15.12.1947
Neðri deild: 33. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í B-deild Alþingistíðinda. (169)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það hefur nú verið rætt mikið um þetta mál, enda þótt hæstv. forsrh. hafi óskað eftir því að umr. yrðu stuttar. Þrátt fyrir það hafa einstaka ráðh. lagt lykkju á leið sína og farið að ræða um hluti, sem eru alls óskyldir því máli, sem hér er til umr. Næstur á undan mér talaði hér hæstv. utanrrh. Ég sé, að hann er ekki inni í fundarsalnum, en ég vildi eindregið mælast til þess, að hann væri hér viðstaddur, svo að ég fengi að sjá framan í hann, — eða er hann kannske farinn í felur? (Forseti BG): Ef hv. þm. beinir þessum tilmælum til mín, þá vil ég taka það fram, að það er ekki á mínu valdi, að ráðherrar séu í fundarsalnum. — EOl: Hæstv. utanrrh. er kannske kominn til Ameríku.) Jæja, hvað um það, ef hæstv. ráðh. getur ekki verið hér inni, nema meðan hann hreytir út úr sér svívirðingum, en þolir svo ekki að heyra ummæli sín hrakin með sannleikanum, þá mun ég snúast við því á viðeigandi hátt.
Ég verð að segja það, að mér þótti að sumu leyti vænt um, að hæstv. utanrrh. gaf mér tækifæri til að ræða við hann nánar um markaðsmálin og afskipti mín af þeim. — Ráðh. valdi þann kostinn að ráðast að mér í útvarpsumr., þar sem ég átti þess ekki kost að svara fyrir mig. Þar heldur hann því fram, að ég hafi brotið trúnaðartraust, sem mér hafi verið sýnt, og einnig heldur hann því fram þar, að ég sem einn úr samninganefndinni í Englandi hafi gert ákveðnar tillögur um, hvernig samningunum við England um sölu á fiski skyldi hagað. Ég skrifaði þetta niður eftir ráðherranum, svo að þar er ekki um að villast, en það er nú líklega svo komið með þennan hæstv. ráðh., að hann er búinn að skrökva svo oft að sjálfum sér, að hann veit ekki lengur, hvað rétt er. Þessi hæstv. ráðh. veit vel, að hvorki ég né nokkur annar úr ensku samninganefndinni gerðum nokkrar till. um það, hvernig samningunum við England skyldi hagað. Hann segir þetta því gegn betri vitund, hann hefur visvítandi sagt þetta ósatt um mig, því að það vill svo vel til, að ég hef í höndunum plögg, sem sanna mitt mál, og munu allir kannast við, að þar sé rétt skýrt frá, því að það liggur fyrir staðfest í fundargerðabók utanrmn. Hæstv. utanrrh. verður því nú að standa frammi fyrir þjóð sem opinber ósannindamaður. — Í fundargerðabók utanrmn. frá 10. apríl 1947 segir á þessa leið eftir Einari Olgeirssyni, með leyfi hæstv. forseta: „Hann kveðst álita rangt að binda samningana við Englendinga á grundvelli þeirra tilboða, sem nú lægju fyrir. Rétt væri að biða, þangað til ákveðnari svör bærust frá n. í Moskvu. Ef ríkisstj. hins vegar vildi nú ganga að brezku tilboðunum, kvaðst hann kunna betur við, þegar n. okkar yrði símað, að sérskoðun hans væri þar tekin fram.
Bjarni Benediktsson ... taldi óviðkunnanlegt að láta sérskoðun koma fram í skeyti til n. Hann gat þess að allir nm. væru sammála um, að það þýddi ekki að vera að semja lengur við Englendinga, ef ekki væri gengið að núverandi tilboði þeirra. Jafnframt gat hann þess, að nm. hefðu þó ekki gert neinar tillögur um tilboðin, enda væri það okkar hér heima að segja til um þau.“
Þannig er þetta þá bókað eftir Bjarna Benediktssyni sjálfum, en samt hefur hann þau ummæli, að ég hafi gert ákveðnar tillögur um, hvernig gengið skyldi frá samningunum. Sannleikurinn er sá, að nm. í Englandi var aldrei gefinn kostur á að segja sitt álit. Í lok þessarar fundargerðar segir enn fremur: „Niðurstaða fundarins varð sú, að leggja mætti þann skilning í þriðja tilboðið, að 5% bættust við lýsismagnið, þannig að það færi ekki fram úr 42% í heild. Vildi ríkisstj. helzt ganga að því tilboði, en annars skyldi gengið að fyrsta tilboðinu, með þeim skilningi, að hámark fiskimagnsins væri 12000 tonn og lýsis 18000 tonn, en þó ekki yfir 40% af heildarframleiðslu ársins 1947. Skyldi samninganefndinni falið að semja á þessum grundvelli.“ Þetta er hið sanna í málinu, að þrátt fyrir það að þetta er bókfest, ekki eftir mér eða Einari Olgeirssyni, heldur eftir Bjarna Benediktssyni sjálfum, þá leyfir þessi hæstv. ráðh. sér að prenta hið gagnstæða í Morgunblaðinu hvað eftir annað og halda því fram í útvarpinu. — Það er þess vegna mjög skiljanlegt, að maður, sem hagar orðum sínum eins og hann hefur gert, kjósi að hylja andlit sitt. Ef sómatilfinning hans væri eins og hún ætti að vera, ætti hann að hypja sig til baka úr embætti utanrrh. — eða hvernig finnst mönnum nú eftir allt þetta, þegar þessi maður hrópar að öðrum, að þeir séu lygarar? En ráðh. gerði meira en þetta. Hann rak mig úr n. og sagðist hafa ástæðu til þess, vegnu þess að ég hafi brotið trúnað, hann hefur þó aldrei getað sannað það, en haldið því fram, að ég hafi ekki verið við störf mín í n. og vanrækt þau. Þetta kemur mér undarlega fyrir sjónir, því að aldrei hefur nokkur maður í n. fundið að störfum mínum þar, enda var samstarf þar mjög gott, og aldrei komu neinar aðfinnslur frá ríkisstj., en í einu reiðikasti, sem minnir mig mikið á ákveðið dýr í moldarflagi, skrifar hann mér bréf, þessi hæstv. utanrrh., og rekur mig án þess að gera nokkra grein fyrir því, hvers vegna hann gerði það. En það mun koma í ljós betur, þegar afurðasölusamningarnir koma í ljós, að það var vegna þess, að ég mátti ekki fylgjast með samningagerðinni. — Með þetta mál hefur verið farið alleinkennilega. Enginn vissi neitt og enginn veit neitt um afurðasölumálin, þjóðin fær ekkert að vita, og þegar það kemur fyrir í umræðum, er aðeins sagt undan og ofan af. — Hæstv. utanrrh. sagði, að nú hefði gengið vel með afurðasölumálin, eftir að kommúnistar