17.02.1948
Neðri deild: 58. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1024 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)

103. mál, innflutningur búfjár

Sigurður E. Hlíðar:

Herra forseti. Við höfum nú í nokkuð langan tíma búið við nokkurs konar bannlög um innflutning dýra, en haft heimild til að veita undanþágur. Reynslan er sú, að heimildin hefur oft verið notuð til að flytja inn dýr, svo sem ketti, og hefur það ekki beinlínis komið að sök. Þá hefur markvisst verið unnið að því að flytja inn alidýr til kynbóta, og mætti margt um það segja. Það er prinsipmál, sem er ofarlega á baugi. En allir þm. eru sammála um, að þar beri að gæta fyllstu varúðar, og með þessu frv. virðist vera á ferðinni öflug hreyfing í þá átt.

Í þessu frv. er eitt nýmæli, sem ég vil gera að umræðuefni, en það er sóttvarnarstöðin, sem á að koma upp í sambandi við innflutning á búpeningi. Það hefur verið svo hingað til, þegar undanþágur hafa verið veittar, að menn hafa orðið að trúa þeim, sem leyfin hafa fengið, til að hafa hunda, ketti og fugla í einangrun tilskilinn tíma, og eftirlitið með því hefur verið upp og ofan. Svona ástand er ekki til fyrirmyndar. Við getum sagt, að það sé óhæfilegt að búa við slíkt.

Nú er hér sett það merkilega ákvæði, að hér skuli sett á stofn sóttvarnarstöð í nánd við Reykjavík, sennilega í eyju, þar sem væri örugg vörn frá náttúrunnar hendi, t.d. í Engey eða Viðey. Það er þetta ákvæði, sem er sérstaklega mikilsvert, þó að ég viti, að það leggur mikla ábyrgð á herðar mér, meðan ég gegni því starfi, sem ég hef með höndum nú. Þess vegna áleit ég nauðsynlegt, að mér væri tryggð góð aðstaða til að leysa þetta ábyrgðarmikla starf af hendi, en 7. gr., eins og hún er, er svo væg, að ég mundi tæplega treysta mér til að sjá um þetta starf, ef ekki væri veitt sterkari aðstaða. Þó að dýr séu einangruð í eyju, þá hlýtur samgangur fólks milli lands og eyjar alltaf að vera nokkur. Við skulum hugsa okkur, að bústjórinn þar eigi konu og börn, sem séu á skólaskyldualdri, og enn fremur þarf daglega að flytja þangað lífsnauðsynjar o.s.frv., og að sjálfsögðu koma kunningjar heimafólks út í eyjuna. Hvaða tryggingu hef þá ég sem yfirdýralæknir fyrir því, þegar ég á að hafa ábyrgð á sóttvörnunum, að alls nauðsynlegs öryggis sé gætt? Nú hefur n. athugað þetta og kallað mig til viðtals og sérstaklega tekið til athugunar 7. gr. Tel ég, að brtt. á þskj. 345 við hana séu mjög í þá átt að lagfæra það, sem mér fannst áfátt við 7. gr., og hygg ég, að varla sé hægt að orða hana skýrar, og styrkir hún alla aðstöðu til öruggari sóttvarna.

Sama er að segja um brtt., sem n. hefur gert við 5. gr., sem lengir sóttvarnartímann í útflutningslandinu. Álitið var nægilegt, að það væru 4 vikur, en hefur þó verið breytt í 6 vikur. Álít ég það mjög heppilegt. Til orða kom að hafa tímann 6 mánuði, en það hefði orðið nokkuð vafstursmikið, og ég ætla líka, að það sé nægilega tryggt að hafa tímann 6 vikur. Í gamla daga voru 3 vikur taldar nægja. Fyrir öryggis sakir þótti réttara, að dýrin væru einangruð 6 vikur í heimalandinu, því að í flestum tilfellum ættu sjúkdómar að vera komnir í ljós eftir þann tíma, auk þess sem við tekur hér heima langvarandi einangrun undir eftirliti dýralæknis.

Það, sem verður að leggja aðaláherzluna á, er aðstaða og eftirlit við sóttvarnirnar hér heima, og þá er ég hræddur við samgöngurnar, því að fólk, sem þarf að hafa þessa umsjón með höndum, verður að fá aðflutninga til sín, og alltaf verða meiri og minni samgöngur við heimilið, þó að það þyrfti ekki að koma að sök, ef samvizkusemi er mikil. Gestir þyrftu ekki að fara að sjá gripina, en maður þekkir mannlegan veikleika, forvitnin vill verða sterk að sjá þessa nýju gripi. Ég hef reynslu fyrir því með hrútana úti í Gróttu í fyrra.

Ég sem sé get fellt mig við frv., þar sem ég fæ að hafa hönd í bagga um þessa reglugerð, sem talað er um í 7. gr., og með þeirri áréttingu, sem gerð er með brtt. landbn. við þá gr.

Um sektarákvæðin er ekki mikið að segja. Sú brtt. er aðeins til að herða á viðurlögunum við brotum gegn l. Í 11. gr. er svo fyrir mælt, að það varði stöðumissi, ef sjúkdómur berst til lands vegna vanrækslu ábyrgra aðila. Það er álitamál, hvort nokkur maður með heilbrigðri skynsemi vill taka á sig svona ábyrgð, nema hann fái að hafa hönd í bagga með öllu, sem við kemur örygginu og eftirlitinu. Ég mæli því með frv. með þeim breyt., sem n. hefur lagt fram.