18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í B-deild Alþingistíðinda. (1667)
84. mál, sóknargjöld
Eiríkur Einarsson:
Það er rétt, að ég tók ekki afstöðu til málsins og skrifaði ekki undir nál., og er það ekki af því, að mér sé ekki ljóst, að kirkjur og söfnuðir eru fjárþurfa. En það, sem olli því, að ég var ekki fylgjandi frv. eins og það horfir við, er í rauninni sú stefna, sem kemur fram í flutningi og meðferð þessa máls á Alþ. og á sér nú orðið stað á svo mörgum sviðum, þar sem löggjafinn gerist eins konar fjárreiðumaður safnaðanna án þess að söfnuðirnir séu að því spurðir, hvort þeir telji þessa aðferð heppilega eða ekki. Ég hefði því álitið réttara, að kirkjustjórnin hefði sent til safnaða landsins fyrirspurn um það, hvernig þeir álitu, að réttmætt væri að bæta úr þessu, og leggja svo niðurstöðuna fyrir þingið. Þá finnst mér, að lagafrv. ætti rétt á sér.
Þegar hv. frsm. nefndi 2. gr. frv. og sagði, að það hefði verið fellt úr henni ákvæði, sem væri nauðsynlegt, þ.e. að einhverju af þessu gjaldi væri varið til almennrar kirkjustarfsemi í landinu, þá datt mér í hug allt argið og þvargið um búnaðarmálasjóð, þótt ólíku sé saman að jafna. Ég álít, að það þurfi nákvæma könnun um það heima fyrir hjá fólkinu sjálfu, hvaða aðferð henti, áður en lagasetning er gerð, og setja síðan l.
Þessa vildi ég láta getið sem meginatriðis. Ég hef ekki hugsað mér að verða meinsmaður frv., en vildi láta í ljós eins konar vanþóknun mína á aðferðinni í þessu máli, en málefnið sjálft er gott.