16.12.1947
Efri deild: 33. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)

47. mál, togarasmíði í tilraunaskyni

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Mér leizt strax þannig á þetta mál í upphafi, að það ætti hinn fyllsta rétt á sér. Af umr. hafa mér svo orðið ljósari ýmis atriði málsins, og tel ég, að margt, sem fram hefur komið í umr. um málið, bendi til þess, að þetta mál sé fyllilega tilrauna vert. Þó að það sé staðreynd, að við Íslendingar eigum kannske fullkomnustu togara heimsins, þá er ástæða til þess, að við reynum þrátt fyrir það að umbæta flota okkar enn þá betur. Og þetta er vissulega hugmynd, sem gengur í þá átt. Ástæðan til þess, að ég tel ástæðu til þess, að slík tilraun sé gerð, er fyrst og fremst sú, eins og hv. flm. komst að orði í umr., að gera tilraun til þess að auka íslenzkum sjómönnum meira öryggi. Ég álít ákaflega vafasamt, hvort þessi tilraun, þótt vel heppnaðist, yrði til þess, að við eignuðumst sjóhæfari skip en þá togara, sem við nú eigum. Það er ekki fyrst og fremst undir stærð skipanna komið, hvernig þau reynast sem sjóskip. En þrátt fyrir það, að togarar okkar séu fullkomnustu og glæsilegustu skip, þá er vert að gera tilraun um smíði á skipum, sem geti gert verðmætt nálega allt, sem á skipið kemur af afla, en nú verður að fleygja verulegum hluta af. Ég skal svo aðeins taka fram, að ég felli mig vel við brtt. hv. 2. þm. Árn. og tel hana til bóta. Um brtt. hv. 1. þm. N-M. vil ég segja það, að ef hún yrði samþ., hefði ég talið langeðlilegast, að 2. gr. frsm. hefði verið felld niður, því að ef sú brtt. yrði samþ., ætti málið að koma fyrir Alþ. aftur, áður en tilraunin væri gerð. Og þá væri ekki ástæða til að heimila ríkisstj. að taka allt að 4 millj. kr. lán fyrir hönd ríkissjóðs til framkvæmda á þessu. Ég get ekki séð, að frv. þetta yrði fugl eða fiskur, ef brtt. hv. 1. þm. N-M. yrði felld inn í þetta frv. Mun ég því ekki sjá ástæðu til að ljá henni atkv. mitt, þrátt fyrir það að mér þyki málsgr., sem brtt. er við, nokkuð einstrengingsleg, þar sem ákveðið er með orðalagi hennar, að tæknilegum undirbúningi skuli vera lokið á árinu 1948. Þætti mér rétt að hafa rýmra orðalag á þeirri gr., í því trausti, að þetta verði framkvæmt svo fljótt sem unnt er. Að binda þetta við vissan tíma, finnst mér óheppilegt, þegar ekki er vitað, hve umfangsmikill þessi undirbúningur verður. Ég hefði í raun og veru talið, að málið biði ekkert tjón, þó að málsgr. hefði verið breytt að því leyti að hafa þetta tímatakmark eitthvað rýmra. Það ætti alls ekki að þurfa að verða til þess, að dráttur yrði á framkvæmd málsins, þó að þetta væri rýmra, þó að ekki væri eins djúpt tekið í árinni og eftir brtt. hv. 1. þm. N-M.

Ég mun fylgja þessu frv. nú, sérstaklega af því, að það er í aðgengilegra formi en það var í, þegar það var lagt fram. Nú er það í heimildarformi, en áður var það ekki í því formi.