna hjá foreldrum sínum, einnig þó að þau séu komin yfir 20 ára aldur. Þetta ætti að geta orðið nokkur réttarbót. — Eins og ég hef þegar getið um, mun þessi brtt. verða lögð fram við 3. umr. málsins.