fóru úr ríkisstj. Ég veit af kynningu minni við þennan ráðh., að hann hefur næsta lítið með afurðasöluna að gera. Hann kann ekki að gera greinarmun á þorski og ýsu og veit harla lítið um það, sem hefur gerzt. Hann segir líka, að enginn sósíalisti hafi komið nálægt hollenzka samningnum. Hann er búinn að gleyma því, að þá var hann ekki búinn að reka mig, en ég var á heilum næturfundi með hollenzku samninganefndinni. Og nú er ráðh. að gorta af þessum samningi, sem hann veit ekkert um. En það er í stíl við annað hjá honum. — Enn er það nokkuð fleira í sambandi við afurðasölumálin, sem sýnir kjánaskap hæstv. ráðh. Hann segir, að afurðasölumálin standi nú þannig, að við getum ekki fengið ábyrgðarverð fyrir fiskinn, þess vegna þurfi að setja fiskábyrgðarlög, og að það séum við sósíalistar, sem viljum gera slíkt. Hér kemur að því sama. Hæstv. ráðh. veit ekkert, til hvers lagasetningar eru. — Ég hef bent á, að það hagar þannig til í bátaútveginum, að einungis vegna þess, að fyrirframsala væri ekki fyrir hendi, þá er svo komið launagreiðslum, að ekki verður hjá því komizt að hafa fastákveðið verð á fiskinum vegna óvissu um fiskaflann, og sala getur ekki farið fram fyrr en vertíð er lokið. En nú vill svo til, að búið er að gera fyrirframsölu fyrir næsta ár. Ríkisstj. hefur ekki skýrt frá þessu, en ég veit þó, að ákveðið er að selja Hollendingum 3000 tonn fyrir ábyrgðarverð og sömuleiðis til Tékka, en það stendur á ríkisstj. að skrifa undir þá samninga. Til Frakklands hafa verið seld 1000 tonn fyrir ábyrgðarverð, og til Finnlands hefur verið selt nokkuð fyrir ábyrgðarverð. Þar sem ég nú hef nefnt Tékkóslóvakíu og Finnland, sem keyptu lítið af okkur í fyrra og í ár, en búast við að kaupa meira á næsta ári, þá bendir það til þess, að hægt sé að fá a.m.k. ábyrgðarverð fyrir fiskinn. Enski markaðurinn hefur hækkað. Svo er sagt að ríkisstj. hafi gert samninga um sölu á 70000 tonnum til Þýzkalands. En mönnum er ekki sagt, á hvaða verði það er, en ef svo er, þá er um verðhækkun að ræða. — Svo vitum við, að síldarmjöl og fiskimjöl hefur selzt fyrir hærra verð en nokkru sinni fyrr og verð á lýsi fer hækkandi. — Þegar nú þessar staðreyndir liggja fyrir, skil ég ekki, hvernig menn fara að halda því fram, að nokkur hætta sé að fiskábyrgðarverðinu. Hvernig stendur nú á því, að hæstv. ráðh. kýs að dylja þm., hvernig ástatt er í þessum efnum, en heldur að þeim því, sem er rangt?
Ég skal nú ekki eyða miklu meira af ræðutíma mínum til að ræða við hæstv, dómsmrh., en hann gaf þó tilefni til að fara allmiklu nánar út í umr., að fara út í víðtækari umr. um málið. Hæstv. ráðh. kaus þann kostinn að ræða sem minnst um málið sjálft, en notaði mestan hluta ræðu sinnar til fullyrðinga um, að ég og hv. 2. þm. Reykv. væru á valdi erlendra ríkja. Hann sagði, að ekki væri hægt að starfa með sósíalistum, því að þeir væru fulltrúar erlends stórveldis.
Þannig var öll ræða hæstv. ráðh. En er hann talaði svo mjög um fulltrúa erlendra stórvelda, þá kom þar í ræðu hans, að ráðh. minntist á samninginn um Keflavíkurflugvöllinn, og þá hellti hann úr skálum reiði sinnar yfir okkur sósíalista fyrir afstöðu okkar í því máli. En hvernig stendur á því, að hæstv. dómsmrh. hugsar svo mjög til Keflavíkur? Hvað slær hann svo mjög, að Keflavík kemur sí og æ í huga hans? Stafar það ekki af afskiptum hæstv. ráðh. sjálfs af þeim samningi? Er það ekki hann, sem ber hvað mesta ábyrgð á afgreiðslu þess máls? Og því fer alls fjarri, að ég eða hv. 2. þm. Reykv. höfum sótzt eftir að vera skipaðir í nokkrar n. hjá hæstv. ríkisstj., en sannarlega er sú ríkisstj. aum, sem er hrædd við að hafa einn mann á móti fjórum — einn úr stjórnarandstöðunni í sambandi við framkvæmd mála. Hæstv. ríkisstj. er hrædd við að heyra, hvað þm. hugsa! Lýðræði stjórnarinnar er ekki meira en þetta. Stjórnarliðið er skelkað, ef einn af fjórum í n. er úr stjórnarandstöðunni. Það er reynt að hafa þá góða, en ef það tekst ekki, þá eru fulltrúar stjórnarandstöðunnar reknir.
Ráðherrar þeir, sem talað hafa hér um frv. þetta, virðast vera of góðir til að vera hér inni og hlýða á mál manna. Einn ráðh., hæstv. menntmrh., (EystJ), sem læzt ekki vera ókunnugur neinu, reyndi að sanna, að söluskatturinn í frv., sem aðrir ráðh. kalla veltuskatt, væri ekki sami skatturinn og hann barðist á móti, er fyrrv. ríkisstj. sat að völdum. Hæstv. ráðh. bölvaði fyrri skattinum, en vegsamar þennan. Ef hæstv. ráðh. væri hér viðstaddur, hefði ég gaman af að bera saman kaflana um söluskattinn og veltuskattinn og sanna honum, að söluskattskaflinn er nær orðréttur úr fyrri lögunum. Hér er jafnvel að finna sömu málleysurnar og í fyrra frv., en þær vilja nú oft slæðast inn í frv. hér á Alþ. Að vísu munar hæstv. menntmrh. ekki um að telja, að það. sem orðrétt stendur á tveim stöðum, sé ekki það sama. t.d. heiti þetta ekki veltuskattur, heldur söluskattur. Hæstv. ráðh. virðist nú hafa gleymt stóru orðunum, sem hann notaði um veltuskattinn. Sá skattur var þyngstur á þeim, sem lægsta höfðu álagningu. Þetta heldur ráðh., að hann geti breitt yfir með því, að breytt sé nafninu á skattinum. Veltuskatturinn kom hart niður á félögum neytenda, samvinnufélögunum, en nú er breytt til, þannig að söluskatturinn leggst yfir á bök fólksins og stórverzlunin sleppur. Ádeilur Framsfl. á veltuskattinn voru þær, að hann kæmi niður á viðskiptamönnum Sambandsins. Nú veltur söluskatturinn engu síður yfir á viðskiptamenn samvinnufélaganna, og er það lítil huggun eða málsbót, þótt nafni skattsins sé breytt úr veltuskatti í söluskatt. Þessi skattur lendir á öllum launþegum í landinu, en verzlunarstéttin greiðir ekki einn eyri í veltuskatt.
