15.12.1947
Neðri deild: 33. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 63 í B-deild Alþingistíðinda. (166)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Jón Pálmason:
Herra forseti. — Það lítur nú út fyrir, að það verði jafnvel aðalumr. um þetta stórmál nú þegar við 1. umr., og þykir mér því rétt að segja fáein orð, annars vegar um málið í heild sinni og hins vegar um einstaka þætti þess, til íhugunar fyrir þá hv. þingn., sem fær málið til rannsóknar og yfirvegunar.
Árið, sem nú er bráðum á enda, hefur að sumu leyti verið misbrestasamt ár. Veiðiföng hafa að nokkru leyti verið slæm, einkum um síldveiðitímann í sumar, sumarharðindi voru um talsvert mikinn hluta landsins, og svo var Heklugos. Þessir misbrestir eru þannig, að við getum alltaf búizt við þeim og öðrum slíkum og oft meiri. En þó að þetta hafi verið svo, þá hefur nú þetta ár verið það gott, að inn- og útflutningurinn mun á því hafa verið meiri en oftast ef ekki alltaf áður. Það er og kunnugt mál, að hér á landi eru nú betri lífsskilyrði en í flestum ef ekki öllum okkar nágrannalöndum. Og sérstaklega stafar þetta af því, að launastéttirnar hafa hærri laun hér en þær hafa í nágrannalöndum okkar. Samt er nú komið svo, að í því liggja okkar örðugleikar, að okkar aðalatvinnuvegir, sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn, þeir bera sig ekki vegna of mikils framleiðslukostnaðar. Þess vegna hefur verið gripið til þess af hæstv. Alþ. að styðja þessa undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar með ábyrgðum á verði framleiðslunnar og niðurgreiðslum á verði sumra vara, einkum landbúnaðarvara, sem þó er ekki nema að litlu leyti stuðningur við þann atvinnuveg, heldur dýrtíðarráðstöfun.
Ástæðurnar til þess, að svo er komið um okkar framleiðsluatvinnuvegi, eru þær, að það hefur verið hlaðið á atvinnuvegina meiri byrðum en þeir fá undir risið, jafnvel þó að nú sé mjög hátt verð á öllum okkar framleiðsluvörum. Þetta felst fyrst og fremst í háum sköttum og útgjöldum annars vegar og háum launum og miklum fríðindum fyrir vinnandi menn að hinu leytinu. Ef við miðum við síðustu 15 til 20 árin, þá hygg ég, að það megi segja, að þessi raunalega aðstaða sé öllum flokkum okkar þings og þjóðar að nokkru leyti að kenna. Þetta er þó áreiðanlega mjög á mismunandi veg, og skiptir þar í sjálfu sér í tvö horn, því að þrír þingfl. og stjórnmálafl. hafa á þessu tímabili verið sóknaraðilar á þessum vettvangi, sóknaraðilar þannig að hlaða alltaf meiri og meiri byrðum á framleiðsluna. Og þess vegna er svo komið sem raun er á. Einn flokkurinn, Sjálfstfl., hefur verið þarna varnaraðili. Og það má segja, að það ástand, sem orðið er, sé annars vegar því að kenna, að sóknin hafi í þessu efni verið of hörð, og hins vegar því, að vörnin hafi verið of veik. En í þessu efni stöndum við frammi fyrir þeirri aðalmeinsemd, sem við er að eiga, þrátt fyrir gott árferði, mjög hátt verð á okkar framleiðsluvörum og að öðru leyti mjög góða aðstöðu, síðan stríðið byrjaði. En varðandi höft og bönn á þeim mönnum, sem eru mestir athafnamenn í okkar þjóðfélagi, hefur keyrt alveg um þverbak á þessu yfirstandandi ári. Ég skal ekki fara langt út í þá sálma hér. Það gefst víst tækifæri til að ræða það mál nánar síðar í sambandi við önnur mál, sem fyrir hæstv. Alþ. liggja.
