03.12.1947
Neðri deild: 26. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (1323)

74. mál, nafnbreyting Vinnuveitendafélags Íslands

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég hef raunverulega ekkert um þetta mál að segja, en vísa til nál. N. mælir með því, að hv. d. samþ. þetta frv. Hér er um ofur einfalt atriði að ræða, og fannst meiri hl. n. sjálfsagt að verða við ósk Vinnuveitendafélagsins um nýtt nafn, er hefði sama gildi og núverandi nafn þess gagnvart lögum og öðrum aðilum. Einn nm. tók ekki þátt í afgreiðslu málsins. — Ég hef svo ekkert frekar um þetta að segja, en vona, að mál þetta gangi áfram að umr. lokinni.