Það kom ekkert nýtt fram hjá hæstv menntmrh., er hann lýsti fjárhag ríkissjóðs. Þar er allt á höfði — allt á bólakafi, sagði ráðh. — allt á bólakafi í feninu. Þetta og þessu líkt hafa hv. alþm. heyrt fyrr koma af munni hæstv. ráðh. Þessi söngur hefur verið endurtekinn af honum um hver áramót, síðan ég kom á þing. Um hver áramót hefur Eysteinn Jónsson lýst yfir því, að ríkissjóður væri kominn á hausinn, og er þetta því ekkert nýtt. Hæstv. menntmrh. veit alltaf, að ríkissjóður er á hausnum, allt er á hausnum nema menntmrh. sjálfur.
Mér var sem fleiri þm. nokkur eftirvænting, að frv. þetta kæmi fram frá ríkisstj., en ógnarlítið var það, er það kom, eftir allt tal stjórnarliðsins um það. Eftir allt tal Eysteins Jónssonar og annarra ráðh. í ríkisstj. í 7 ár um dýrtíðarbölið, þá stæði víst ekki á þeim að laga þetta. En er farið er að reikna og teikna og breyta, þá fer nokkuð á aðra lund, svo sem þetta frv. sýnir. Það dylst engum manni, að frv. þetta mun aðeins leiða af sér aukna dýrtíð í landinu. Verðlag allt hækkar á nauðsynjum. Skyldi Eysteinn Jónsson verða svo grátt leikinn, að það verði hlutskipti hans að hækka dýrtíðina gífurlega með 40 millj. kr. tollum á nauðsynjavörum — og nú með þessu frv. að leggja 3.5% hækkun á þjónustu manna á milli? Ég hlakka til þess, er hann segir Sunnmýlingum frá þessu hlutskipti sínu í baráttunni við dýrtíðina. Þá verður hann nú ekkert lítill karl eftir allt þetta.
Hæstv. forsrh. sagði í framsöguræðu sinni, að þungamiðja frv. væri kaflinn um að binda vísitöluna í 300 stigum. Sá kafli frv. hefur þau áhrif, að hans sögn, að laun manna lækka um 5%, en er 10% bein launalækkun. Þetta er þungamiðja frv. Ég held því fram, að ekki sé verið að lækka verðlagið eða bjarga útgerðinni með þessu tiltæki. Nei, tilgangurinn var að lækka laun þeirra manna, sem lægst eru launaðir allra, mannanna, sem strita í illviðrum og kuldum. Séu laun þeirra skorin niður, þá er allt gott og blessað. Þetta var tilgangur ríkisstj., og hæstv. forsrh. lýsir hátíðlega yfir, að þungamiðja frv. sé launalækkun þessi. Ég veit það, að eftir að hér er hafizt handa. verður sömu vitleysunni haldið áfram sem áður að fullyrða, að launalækkun sé hið eina ráð til að lækka dýrtíðina og tryggja rekstur útvegsins.
Nú er rétt að athuga, hvernig frv. þetta kemur útgerðinni að gagni og ekki sízt þetta ákvæði um festingu vísitölunnar í 300 stigum. Rétt er að rifja upp, að aðalundirstaðan til að kveða dýrtíðina niður er að styðja og efla sjávarútveginn og halda uppi svo háu verði sjávarafurða sem unnt er vegna hinna stöðugu verðbreytinga á erlendum markaði. En hvað er nú að finna í þessu frv., sem er til hags útgerðinni? Lagt er til, sem í öðru frv., sem flutt er af okkur sósíalistum, að áframhald verði með fiskábyrgð. Hér er um að ræða sömu ákvæði og ríkisstj. hamaðist sem mest gegn og jós úr skálum reiði sinnar yfir þá menn, sem fylgdu Ákaverði á fiski, en svo var 65 aura verðið kallað í Morgunblaðinu. Nú kom þeim í koll þessi afstaða sín, því að þeir gátu ekki gengið fram hjá þessari ábyrgð. því hefur verið haldið fram, að til þess að lækka framleiðslukostnaðinn, þá þurfi að samræma amerískt og enskt verð, og er allt annað talið vera í pólitískum tengslum. Þessi samræming mundi nema 40–45 aurum. En þá sprakk ríkisstj. á því, að Ameríkuverðið var óglæsilegt. Og nú er ríkisstj. sammála um að ákveða verð fisksins. En inn í þennan kafla um fiskábyrgðina þarf nú að taka annað, en það eru kjötuppbæturnar á útflutt kjöt. Þar hefur fulltrúum kjötframleiðenda tekist að krækja sér í 7–8 millj. kr. úr ríkissjóði, en það er óskiljanlegt, hvernig á því stendur, að koma þurfti landbúnaðarvörunum inn í þennan kafla. Í þessu s:unbandi vil ég leyfa mér að minna á ákvæðin í 21. gr., þar sem útsöluverðið á kjöti er ákveðið af sérstakri nefnd, að sé sú gr. samþ., er verið að samþykkja að greiða margar millj. kr. til kjötframleiðenda. Það er hægt að fá kr. 4.50 fob., en ekki meir, það sýna skýrslur Landsbankans. Ef verðbætt er kjöt, þannig að bændur fái 10 kr. fyrir kg, er þegar búið að samþykkja að greiða þeim ákveðið verð fyrir afurðir þeirra. Útvegsmönnum er aftur á móti aðeins tryggt lágmarksverð, sem er ekki nokkur hætta fyrir ríkissjóð. Svona á að fara að. Það á að borga milljónir með útfluttu kjöti, en ekki einn eyri með útfluttum sjávarafurðum. Réttlæti væri að greiða tilsvarandi með útfluttum sjávarafurðum sem lagt er til að gert sé með landbúnaðarvörurnar. Þá gæti farið á annan veg. Ef 22. gr. frv. er athuguð nánar í framhaldi af þessu, sjá menn enn betur, hvert stefnir. Þar er tekið fram, að ríkisstj. sé heimilað að binda söluna á ýmsum sjávarafurðum, er ábyrgðarverð er ekki á, við sölu á öðrum vörum. M.ö.o., það er gefið, að ríkisstj. mun nota þetta ákvæði til að setja skilyrði um kaup á síldarmjöli, síldarlýsi, þorskalýsi, þannig að þetta sé bundið við sölu á frosnum fiski, saltfiski eða þeim fiskafurðum, sem minni eftirspurn er eftir. Með þessu er hærra verðið lækkað til að losna við þær sjávarafurðir, sem seljast með lægra verði eða undir ábyrgðarverði. Þetta þýðir fyrir sjávarútveginn, að skaðinn frá í ár verður endurtekinn. Áframhald gr. ber þetta skýrt með sér. Þar segir, að ef einhverjar vörur séu seldar á yfirverði, þá megi taka þann hagnað í ríkissjóð, þar til ríkissjóður hefur bætt greiðsluhalla sinn að fullu. Einnig er gert ráð fyrir, að taka megi greiðslur til að jafna halla á ábyrgðarlögunum frá í ár. Ef afurðirnar seljast allar yfir ábyrgðarverði, þá má taka af fiskverðinu til þess að borga upp þann halla, sem ríkið verður fyrir á þessu ári vegna fiskábyrgðarlaganna. Hæstv. ríkisstj. hefur reiknað með þessu. Sé það nú rétt, sem ég hef sagt, að útlitið sé þannig með sölu, að við náum ábyrgðarverði, þá þýðir þessi kafli að nafninu til ábyrgð á fiskverðinu, tekjur af sjávarafurðum og millj. kr. í greiðslur á útflutt kjöt. Þetta er rétt að útvegsmönnum. Þetta er talið fullgott handa þeim.