En hver eru nú hættulegustu lögin? Hver er hættulegasta ráðstöfunin, sem hefur verið gerð á Alþ. og í viðskiptalífi þjóðarinnar, sem hefur orkað það ástand, sem ég hef hér lauslega vikið að? Frá mínu sjónarmiði eru það tvímælalaust vísitölul. frá 1940, þar sem það var ákveðið að borga upp í topp uppbætur á allan kostnað, eftir því sem hann gerðist, reikna þetta út mánaðarlega o.s.frv. Mér var það þá þegar ljóst og hefur verið það ljóst alltaf síðan, að þetta hlyti fyrr eða síðar að reka okkar fjármál í strand, því að þetta þolir ekkert þjóðfélag. Það þolir ekkert þjóðfélag að taka svona alveg 100% ábyrgð á því, sem er að gerast, og láta reikna það út á hverjum mánuði, því að það hlaut eðlilega að verða til þess að skapa þá víxlskrúfu, sem við allir þekkjum og hefur orðið til þess, að svo hátt er komið með verðlagið og annað í þessu landi hliðstætt, svo sem launagreiðslur, sem raun ber vitni um. Að tala um dýrtíðarráðstafanir að óbreyttum vísitölul. hefur mér alltaf fundizt vera hálfgerður barnaskapur. Að vísu er það svo að einn okkar stjórnmálaflokka, Framsfl., hefur alltaf á undanförnum árum látið svo sem hann hefði nægileg ráð við þessum dýrtíðarmeinsemdum og gæti beitt þeim, bara ef hann fengi völd í þjóðfélaginu. Hann hafði völdin að vísu lengi. En okkur virtist mörgum, að ráðin væru næsta fánýt, sem sá flokkur talaði um, a.m.k. þegar til framkvæmdanna kom. Nú er það svo, að þessi flokkur hamraði jafnan á fyrrv. ríkisstj. fyrir það, að hún skrúfaði dýrtíðina upp, og gaf henni það að sök, að dýrtíðin væri alltaf að hækka. Og sú stjórn, sem þá ríkti, var af þeim flokki kölluð dýrtíðarstjórn o.s.frv. Nú er það kunnugt, að í tíð fyrrv. Ríkisstv. ríkisstj. hækkaði verðlagsvísitalan um rúm 40 stig á 27 mánuðum, sem sú stjórn var við völd. En nú hefur andstöðuflokkur þeirrar stjórnar, Framsfl., fengið tækifæri til þess að reyna sig í rúma 10 mánuði, og á þeim hefur verðlagsvísitalan hækkað um rúm 30 stig. Hér er í báðum tilfellum talið með það, sem vísitalan er borguð niður, því að nú mun hún að niðurgreiðslum meðtöldum vera orðin rúmlega 380 stig. Vísitöluniðurgreiðslan var, eftir því sem maður gat komizt næst, í síðasta mánuði 55 stig. Þetta er að vísu ekki hægt að fá upp nákvæmlega á hverjum mánuði, og þess vegna verður ekki sagt um þetta alveg upp á eitt stig vegna þess, hvernig niðurgreiðslunum er hagað.
Nú liggja hér fyrir í ýmsu frv., sem fyrir liggur til umr., þau ráð í mörgum og mismunandi köflum, sem hæstv. ríkisstj. hefur komið sér saman um að hverfa að til þess að lækna þá meinsemd. sem hér er um að ræða. Ég geri ráð fyrir, að það megi líta svo á, að þau ráð, sem eru ný í þessu frv., beri fyrst og fremst að skoða sem ráð Framsfl., sem er nýkominn í ríkisstj. — ég segi: Það, sem er nýtt í frv. – því að þrír kaflar þessa frv. eru endurnýjun á gömlum l., þ. e. IV., V. og VI. kafli, um ábyrgð á fiskverðinu, um lán til handa síldarútvegsmönnum og framlenging á tollum, sem settir voru á síðasta þingi. Ég geri ráð fyrir, að fáir hv. þm. hafi gert ráð fyrir öðru en að tollarnir yrðu framlengdir, eins og ástæður eru varðandi okkar fjármál og fjárkröfur. Varðandi fiskábyrgðina munu margir hafa verið nokkuð tregir á síðasta þingi til þess að ganga inn á hana í eitt skipti, en flestir gerðu ráð fyrir, að það yrði ekki oftar gert. Þó má vera, að hjá því verði ekki komizt að taka þessa ábyrgð vegna þess, hvernig ástæðurnar eru. Og ég tel það mikla framför viðvíkjandi þeim kafla, að þar er gert ráð fyrir ábyrgð á verði á útfluttu kjöti, sem fellt var hér á Alþ. í fyrra, þrátt fyrir það að með því væru flestir, ef ekki allir sveitafulltrúarnir. Og við töldum það ósanngjarnt, úr því að tekin var ríkisábyrgð á fiskverðinu, sem þá var tekin, að taka þá ekki ábyrgð á verði á því tiltölulega litla kjötmagni, sem út er flutt. Varðandi lánin til útvegsmanna þá sannar það mjög átakanlega það, sem ég var að segja áðan, hvernig komið er fyrir okkar framleiðslu, því að fáa mundi hafa dreymt um það, að svo hátt verð yrði nokkurn tíma á síldarafurðum sem nú er.
