16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)
113. mál, stýrimannsskírteini og vélstjóraskírteini
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Ég vil þakka sjútvn. fyrir, að hún hefur tekið að sér að flytja þetta mál.
Ég er sammála hv. frsm., að þetta form er óviðkunnanlegt, en þannig stendur á, að viðkomandi maður getur ekki öðlazt stýrimannsrétt nema með lagasetningu, eins og nú standa sakir. Hann talaði um það í fyrra, að hann vildi bíða eftir því, að l. um atvinnu við siglingar yrði breytt, og frestaði þá að halda máli sínu til streitu, en taldi sig þó eiga erfitt með að biða eftir endurskoðuninni. Og þar sem enn liggur ekkert fyrir um þessa endurskoðun, sá hann sér ekki fært að bíða lengur með að reyna að fá sér atvinnuréttindi, þar sem upplýst er, að hann hefur öll skilyrði, sem þarf til þess að geta fengið þessi réttindi, og meira en það. Það eru fordæmi fyrir því, að þannig hafi verið farið að áður, þegar eins hefur staðið á. Ég vona því, þó að þetta sé óvenjulegt og kannske óheppilegt að afgreiða málið svona, þá verði frv. látið ná fram að ganga, en l. um atvinnu við siglingar lagfærð svo, að ekki þurfi oftar að grípa til þessa ráðs.