Það sýnir sig, að hæstv. stj. hefur lært fram á síðasta dag. Áður hafði hún „skrúplur“ í sambandi við 65 aura verðið, nú telur hún það ekki duga og að meira þurfi til. Þar af stafa ákvæði G5. gr. frv. Þau eru hlægileg, því að þau eru þegar til og því óþörf. Þau heimila stjórninni að ákveða verð á beitu, en það getur stjórnin gert nú. Samkv. þessum ákvæðum gelur stjórnin líka sett reglur um takmörkun beitunotkunar. Ef meiri hl. útvegsmanna kemur saman og samþykkir þetta og stjórnin skrifar upp á, þá á það að gilda. En þetta er í l., samþ. á síðasta Alþingi. Það er ákveðin n., sem hefur leyfi til að setja reglur um beitunotkun og hámarksverð á beitu. Af hverju tekur stjórnin þetta upp? Til þess að samþykkja eitthvað. (ÁkJ: Stjórnin veit þetta ekki.)
Þá er upp talið. Nei, eitt er enn. Ríkisstj. skal heimilað að taka lán allt að 3 millj. kr. til aðstoðar síldarútvegsmönnum, sem töpuðu s.l. sumar. Ég er sannfærður um, að þessi upphæð er ónóg, ef leysa á töpin. Það er að vísu til bóta, ef losa má bátana undan sjóveðum með því að veita þeim aðstoðarlán, en á flestum þeirra hvílir miklu meira, og stjórnin virðist ekki vita það. Flestir bátarnir og frystihúsin hafa ekki getað staðið í skilum með greiðslur af stofnkostnaði og orðið að greiða okurháa dráttarvexti. Þessi vanskil orsaka það, að útgerðin getur ekki hafið rekstur sinn, og í frv. er engin lausn á þessu.
Annað atriði, sem stjórnin vill gera mikið úr, er það, að lækkun vísitölunnar niður í 300 stig þýði sparnað fyrir útveginn. En hver er sá sparnaður? Fyrir bátaútveginn munar þetta engu, því að hann greiðir allt sitt í öðru formi, og mundi þetta ekki nema 1000 kr. á bát. Fyrir frystihúsin munar þetta meira, en mjög litlu, því að s. l. ár var meginframleiðslutímabilið miðað við vísitöluna 312–314, svo að hér væri aðeins að ræða um lækkun frá því niður í 300 stig. Hins vegar kom stjórnin á grunnkaupshækkun úr 2.65 í 2.80, svo að kaupgjald frystihúsanna er hærra en í fyrra. Svo hefur allur rekstrarkostnaður hækkað.
Í frv. er gert ráð fyrir að hækka verðlagið með 31/2% veltugjaldi, og þótt nokkuð af vörum útvegsins sé undanþegið, er þó allmikið ekki undanþegið gjaldinu. Það er því ljóst, að hafi bátaútvegurinn átt við erfiðleika að stríða síðustu vertíð og flest frystihúsin tapað, þá verða erfiðleikarnir enn meiri á komandi ári. Ef stjórnin lærir ekki á þessu, endar það með því, að þessir aðilar hætta rekstri og bátarnir standa ónotaðir.
Þá er að geta þess, að vextirnir, sem eru háir nú, verða hærri á næsta ári en þessu. Það á að hækka alla útlánsvexti. Þó að stjórnin dylji þetta. er það þegar svo gott sem samþykkt. Skuldirnar hrúgast upp, og upphæðirnar, sem greiða þarf vexti af, verða jafnframt meiri. Þó að það yrði tekið fram, að vextir af lánum út á veidda framleiðslu yrðu hinar sömu, þá hækka allir aðrir vextir, rekstrarlánin verða dýrari og erfiðara að standa undir vanskilaskuldunum, sem útvegsmenn hafa sökkt sér í.
Hæstv. forsrh. gerði samanburð á frv. okkar sósíalista og frv. stjórnarinnar. Hann fór þó skammt út í þann samanburð, og það var honum ef til vill hollast. Í frv. okkar sósíalista er að finna raunhæfar till., sem tryggja útgerðina á komandi ári og bæta hag framleiðslunnar. Þar er t. d. lagt til, að vextirnir verði lækkaðir verulega. Það er staðreynd, að bankarnir, sem lánin veita, hafa grætt gífurlega mikið. Samkv. skýrslu Landsbankans fyrir árið 1946 hefur hann grætt 14.2 millj. kr. Það eru því aðstæður til að lækka vextina, en það vantar viljann. Á sama tíma og frystihúsin borga 300 þús. kr. í vinnu borga þau 100 þús. kr. í vexti. Vaxtalækkun hjá þessum aðilum mundi því gerbreyta rekstrarafkomunni, og það er hægt. Meðalvextir hjá fiskibát eru um 40 þús. kr. Það mundi því breyta mikið afkomunni, ef þeir væru lækkaðir, en um það fæst ekki talað. Vextirnir eru heilagir, og þá má ekki stýfa, þótt launin séu stýfð og allir eigi að bera byrðarnar. vegna þess að slíkar ráðstafanir væru raunhæfar til úrbóta fyrir útveginn.
