15.03.1948
Efri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (1579)
144. mál, vátryggingarfélag fyrir fiskiskip
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Mér þykir rétt að taka fram, að það er aðeins af vangá, að ég gat þess ekki, að hv. 1. landsk. þm. (SÁO) hafði einnig gert þann fyrirvara í n., sem hann hefur lýst. Enda kemur þetta fram í nál. — En í sambandi við þessa brtt. vildi ég aðeins segja það, að það var aðallega vegna þess, að ekki þótti æskilegt eða ástæða til að senda málið á milli deilda, að nm. féllust ekki á, að þessi breyt. væri sett inn í frv. Að öðru leyti höfðu nm. ekki á móti brtt. — En það er ekki svo sem þetta sé eina opinbera stofnunin, sem ekki birtir ársreikninga sína í B-deild Stjtíð. Ég veit ekki til þess, að Skipaútgerð ríkisins birti ársreikninga sína í stjórnartíðindunum, og þeir reikningar eru enn fremur mjög takmarkað til athugunar fyrir fjvn. Ég veit ekki til þess, að reikningar Síldarverksmiðja ríkisins séu prentaðir í stjórnartíðindunum. Þeir reikningar eru birtir. þegar stjórn þeirrar stofnunar þóknast. Ekki hef ég heldur séð í stjórnartíðindunum reikninga frá Gutenberg, Landssmiðjunni, Grænmetissölunni, Áfengisverzluninni, Tóbakseinkasölunni og ýmsum öðrum stofnunum, sem reknar eru alveg á kostnað og ábyrgð ríkisins. — Ég hef ekkert á móti þessari brtt. annað en það, að hún mundi tefja málið, af því að það mundi, ef hún yrði samþ., þurfa að fara á milli deilda.