10.12.1947
Efri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í B-deild Alþingistíðinda. (1391)

103. mál, innflutningur búfjár

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hv. 1. þm. N-M. (PZ) taldi, að andmæli mín gegn þessu frv. byggðust á misskilningi. Hann benti á, að gildandi l. um þessi ákvæði væru þannig, að ekki væri við þau unandi, og að þetta frv., ef að l. yrði, væri til mikilla bóta á ríkjandi ástandi í þessum efnum. Um þetta get ég verið sammála, en mér finnst, að þegar þetta frv. er hér á ferðinni, eigi hv. dm. að gera sér ljóst, hvort þeir vilji, að haldið sé áfram að leyfa innflutning búfjár, og mín afstaða til þessa máls hefur takmarkazt af því, að ég tel, að hann eigi ekki að leyfast og alls ekki á þann hátt, sem lagt er til í frv., jafnvel þótt í því felist meiri trygging en með því fyrirkomulagi, sem ríkir í þessum efnum. Ég tel enga nauðsyn á því, að leyft sé að flytja inn 500 þúsund egg til útungunar á Íslandi eða 200 þúsund hænsni. Ég tel, að hægt sé að ala hér upp búfé af innlendum stofni, en ekki hlaupa neina áhættu af því tjóni, sem innflutningur erlends búfjár hefur valdið í landinu. Vil ég því fyrir mína parta eindregið óska þess, að hv. landbn. taki til athugunar, hvort ekki sé hægt að breyta frv. í það horf að banna m.a. innflutning á öllu búfé fyrst um sinn, nema það sé gert í tilraunaskyni. Að vísu er landbrn. gefin heimild í frv. til að flytja til landsins búfé, en hins vegar er ekki þar með sagt, að aðrir megi ekki einnig gera það. Ég hygg því, að þjóstur hv. þm. í minn garð stafi af því, að hann hafi ekki skilið afstöðu mína til málsins. Ég hef í dag rætt um þetta atriði við mjög háttsettan búfræðiráðunaut, og fullyrti hann, að langeðlilegast væri að rækta kynið hér á landi. Hann sagði, að ekki væri hægt að flytja inn kýr í því skyni að auka mjólkurmagnið, svo að það kæmi bændum að nokkru gagni, hins vegar væri hægt að flytja inn fé til að bæta kjötið, en meðan við getum ekki haft nægilegan innlendan markað fyrir okkar ágæta sauðfé, jafnvel á þeim tímum, sem mikill hluti þess fellur fyrir sjúkdómum, sé ég ekki ástæðu til að taka áhættuna af innflutningi nautpenings til þess að ala hann upp til neyzlu í landinu. Ókostirnir eru svo margir, sem mæla á móti þessum innflutningi, að ég tel ekki rétt fyrir ríkið að fara inn á þessa braut. Þannig er það talinn ógerningur að flytja inn sum beztu erlend mjólkurkyn, sem ef til vill mundu auka mjólkurframleiðsluna, en það mundi kosta svo miklu meira fóður, að það mundi engan veginn borga sig. Sannleikurinn er sá, að eðlilegast er fyrir okkur að ala hér upp þá stofna, sem landsmenn þurfa að nota, og bæta þá eftir því, sem hægt er, en forðast að öðru leyti innflutning á búfé. Hins vegar kæmi til mála að leyfa að einhverju leyti innflutning á mjög takmörkuðu magni, eins og t.d. til sæðisflutninga og annað slíkt, en það er allt annað en ætlazt er til með frv. Þar er að vísu ætlazt til, að innflutningur búfjár sé undir eftirliti, en hins vegar ekki takmarkaður á þann hátt, sem ég tel nauðsynlegt, enda segir í grg., að hann megi þá telja öruggan, ef ákvæðum I. væri trúlega fylgt. En hver yrði afleiðingin, ef það væri ekki gert? Þá færi á sömu leið eins og þegar karakúlféð var flutt inn, af því að nægileg varúð var ekki viðhöfð, sem hefur nú kostað ríkið hundruð milljóna króna. Ég spurði landbúnaðarráðunautinn, sem er annar höfundur þessa frv., að því, hvað meint væri með síðustu mgr. 6. gr. frv., sem fjallar um, að heimilt sé að flytja til landsins hunda. Upplýsti hann, að þetta ákvæði hefði verið sett í frv. til þess að láta undan ítrekuðum óskum þeirra erlendu kvenna, sem hér eru sendiherrafrúr, og sagði hann, að enginn utanrrh. mundi hafa frið, fyrr en slík undanþága hefði verið gerð. Það er sjálfsagt að gera margt fyrir þessar ágætu konur, en að stofna búfjárstofni landsmanna í hættu til þess að uppfylla þessar óskir þeirra sé ég enga nauðsyn á. Og kannske verður þá líka farið að flytja inn refi, að maður nú ekki tali um rándýr eins og minkana, og væri málið þá komið í það horf, að ríkissjóður veitti fé til þess að flytja inn dýr, en þyrfti svo kannske að eyða helmingi meira fé til þess að útrýma þessum dýrum á eftir.

Ég vil þess vegna vænta þess, að hv. landbn. taki málið enn til ýtarlegrar yfirvegunar og breyti frv. í það horf að banna einstaklingum að fullu og öllu að flytja inn búfé, — sem hins vegar er ekki gert samkv. 1. gr. þess, því að þar er aðeins um heimild fyrir landbrh. að ræða, en öðrum aðilum ekki bannað að flytja inn búfé, — og takmarki þessa heimild fyrir landbrh. svo mjög, að aðeins sé að ræða um einstakar tilraunir. Ef frv. verður fært í það horf, hygg ég, að ég geti á það fallizt, en sé mér hins vegar ekki fært að greiða því atkv., ef það verður áfram borið fram í því formi, sem það er nú í. Ég mun því að þessu upplýstu fylgja málinu til 2. umr. í fullu trausti þess, að á því verði gerðar þær breytingar, sem ég hef nú minnzt á.