Og þá eru hin nýju ráð, sem hér koma fram í þessu frv., lækkunin á vísitölunni um 28 stig. Nú er gert ráð fyrir. að niðurgreiðslurnar haldi allar áfram. Og það eru tveir nýir skattar, veituskattur og eignaraukaskattur. Hæstv. forsrh. gat þess, að þessi lækkun og binding á vísitölunni næmi um það bil 5% launalækkun. Og ég verð að segja, að ef það dugar til viðbótar því, sem um er að ræða í þessu frv. til úrlausnar í þessum málum til handa okkar framleiðslu til sjávarins, þá þarf ekki næsta mikils við. Hv. 2. þm. Reykv. taldi þetta þýða 10% launalækkun og gerði ráð fyrir, að hér væri um að ræða 50 millj. kr. launaskerðingu fyrir launastéttir landsins. Þetta skil ég ekki annað en að séu mjög miklar öfgar. Og sannleikurinn er sá, að þótt gert sé ráð fyrir allsherjar launaskerðingu á þennan hátt um 5%, þá er það vitað, að ef það væri til tryggingar því, að okkar framleiðsluatvinnuvegir gæfu gengið nokkurn veginn hindrunarlaust, þá er það í sjálfu sér ekki mjög mikið lagt í sölurnar. Ég fyrir mitt leyti taldi, þegar launal. voru sett árið 1945, að þá væri farið í öfgar, enda sýnir reynslan, að langmest eftirspurn er meðal unga fólksins í landinu eftir því að komast í launaðar stöður, en forðast er af því hins vegar fremur að stunda framleiðslu á eigin ábyrgð. — Það má gefa þess í þessu sambandi til samanburðar frá hálfu okkar bænda, að fyrir fjórum árum síðan varð um það fullt samkomulag á milli fulltrúa neytenda og fulltrúa framleiðenda, hver verðlagsgrundvöllur skyldi vera fyrir landbúnaðarafurðir. Hefur hann á þessu ári verið lækkaður með gerðardómi frá þeirri samþykkt um 17,7%. Og þegar það er borið saman við 5% launalækkunina. Þá er þar ekki fullt samræmi á milli, þegar því er bætt við, að gert er ráð fyrir lækkun á söluvörum landbúnaðarins í samræmi við hækkun vísitölunnar með bindingu.