Í okkar frv. eru líka vátryggingargjöldin lækkuð um helming, eins og reynslan hefur sýnt, að hægt er að gera, en stjórnin er ekki til viðtals um það. Flestir borga nú í vátryggingargjald 6–8%, en á sama tíma er frjáls trygging komin niður í ,1%. Hvers vegna má ekki breyta þessu? Er það vegna þess, að það mundi spara 10 þús. kr. á ári fyrir hvern fiskibát?
Þess var ekki að vænta, að núv. stjórn mundi taka upp till. okkar sósíalista um að lækka verulega olíukostnaðinn. Hann er heilagur, en launin má lækka, þótt það gagni ekki útgerðinni. Máttarstólparnir, sem nú ráða ríkjum, mundu tapa. Ekkert má heldur gera til þess, að veiðarfæri og viðgerðarkostnaður lækki. Í frv. er hins vegar sett óákveðið þrugl um, að verðlagsyfirvöldin skuli lækka verðið á þessum vörum og öðrum til samræmis við niðurfærslu kaupvísitölunnar. Hvað halda menn t.d., að veiðarfæraverðið og olíuverðið muni lækka mikið af þessum ástæðum? Ég er viss um, að það verður óbreytt.
Þá má ekki heldur nefna þá till. okkar, að útvegsmenn fái kost á því að verzla sjálfir með nauðsynjavörur sínar. Þegar útvegurinn er í nauðum staddur, má ekki segja við þá aðila, sem nú hafa rétt til að hagnast á því að selja útgerðinni, að þeir fái ekki að græða á henni meir og verði að finna sér annað til lífsuppeldis. Þetta er bannað, samtímis því sem farið er fram á það við launþegana, að þeir færi fórnir.
Það mun sýna sig, að þjóðin mun hafa skaða af því, ef stjórnin tekur þá heimskulegu leið að hjálpa útveginum samkvæmt þessu frv., en svo heimsk mun stjórnin vera. Stjórnin hefur aðeins setið fáa mánuði, og allt er að fara um koll, en ráðstafanir hennar eru svo ófullnægjandi, að útvegurinn getur ekki við þær unað, og þær fela ekki í sér það, sem hann þarf á að halda nú.
Meðan stjórnin var á þeirri skoðun, að hægt væri að lækna allt með því að lækka launin, lét hún einn aðalspeking sinn og forsvarsmann í þessu máli reikna út, eftir að búið var að gera miklar breytingar á framtöldum skýrslum útvegsmanna, hvaða laun útvegurinn þyldi. Talnafræðingurinn reiknaði það út, að bátur, sem skilaði 30 þús. kr. tapi miðað við vísitöluna 312, yrði að fá vísitöluna lækkaða, ekki niður í 200 og ekki niður í 100, eins og hún var fyrir stríð, heldur niður í 32 stig. Þá var 117 kr. Hagnaður á bátnum. Þegar stjórnin sá þetta, þá rann það upp fyrir henni, að leiðin væri ekki sú að lækka launin, og rökin fyrir því runnu að verulegu leyti ár greipum hennar.
Nei, það er augljóst mál, að lækkuð laun og lækkuð vísitala kemur bátaútgerðinni að litlu gagni. Það, sem öllu skiptir fyrir útgerðina, er hagstætt verð og lækkun helztu útgjaldaliða, vaxta, vátrygginga, veiðarfæra, viðhaldskostnaðar, beitukostnaðar og olíukostnaðar. En þegar stjórnin guggnaði, vildi hún bara breyta einum lið, beitukostnaðinum. Kannske var það af því, að sjómenn sjálfir eiga beituna.
Það er misskilningur, að hægt sé að fara eins með sjómannastéttina og útvegsmenn og stjórninni virðist hafa tekizt að fara með hæstv. menntmrh., þegar hún stakk upp í hann snuði með því að kalla veltuskattinn söluskatt. Það er ekki hægt að fara þannig með útvegsmenn. Það nægir ekki til þess, að rekstur útvegsmanna hefjist.
Hæstv. forsrh. sagði, að till. stjórnarinnar væru raunhæfar og vel yfirvegaðar, en ekki flaustursverk, sem hann sagði, að till. kommúnista væru. Sannleikurinn er sá, að í frv. sósíalista er að finna þær einu leiðir, sem hægt er að fara fyrir bátaútveginn, en till. stjórnarinnar eru þrauthugsaður hégómi, sem ekki kemur að gagni.
Í frv. stjórnarinnar er ýmislegt að finna, sem tala mætti langt mál um. Þar er t.d. stórlega ráðizt á kjör sjómannastéttarinnar. Hæstv. menntmrh. valdi það ráð í sambandi við umr. um lækkunina til hlutarsjómanna að segja, að hv. 2. þm. Reykv. mælti gegn því, að skattfrelsi væri afnumið af hæstu tekjum. Það var ekki það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði. Hæstv. menntmrh. var ekki eins margorður um það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um þau lágmarkslaun, sem sjómenn hafa komið inn í síðustu kaupsamninga sína. Hæsta grunnkaup háseta er nú 610 kr., og við það bætist svo vísitöluuppbót. Með þessu frv. er beinlínis gengið á þessi lágmarkslaun., kauptryggingu sjómanna, þótt hún sé of lág og útvegsmenn hafi greitt hærra. En í frv. er bannað að greiða þeim svona háa lágmarkstryggingu. Heldur hæstv. ríkisstj., að þetta verði til þess að örva menn til að fara. út á bátana? Nei, þetta verður af þeim skoðað sem árás á kjör þeirra. Og það er það. Og hæstv. menntmrh. hefði ekki verið ýkja langorður um þetta atriði, ef hann hefði viljað taka það eins og hv. 2. þm. Reykv. benti á, eins og þetta atriði er. En hann kaus heldur að blanda því saman við allt annað atriði, sem hv. 2. þm. Reykv. var alls ekki að tala um, nefnilega skattfrelsi í sambandi við stríðsáhættuþóknun þeirra, sem sigla á milli landa. — Ég minntist þess líka, að ýmsir úr núv. hæstv. ríkisstj. höfðu talað alllangt mál um það, að nú væri illa komið fyrir togaraútgerð okkar, og sögðu, að þeir, sem reka togaraútgerð, sendu frá sér reikninga, sem sýndu verulegt tap á togaraútgerðinni, allt upp í 40 þús. kr. tap á hverjum einasta Englandstúr. Hvað er nú gert til þess, að rekstur togaranna stöðvist ekki? Ef það er rétt, sem togaraútgerðarmenn halda fram um rekstur togaranna, — hvað er þá gert til þess að bæta hag þeirra? Ég hef ekki fundið nokkurt atriði í þessu frv., sem miði að því að bæta útgerðaraðstöðu þeirra, sem talin er af ýmsum úr ríkisstj. vera mjög bág, — ekkert annað en það, að víða er minnzt á skattlagningu á þessa útgerð. Mér skilst, að togaraútgerðin fái ekkert annað með þessu frv. heldur en nýja skatta í hausinn. Menn verða að skilja þetta á þann eina veg, að það, sem menn hafa sent út um þetta og sagt hefur verið um þetta af hálfu togaraeigenda, og það, sem sagt er af hálfu hæstv. ríkisstj., um togaraútgerðina, sé uppspuni, misskilningur og vitleysa, en hins vegar sé hægt að nota togaraútgerðina enn sem myndarlegan skattstofn. Mér sýnist þetta skjóta svona allskökku við, og hefði farið betur, að hæstv. ríkisstj. hefði gefið þarna einhverja skýringu á.
