23.02.1948
Neðri deild: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)
47. mál, togarasmíði í tilraunaskyni
Frsm. (Pétur Ottesen):
Í nál. á þskj. 368 er gerð grein fyrir þeirri athugun, sem mál þetta hefur fengið, bæði í hv. Ed. og líka í meðferð sjútvn. þessarar hv. d. Og sömuleiðis er þar gerð grein fyrir þeim breyt., sem orðið hafa á frv. við meðferð málsins í hv. Ed., sem aðallega eru fólgnar í því, að þessu frv. hefur veríð breytt í heimildarform, þannig að framkvæmd málsins er eftir frv., eins og það nú er orðið, algerlega í höndum ríkisstj. og samkvæmt því, sem hún ákveður.
Sjútvn. blandaðist ekki hugur um það, að hér væri um mjög athyglisverða og gæti verið um mjög merkilega nýjung að ræða með smíði togara af þessari gerð. Og sama álit hafa látið í ljós fulltrúar félagssamtaka, sem náðst hefur til og miða starfsemi sína við sjávarútgerð og önnur mál, sem þar að lúta. Og þar á meðal hafa þeir, sem standa fyrir björgunarstarfsemi í landinu, einnig látið álit sitt í ljós um þessa skipagerð.
Eftir því, sem upplýst er, er nú í Þýzkalandi verið að vinna að byggingu togara einmitt af þessari gerð. Og með sérstöku tilliti til þess, að hér er um alldýra framkvæmd að ræða, sem er á tilraunastigi, þá bendir sjútvn. í nál. á ummæli, sem felast í álitsgerð Fiskifélags Íslands og lúta að því, að áður en ráðstafanir séu gerðar um byggingu slíks skips af hálfu Íslendinga, þá væri rétt fyrst og fremst að kynna sér þetta mál nokkru nánar og auk þess að fá nokkra reynslu af skipum af slíkri gerð, áður en ráðizt yrði í byggingu slíks skips af Íslendinga hálfu. Sjútvn. tekur undir þetta, um leið og hún leggur áherzlu á það, að athugun á máli þessu verði haldið áfram og fylgzt gaumgæfilega með þeim framkvæmdum, sem um er að ræða af annarra hálfu í þessu efni. Jafnframt því sem n. bendir á þetta, leggur hún eindregið til, að þetta frv. verði samþ., svo að fyrir liggi slík heimild, sem í frv. felst. Íslendingum er það að sjálfsögðu mesta nauðsynjamál að fylgjast með á þessu sviði sem öðrum í þeim efnum, sem gætu leitt til hagkvæmari rekstrar í sjávarútvegsmálum, eins og menn gera sér vonir um í sambandi við slíka togara, sem hér er um að ræða. Sem sagt, sjútvn. leggur til, að frv. nái fram að ganga.