Þá eru það hinir nýju skattar, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Annar þeirra er kallaður söluskattur, en í sjálfu sér er þar um að ræða veltuskattsl. frá 1945, sem var ákaflega mikið deilt um, þegar þau voru sett, milli þáverandi stjórnarstuðningsmanna annars vegar og andstöðufl. stjórnarinnar, Framsfl., hins vegar. Nú sjáum við, að sú deila hefur eingöngu sprottið af því, að þá var skatturinn lagður á verzlunina. En nú á bann að leggjast á almenning. Auk þess er hann nokkru hærri en hann var þá. Það er tekið fram í þessum kafla, að þessi skattur eða þær tekjur, sem hann gefur, eigi að vera til niðurgreiðslu á afurðaverðinn og fyrir fiskábyrgðinni. — Ég þykist nú alveg sjá, að þessar tekjur dugi þar skammt. Raunar sakna ég þess, að þess er ekki getið í grg. frv., hvað áætlað er, að þessi skattur muni geta. Eftir því sem mig minnir, gaf veltuskatturinn 1945 12 millj. kr. Hæstv. ráðh. gerði ráð fyrir, að fiskábyrgðin ein mundi verða um 20 millj. kr. En hve mikil sú upphæð verður, fer alveg eftir því, hvernig gengur að selja okkar fisk á næsta ári, og í öðru lagi eftir því, óvað kostar að verðbæta það tiltölulega litla magn af kjöti, sem út er flutt. — Og hvað kostar niðurgreiðslan á verðlagsvísitölunni? Niðurgreiðsla á 55 stigum hennar, get ég ekki gert mér í hugarlund, að muni kosta minna en 40 millj. kr. En á núgildandi fjárl. var víst áætlað til þessara ráðstafana 35 millj. kr. Og niðurgreiðslan hefur verið mikið hækkuð. — Þá er spurningin: Er ekki einfaldara að leggja ekki á þennan veltuskatt vegna fiskábyrgðarinnar, en lækka niðurgreiðslurnar, t. d. kjötstyrkinn til neytenda, sem ekki hefur reynzt vel í framkvæmd? Mér hefði fundizt á margan hátt eðlilegra að breyta þannig til. Og væri æskilegt, að hv. fjhn. athugaði, hvaða áhrif það kynni að hafa að breyta þannig til.
Fyrsti kafli þessa frv. er um eignaraukaskatt, sem er ætlazt til, að nái til eignarauka á stríðstímanum. frá 1940 til 1948, er nemur yfir 100 þús. kr. hjá sama aðila. Ég hef nú frá upphafi verið andvígur því að leggja á þennan eignaraukaskatt. Það hafa orðið um hann harðar deilur hér á hv. Alþ. á undanförnum þingum. Og 1943, þegar fyrir lá frv. frá fulltrúum þriggja þingflokkanna um eignaraukaskatt, nokkuð svipaðan og hér er gert ráð fyrir, þá stóðu sjálfstæðismenn yfirleitt mjög andvígir því að leggja hann á. Þess vegna var hætt við það. Mér finnst það ekki eðlilegt á neinn hátt að leggja þannig skatt á þær eignir, sem safnazt hafa á árunum 1940 til 1947 fremur heldur en á aðrar eignir, ef þar er um að ræða jafnmiklar upphæðir hjá sama manni. Þar að auki er það, að þó horfið væri að þessu ráði, eins og hér er gert ráð fyrir í þessu frv., þá er það gert á mjög ósanngjarnan hátt eftir ákvæðum frv. Frá mínu sjónarmiði er þar gert mjög herfilega upp á milli manna. Og ég verð að segja það, að 6. gr. þessa frv. er einhver hin fáránlegasta og ranglátasta grein, sem ég hef séð í nokkru frv. Þar er gert ráð fyrir að hækkun í eignaframtali frá fasteignamatsverði eftir ákveðnum skala verð á fasteignum þeirra manna, sem hafa eignazt þær á þessu árabili, og er komizt upp í að hækka verð á fasteignum við eignaframtalið hér í Reykjavík og hinum stærri bæjum og stærri sveitarfélögum upp um 500% fasteignamatsverðs. Jarðir er að vísu ekki gert ráð fyrir að hækka nema um 200%. En allt er þetta þannig, að ég álít það hreina fjarstæðu. Það virðist vera, eftir því sem mælt er fyrir þessu, að það eigi þarna hálft um hálft að vefa inn í þetta mál eins konar hegningu fyrir það, að hér sé um menn að ræða, sem hafi meira og minna svikið undan skatti á undanförnum árum. En fyrir því eru engar sannanir, að þeir menn, sem hækkun fasteigna í eignaframtali samkv. 6. gr. kemur mest niður á, hafi svikið skatt fremur en a.m.k. aðrir, sem hér eiga hlut að máli. Þar að auki er það kunnugt mál, að nú er verið að framkvæma hina svo kölluðu eignakönnun, sem ég tel eitthvert allra mesta óhappamálið, sem horfið hefur verið að í löggjöf þessa lands og hefur skapað hér peningakreppu og tregðu á lánsviðskiptum svo langt fram yfir það, sem þeir, sem fyrir því máli hafa staðið, hafa gert ráð fyrir. En úr því að þessi eignakönnun er framkvæmd, finnst mér það sjálfsagður hlutur. þegar lagður er á eignaraukaskattur eða eignarskattur, að fara eftir þeirri útkomu, sem eignakönnunin er byggð á, og miða við hana. Ég er þeirrar skoðunar, að miklu eðlilegra væri að sjá um, að þeir hefðu ekki nema hæfilegar tekjur af þessum eignum, leggja fyrst og fremst á tekjurnar, en ekki á eignir nema sem almennan eignarskatt, sem gæti komið til mála að hækka og láta vera meira stighækkandi en gert er samkv. núgildandi l.