Ég ætla svo að koma hér með nokkrum orðum að þungamiðju þessa frv., launalækkuninni á allt launafólk. Það er ljóst mál, að ákvæði þessa frv. miða að því að lækka laun launþeganna um um það bil 10%. Það þýðir, að fjöldi af launafólki í landinu mun þurfa að missa af launum sínum 2–3 þús. kr. Það er allmyndarlegur skattur á hvern einstakan. En hvernig horfir svo þetta ákvæði við samkv. núgildandi l.? Það hefur verið sett hér löggjöf, sem kölluð hefur verið vinnulöggjöf. Þessi vinnulöggjöf átti að veita stéttarfélögum og síðan vinnuveitendum ákveðinn rétt til þess að semja um launakjör sín á milli. Þessi lagarammi var fyrir hendi, að þessir aðilar mættu semja þannig um mál sín. — Nú þykir hæstv. ríkisstj. nauðsyn á því að ráðast inn á þennan rétt, taka hann til baka að allverulegu leyti, svipta þessa aðila samningsfrelsinu. Þeir mega ekki lengur semja um mál sín. Það verður að áliti hæstv. ríkisstj. að grípa fram fyrir hendurnar á þeim og meira að segja ógilda þá samninga, sem þessir aðilar hafa gert sín á milli. Og sú ógilding verður að teljast mjög einkennilega fram komin, því að ógildingin er gerð á þá lund, að ákveðinn þáttur í samningum þessara aðila er gerður ógildur, en mér skilst helzt af öllu, að önnur ákvæði í þessum samningum á milli þessara aðila eigi að vera í fullu gildi. Þegar stéttarfélag hefur samið við atvinnuveitanda um, að grunnlaun skuli vera svo og svo mikil og að á grunnlaunin skuli síðan greiða ákveðna vísitölu, þá er vitað, að grunnlaunin segja ekki allt í þessu máli og ekki vísitalan heldur, heldur bindur þetta hvað annað, eins og oft vill verða í samningum. Hvað hefðu menn sagt um þær aðfarir, ef tveir menn hefðu gert samning sín á milli, t.d. annar selt hinum hús og selt eignina með ákveðnu verði og ákveðnir greiðsludagar settir í samninginn á vissum dögum, en svo kæmi ríkisvaldið og gerði sér lítið fyrir og segði: Samningurinn skal vera í fullu gildi, en löggjafinn ætlar að strika út greiðsludaginn. — M.ö.o. sá, sem seldi, er skyldugur til að selja, en hinn þarf aldrei að borga, það hefur verið samþ. með l. — Svona aðfarir, að ráðast á gerða samninga, sem gerðir hafa verið samkv. l., og ógilda eitt atriði í sambandi við samningana, en láta hitt vera eftir, það er argasta gerræði, sem um getur verið að ræða. Miklu hreinlegra hefði verið en þetta að ógilda þá samninga, sem fyrir lágu. Ég skal ekki segja, hvernig á þetta verður litið af dómstólum. Það getur vel verið, að hér sé verið að gera það, sem ekki fær staðizt réttar lagareglur, og það yrði skoðað þannig fyrir dómstólum, þegar með svona inngripi af hálfu löggjafans er ákveðið í lagasetningu að ógilda samninga, sem hafa verið löglega gerðir, svo að grundvöllur samninganna sé þar með runninn út í sandinn, — það kann vel að vera, að þetta fái ekki staðizt, og það verður efalaust ár því skorið á sínum tíma. En það sjá allir menn, hvernig sem dómstólarnir kunna á það að líta, að hér er um alveg einstæða aðferð að ræða og mjög óbilgjarna. Og ef yfirleitt ætti að fara eftir svona leiðum hér eftir, þá er hægur eftirleikurinn, og það er ekki gott að segja, hvar numið yrði staðar í því efni. — Það hefur verið nokkuð af því gumað, að menn hefðu ákveðinn rétt til þess að gera samninga sín á milli. Eignarrétturinn er friðhelgur og rétturinn til athafna. Rétturinn til þess að græða peninga er yfirleitt ekki mikið skertur hér. En það þykir hins vegar við eiga að svipta menn á þennan hátt samningsfrelsi. — Ég verð nú að segja það, að þó að þannig hafi staðið á í þessu máli, að hæstv. forsrh. að persónulegum ástæðum hafi átt bágt með að stíga þetta skref til fulls, sem hér er verið að reyna að stíga, þó að gengið sé svolítið krabbalega í þessu, þar sem hann hafði áður farið úr ríkisstj. af þeim prinsip-ástæðum, að þá var sagt, að hann yrði ekki með í að lögleiða lækkun á launum og lögbinda grunnkaupið, — þá verður það, þó að ekki sé hér farin sú leið að lögbinda grunnkaupið, heldur að fitla við vísitöluna. aldrei fullnægjandi afsökun fyrir hæstv. núv. forsrh. Staðreyndin er sú, að hér er raunverulega um sama verknað að ræða í báðum tilfellum, aðeins undir mismunandi yfirskini. Hér er í raun og veru um það sama að ræða, sem hæstv. forsrh. er með í að gera nú, sem hann af prinsip-ástæðum fór áður fyrr úr ríkisstj. fyrir, vegna þess að hann gat ekki verið með í því þá, og hann miklaðist mikið af og flokkur hans d sínum tíma. Þá fór hann úr ríkisstj. vegna þess. að hann vildi ekki taka þátt í því að binda kaupið. En hér er verið að aðhafast það sama, sem hann áður fór úr ríkisstj. fyrir, af því að hann vildi ekki taka þátt í því. En nú er munurinn sá, að þessa atlögu gegn launþegasamtökunum í landinu á nú að gera undir forustu hans. Með sérstökum krókaleiðum er hér verið að ná því sama og áður, að ráðast að launastéttunum með því að lögbinda kaupið á þann hátt, sem gert er í þessu frv. Og svo er sagt við menn: Já, þið verðið að sætta ykkur við þessa launalækkun, af því að hér er byrðunum deilt niður á alla þjóðfélagsþegnana, hver fær sinn skammt, allir verða að bera byrðarnar. Jú, það er ekki um það deilt, að launþegarnir fá af þessum byrðum sinn skammt. En mætti ég spyrja: Hvað fá t.d. kaupmenn af þessum byrðum? Hvar eru gerðar ráðstafanir hér í þessu frv. til þess að minnka tekjur kaupmanna, sem sannarlega hafa margir hverjir haft drjúgar tekjur á undanförnum árum? Það er hvergi eitt einasta ákvæði í frv. um það, að álagning hjá þeim verði skorin niður. Álagningin á vörur hjá þeim á að haldast sú sama. Og söluskatturinn, sem lagður verður á, hann á að veltast að öllu leyti yfir á vöruverð, yfir á þá, sem kaupa vörurnar. Og því er það rétt, sem hér hefur verið fram tekið, að haldi kaupmenn og aðrir seljendur vara því áfram, sem allur landslýður veit, að þeir hafa gert í stórum stíl, að telja ekki rétt fram, þá auka þeir tekjur sínar með því að skjóta undan skatti af sinni veltu, og telja þannig ekki alla sína álagningu fram