17.12.1947
Neðri deild: 35. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)

102. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Hv. þm. Borgf. hefur fundið töluvert að. Ég skal skýra, hvernig á því stendur, að þetta frv. er borið fram nú og afgreiðslu þess mjög hraðað. Ákvæði III. kafla koma samkvæmt l. til framkvæmda í ársbyrjun 1948. En af því að ýmis ákvæði í þessum kafla, sem átti að uppfylla, hafa ekki verið uppfyllt, þarf að fresta þessum kafla. Aðallega hefur staðið á því, að samningum við lækna hér í Reykjavík hefur ekki tekizt að ljúka, og ekki eru líkur til, að þeim verði lokið fyrir áramót. Þess vegna þarf að fresta framkvæmd þessa kafla, og sjúkrasamlögin starfa því áfram á næsta ári eins og verið hefur. Nú er ákveðið að fresta þinginu næstu daga, svo að þetta mál þolir enga bið.

Hvað því viðvíkur að láta 4. lið þessa frv. bíða, þá er það rétt, að sá liður stendur ekki í svo beinu sambandi við 1. tölul. frv., að það sé ekki hægt að fresta 4. lið þess vegna. En tryggingastofnunin óskaði ekki eftir að taka inn fleiri ákvæði en þau allra nauðsynlegustu til breyt. á l.

Um frv. frá þeim sex hv. þdm., sem hv. þm. Borgf. minntist á, er það að segja, að lítillega hefur verið minnzt á það í heilbr.- og félmn., og ég hygg, að óhætt sé að segja, að meiri hl. n. sé breyt. þeim, sem frv. felur í sér, andvigur. Einn nm., sem sé ég, hef lýst yfir í n., að ég vildi fylgja því frv. að mestu óbreyttu. Form. n. er hér ekki viðstaddur. Ég fullyrði ekki, hvaða afgreiðslu það mál fær, en ég býst við, að enn þá sé ekki nógu mikill þingvilji fyrir því að fá ýmsar þær breyt. fram á l., sem það frv. gerir ráð fyrir. Ég býst við, að þeir, sem stóðu að samþykkt þessara l. og knúðu þau í gegn á Alþ. 1946 — þrátt fyrir aðvaranir frá hálfu stjórnarandstöðunnar —, hafi ekki komið með neitt nýtt fram fram yfir það, sem þá var sagt. En aðvörunum var þá ekki sinnt af þeim, sem fylgdu frv. Það var bent á það þá, að mjög væri vafasamt, að fjárhagsgrundvöllur fyrir þessum l. væri nógu traustur. Það var bent á það þá, að þeir skattar, sem væru lagðir á menn í landinu vegna þessara l., mundu reynast of þungir, og það komu fram óánægjuraddir um ýmis ákvæði þessara l. Þessi l. hafa ekki enn starfað í eitt ár og því ekki komið uppgjör fyrir meira en fyrri helming þessa árs og ekki ljóst, hver útkoman verður á árinu 1947. Ég held, að það sé hyggilegra að afnema hina ýmsu ágalla, sem kunna að vera á l., með samkomulagi hér á Alþ. heldur en að bera fram ýmis ákvæði, sem verða felld.

Í 4. kafla er tekið fram, að iðgjöld atvinnurekenda samkvæmt 112. gr. skuli á árinu 1948 lækka um 25% á II. verðlagssvæði og að þessi lækkun megi einnig ná til ársins 1947, enda eigi aðilar ekki rétt til endurgreiðslu greiddra iðgjalda fyrr en í sambandi við iðgjaldagreiðslur á árinu 1948. Ég hygg, eins og nú er háttað málum á Alþ., að þá sé erfitt að fá meira fram en samkomulag er um, og þess vegna verði að ná því, sem hægt væri að koma á með samkomulagi við aðila hér á Alþ., og bíða svo eftir því, að á næsta ári verði l. tekin til nákvæmrar endurskoðunar.

Mér þykir undarlegt, að í þeim till., sem hafa komið, virðist lítill gaumur vera gefinn því misrétti, sem er milli launþega og atvinnurekenda í öðrum greinum þessa frv., sem er miklu meira prinsipmál. Ég held, að það sé hyggilegra fyrir þá, sem vilja fá úr bætt í þessum efnum, að ganga að því, sem hægt er að ná með samkomulagið en að bera það fram, sem ekki fæst samþykkt.

Við hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að ég mun ekki liggja á liði mínu til þess að frv. verði tekið fyrir. Við hv. 2. þm. Rang. vil ég segja það, að ég man, að fyrir rúmu ári vorum við mættir á 11 eða 12 fundum, og þá var mér brigzlað um, að ég væri íhaldssamur og afturhaldssamur, af því að ég benti á ýmsa ágalla á tryggingalöggjöfinni, en allir aðrir ræðumenn, og þar á meðal hv. 2. þm. Rang., drógu meir fram þau hlunnindi, sem tryggingalöggjöfin óneitanlega veitir fjölmörgu fólki, en vildu gera lítið úr þeim kvöðum, sem lagðar voru á landslýðinn á móti. Ég efast um það, hvort við Íslendingar erum færir um, eins og nú er, að láta öll gamalmenni, rík og fátæk, fá svona styrki. Ég hygg, að það sé þetta ákvæði, sem sker mest í augun hjá almenningi þessa lands. Ég skil það, að fátækum finnist það ranglátt, að sterkefnaður maður 67 ára fái svo stóra fúlgu út úr sjóðnum, og efast um, hvort hægt verður að halda því áfram í framtíðinni, eins og nú er. Það allt saman verður að taka til nákvæmrar athugunar, þegar l. verða endurskoðuð. Þau eru ekki enn búin að starfa í eitt ár og ekki hægt að segja, á meðan svo er, að nokkur reynsla sé fengin fyrr en á miðju næsta ári, þegar búið er að gera upp fyrir árið 1947. Og þá er komin á l. eins árs reynsla.

Ég skal ekki lengja þessar umr. að svo komnu máli, en óska, að málið geti fengið afgreiðslu til 3. umr.