Ég skal taka fáein dæmi til að sýna, hve mikið misræmi reglurnar í 6. gr. gera í þessu efni. Hugsum okkur tvær jarðir, sem eru metnar á 20 þús. kr. hvor og eru jafngóðar. Önnur þeirra er seld 1946 eða 1947, en hin er í eigu sama manns og áður. Sú jörðin, sem skiptir um eiganda og metin var 20 þús. kr. til eignar, á nú að verðu metin á 60 þús. kr. samkv. ákvæðum 6. gr. Hin verður metin á 20 þús. áfram. Hvaða sanngirni geta menn fundið í svona hlut? það er engan veginn víst, að sá, sem keypti jörðina á þessu tímabili, sé ríkari en sá, sem fyrir stríð átti jafngóða jörð, sem gefur sama arð.
Þó er enn þá fjarstæðukenndara, þegar kemur til húsanna og annarra fasteigna. Við skulum hugsa okkur tvö hús í Rvík, sem eru byggð 1938–39 og eru jafngóð. Segjum, að þau hafi verið metin á 100 þús. kr. hvort að fasteignamati. Annað er stöðugt í eigu sama manns, hitt er selt, segjum 1946–47. Þá er annað reiknað á 100 þús. kr., en hitt á 600 þús. Hvaða sanngirni er í öðru eins og þessu? Ég er undrandi yfir því, ef annað eins og þetta á eftir að verða lögfest hér á Alþingi.
Menn kunna að segja, að þetta stafi af því, að sá, sem keypti húsið, hafi svikið andvirðið undan skatti, en það þarf alls ekki svo að vera. Við getum hugsað okkur sjómenn, skipstjóra, stýrimenn og aðra slíka menn, sem hafa haft geysimiklar tekjur, sem hafa verið skaftfrjálsar að miklu leyti. Það er engin ástæða til að hegna þeim mönnum með háum eignaraukaskatti, þó að þeir hafi sett tekjur sínar í fasteignir í stað þess að eyða þeim. Undanfarin ár hefur verið mikið um byggingar, skipakaup og ýmsar framkvæmdir, og þetta ákvæði, ef það verður samþ. eins og það er, verður þá hegningarákvæði á þá menn, sem hafa staðið að framkvæmdum á þessu tímabili.
Ég tel, að fasteignir verði að meta eftir sömu reglum og gert er við eignarskatt og leggja á eftir því, sérstaklega nú, þegar verið er að framkvæma hina svokölluðu eignakönnun.
Ég skal ekki fara mikið út í þetta meir, en mér virðist með þessu frv. vera stefnt í sömu átt og gert hefur verið á undanförnum árum, að þegar á að fara að gera einhverjar ráðstafanir til að bæta úr því ástandi, sem verið hefur, þá er ráðið það að bæta á nýjum sköttum, nýjum flækjum, fjölga starfsmönnum í stað þess að draga vitleysuna saman, ef ég mætti svo segja, og minnka fyrirhöfnina. Ég álít þetta mjög hæpið, og þó að það sé að sjálfsögðu svo, að ég geti vel verið með ýmsum ákvæðum frv., þá er það í heild þannig, að ég get ekki greitt því atkv. óbreyttu.