til skatts, heldur stinga þeir í sinn eigin vasa þessum söluskatti að þeim hluta, sem þeir draga undan í framtali nokkurn hluta af vörusölu sinni. Þannig lendir þá í vasa kaupmanna verulegur hluti af þessum söluskatti, sem átti að fara í ríkissjóðinn. Mér skilst því, að ákvæði þessa frv. miði fremur að því að auka tekjur kaupmanna en að leggja þeim nokkrar byrðar á herðar. Hvar er t.d. gert ráð fyrir því í þessu frv., að þeir fjölmörgu menn, sem stunda þá iðju að selja fasteignir, bíla og annað þess háttar, sem eftir er spurt, beri nokkrar byrðar? Einhverjar tekjur hafa þessir menn af starfa sínum. Eru þeir látnir bera þessar byrðar, sem í frv. eru lagðar á launamenn? Eru laun þessara manna lækkuð um 10% eða meira, eins og rétt hefði verið? Nei, ekkert í þessu frv. miðar í þá átt að minnka tekjur þessara manna, enda mun reynslan sýna, að tekjur þeirra fara ekki minnkandi, heldur stórvaxandi. A-möguleikarnir fyrir brask, sölu á eignum aftur og fram, munu stóraukast. — Ég tók eftir því hér í frv., að það stóð hér í grg. frv. á þessa leið: Einnig eru settar skorður við því, að hluthöfum í hlutafélögum sé greiddur óhæfilegur arður af bréfum sínum. — Það skyldi þá ekki vera, að skorðurnar hafi gleymzt heima, því að þær er ekki að finna í frv. sjálfu, þó að talað sé um þær í grg., enda hefur mér skilizt, að það, sem hér hafi aðallega verið um að ræða, sé, að það hafi frá einhverjum í ríkisstj. einhvern tíma komið fram einhverjar till. um að setja einhverjar skorður við þessu, en svo hafi meiri hl. þessarar réttlátu ríkisstj. álitið, að ekki vari réttmætt að neita mönnum um að fá óhæfilegan arð af hlutabréfum sínum, og svo hafi ákvæðið, sem um þetta hafi verið hugsað að setja í frv., verið fellt burt og þar ekki látið standa, en gleymzt að fella þetta burt úr grg.? Og ég veit, að hæstv. ríkisstj. þykir leitt, að þetta komst upp á þann hátt, að þetta skyldi standa í grg., þó að ekkert sjáist um það í frv. sjálfu, enda er það leyfilegt samkv. þessu frv. að halda áfram að greiða óhæfilegan arð af hlutabréfum. Það er sem sagt ekki bannað að græða enn þá. Þeir, sem tekjur sínar taka af gróðafyrirtækjum, mega hækka tekjur sínar aftur um 10% eða meira til, mega sem sagt græða meira en áður. En launþegar fá sinn skammt með 10% launalækkun.
Hér hefur verið minnzt á vextina. Þeir, sem fá vexti af eignum sínum, eiga að fá hækkun, því að vextir eiga að hækka á næstunni, og það er þegar búið að ákveða það, svo að menn sjá nú, að þessum byrðum, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., er sannarlega misskipt niður. Sumir fá að bera þær í fullum mæli, þ.e. þeir, sem allur leikurinn hefur staðið um að undanförnu að reyna að koma í skotfæri. reyna að handsama, reyna að framkvæma launalækkun hjá, sem barátta ríkisstj. hefur staðið við í sambandi við allar launadeilur, sem ríkisstj. hefur látið til sín taka, þessir menn fá fullkomlega sinn hlut af byrðunum, eða réttara sagt, þeir fá nálega allar byrðarnar, en hinum er yfirleitt sleppt og þeir fá að leika lausum hala, þó að þeir, sem fá 10% launalækkun með festingu vísitölunnar, fái auk þess sinn skammt með hækkandi vöruverði og þar með aukna dýrtíð.
Ég hefði haft gaman af því að mega spyrja hæstv. ríkisstj. um ýmis atriði hér í þessu frv. og í tilefni af ýmsum ákvæðum þess. Ég ætlaði að gera það hér, en ég býst við, að það verði að bíða, þar sem nú er komið langt fram á nótt og hæstv. ríkisstj. hefur valið þá leið að kasta hér fram frv. að stórum lagabálki og neita mönnum um sæmilegan tíma til að lesa frv. yfir, áður en það er tekið til 1. umr., og svo ætlar hæstv. ríkisstj. að hespa af aðalumr. um málið strax á einni nóttu. En þrátt fyrir þetta hefði ég gaman af að spyrja hæstv. ríkisstj. um ýmis atriði varðandi þetta merkilega plagg. — Því hefur nú verið haldið fram hér — og ég skal ekki véfengja það, það er að ýmsu leyti rétt —, að rétt væri að afnema þau skattfríðindi, sem sjómönnum hafa verið veitt í sambandi við áhættuþóknun. Það er rétt, að sérstaklega hjá sumum yfirmönnum á togurum hafa þessi skattfríðindi verið allmikil. En þau voru líka veitt á sínum tíma af eðlilegum ástæðum, og þá var þeim sannarlega ekki of gott að fá að njóta þessara fríðinda. En nú á að afnema þau gagnvart þessum mönnum. Látum nú svo vera. En það eru bara fleiri, sem hafa skattfríðindi heldur en í þessum efnum, og það hefur ekki þótt þurfa að afnema þau. Ég minnist þess t. d., að alloft hefur verið á það minnzt hér í þinginu, að hlutafélög ýmiss konar, sem eru hrein braskfélög, njóta sérstakra skattfríðinda, sem t. d. einstaklingar njóta ekki. En það hefur ekki þótt ástæða til þess nú að afnema þessi sérstöku skattfríðindi. Nú t.d. er það þannig, að kaupmaður, sem rekur verzlun og býr út utan um þessa verzlun hlutafélag, má Leggja 20% af nettóhagnaði sínum í varasjóð, og þessi upphæð er skattfrjáls. En hins vegar, ef það hefði verið einstaklingur, sem hefði rekið verzlunina, en ekki hefði verið búið til hlutafélag um hana, þá hefðu allar nettótekjur þess manns komið til skatts. Svona hafa hvers konar gróðabrasksfélög myndað utan um sig gervihlutafélög, og það einmitt þau fyrirtæki, sem mest græða, svo sem bíóin, verzlanir ýmsar og húsabraskarar. Þeir, sem reka þessi gróðafyrirtæki, hafa myndað gervihlutafélög utan um braskið og hafa þannig fengið og fit þannig veruleg skattfríðindi. Hvers vegna eru þessi skattfríðindi nú ekki afnumin — því að við þeim er ekki hreyft í þessu frv., þó að það þyki sjálfsagt að afnema skattfríðindi þeirra, sem vinna á togurunum okkar og hafa háar tekjur? Ég skal ekki mæla á móti því, að ástæðan fyrir því, að þessir tekjuháu menn á togurunum fengju þessi skattfríðindi, er að verulegu leyti horfin. En það eru fleiri aðilar, sem hafa skattfríðindi og jafnvel í enn ríkari mæli en þessir sjómenn, og það hefur ekki þótt þörf á því að strika þau skattfríðindi út. Hver er ástæðan til þess, að hæstv. ríkisstj. hefur ekki séð ástæðu til þessa?
