04.03.1948
Neðri deild: 68. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1099 í B-deild Alþingistíðinda. (1658)
84. mál, sóknargjöld
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Við að heyra fljótlega skriflegu brtt., sem hv. þm. ber fram við 3. gr., skilst mér, að hún mundi ekki ná þeim tilgangi, sem hann lýsti. Vil ég þess vegna bera fram þá ósk, að þessari umr. verði frestað, svo að menntmn. eigi kost á að skoða þessar brtt., sem fram eru komnar.