05.03.1948
Efri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)

45. mál, búfjárrækt

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Mér kom mjög á óvart, að felld yrði brtt., sem miðaði að því, að fjárveitingarvaldið hefði í hendi sér, hversu miklu fé væri varið til þessara ráðunauta. Ég hélt satt að segja, að menn hefðu þegar áttað sig á því, að allt of mikið á sér stað af fjárveitingum, sem Alþ. ræður ekkert við, nema með gagngerri breyt. á löggjöfinni, og þessar fjárveitingar eru eitt af því marga, sem veldur því, hvað kostnaður af ríkisútgjöldum er orðinn mikill. Þrátt fyrir það, að þessi hugarfarsbreyting virðist enn ekki hafa fest rætur í þessari hv. d., vil ég ekki leggja stein í götu frv., sem mér virðist á ýmsan hátt vera til bóta, og greiði því ekki atkv.