15.12.1947
Efri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)

103. mál, innflutningur búfjár

Gísli Jónsson:

Ég sé ekki ástæðu til að halda uppi löngu málþófi, en vil aðeins mótmæla því, að ég hafi sætt mig við afgreiðslu málsins, eins og frv. er. Ég tel, að með því sé ekki þeim árangri náð, sem þarf að keppa að, sem er algert innflutningsbann. Það þarf ekki heldur að lýsa því, hvernig þessi mál eru hjá þjóðinni, þar sem kostnaður vegna fjárpestanna bakar ríkissjóði árlega milljónaútgjöld og þær eru þar að auki búnar að leggja að velli hálfan bústofn landsmanna og ekkert útlit fyrir, að á því verði endir fyrst um sinn. Form. þeirrar n., sem um þessi mál sér, hefur verið hjá fjvn. og telur, að jafnvel niðurskurðurinn sé fálm, þar sé verið að leggja í milljónaútgjöld, án þess að vitað sé nokkuð um árangurinn, það sé enn verið að þreifa sig áfram út í kolsvarta myrkur. Þetta ætti að vera nægilegt til að sýna mönnum fram á, hversu ráðlegt það er að halda enn slíku ástandi við með áframhaldandi innflutningi. En ef dagskráin er samþykkt, þá er hún fyrirskipun til ríkisstj., að hún geri þær ráðstafanir, sem þarf, til að allur innflutningur dýra stöðvist, þar á meðal nauðsynlegar lagabreyt., til þess að því verði náð. Ég vil fá úrskurð um það í d., hvað margir eru því fylgjandi að halda við því ástandi, sem nú er, sem er viðurkennt af hv. þm., að er við haldið, ef út af er brugðið. Slíka áhættu vil ég ekki hlaupa í þessu máli. Ég óska því, að dagskrá mín verði borin upp, og óska nafnakalls um hana.

Ég þarf svo ekki frekar að ræða um þetta mál.