Í 14. gr. frv., þar sem talað er um það, að veita eigi þeim, sem vinna fjarri heimilum sínum, þá undanþágu, að ekki skuli telja til skattskyldra tekna þeirra fæðishlunnindi, sem þeir kunna að hafa hjá atvinnurekanda, þar er þetta þannig orðað, að þessara hlunninda eiga aðeins svo nefndir forsjármenn heimila að njóta, aðrir mega ekki njóta þessara hlunninda. M.ö.o., að piltur t.d., sem er á heimili foreldra sinna og er á fiskiskipi eða vinnur á annan hátt fjarri heimili sínu og verður þar af leiðandi fyrir miklum aukaútgjöldum í sambandi við fæðiskaup sín, má ekki fá að njóta neins frádráttar í sambandi við þetta ákvæði, heldur aðeins forsjármaður heimilis. Ég sé ekki nokkurt einasta vit í þessu. Ef það á að veita þessi hlunnindi á annað borð, þá er sjálfsagt að veifa þessi hlunnindi öllum, sem hér eiga hlut að máli, sem vinna þannig fjarri heimilum sínum, hvort sem eru forsjármenn heimila eða ekki.
Í 15. gr. frv. er talað um það, að um leið og vísitalan er fest í 300 stigum, þá eigi verðlagsyfirvöldin að gera ráðstafanir til þess, að gjald fyrir ýmiss konar verðmæti og þjónustu verði fært til samræmingar við niðurfærslu á vísitölunni. Í þessu efni er m.a. minnzt á það, að við verðlagningu hér eftir á rafmagni í ýmsum bæjarfélögum og enda sveitarfélögum eigi að taka tillit til þessa, og að vinnulaunakostnaður í sambandi við sölu rafmagns o.þ.h. eigi að lækka sem nemur hinni almennu launalækkun og þannig eigi síðan útsöluverð rafmagns að lækka nokkuð á þennan hátt. Ég sé í hendi mér, að þetta verður með öllu óframkvæmanlegt. Öll sú þjónusta og það kaupgjald, sem hér er um að ræða, er með öllu óútreiknanlegt. Og það yrði deiluefni í langan tíma að gera það upp, hve mikill hluti af verði, t.d. á rafmagni og viðgerðum í sambandi við það, er vinnulaun og hve mikill hluti er annar kostnaður. Nú væri vitanlega tilhneiging þeirra, sem selja þetta, að telja vinnulaunin sem allra minnstan hluta kostnaðarins, til þess að heildarlækkunin yrði sem allra minnst. Það er augljóst mál, að þetta er óframkvæmanlegt, enda ekki ætlazt til þess, að þetta hreyfi verðlagningu á þessum hlutum, svo að neinu nemi. En ef ætti að reyna þetta, hvernig yrði þá háttað með verðlagningu á ýmsum þessum hlutum, eftir að þessi fyrsta niðurfærsla hefði farið fram? (Ætli hæstv. forseti vildi ekki sjá til þess, að þessir hv. þm., sem eru í hliðarherbergi, kæmu inn í salinn eða þá lokuðu að sér?) — Já, ég ætlaði að spyrja um það, hvernig háttað yrði með verðlagningu á rafmagni eftirleiðis. Verðlagning á rafmagni úti um land hefur, svo að mér hafi verið kunnugt, ekki verið bundin við verðlagsyfirvöldin, heldur hafa viðkomandi bæjar- og sveitarstjórnir fengið að breyta rafmagnsverði sínu eftir því, sem þeim hefur þótt þurfa í sambandi við rekstur sinn. Ef nú t.d. á einhverjum stað ætti að breyta rafmagnsverði þannig að færa það nokkuð niður og svo liðu nokkrir mánuðir og viðkomandi rafveitu teldi sig þurfa að hækka rafmagnsverðið, eins og rafveitur hafa oft talið sig þurfa að gera. — hver á þá að sjá um, að þessari hækkun verði stillt í hóf? Engin ákvæði eru í þessu frv., sem veiti verðlagsyfirvöldunum rétt til þess að hafa áhrif á verðlag á rafmagni og öðru slíku, sem fólk á við að búa víðs vegar annars staðar en í Rvík, enda er ég viss um, að í framkvæmd yrði þetta þannig, að þetta yrði aðeins lagabókstafur, sem reyna á með að gylla fyrir mönnum ákvæði þessa frv. um, að það eigi að lækka verð á einhverri þjónustu og það í þeim tilgangi, að menn geti þá frekar sætt sig við þá launalækkun, sem í ákvæðum frv. felst á ýmsa lund, þó að það hafi ekki verið ætlunin að framkvæma í þessu atriði, hvað rafmagnsverðið snertir, nokkra lækkun.
En þá er líku í 15. gr. ákvæði um það, að húsaleigun. skuli gera ráðstafanir til að lækka húsaleigu um 10% í nýjum húsum eða húsum, sem reist eru eftir árslok 1941, svo og í eldri húsum, þar sem húsaleigusamningar eru gerðir eftir árslok 1941. það er nú kunnugt, að mikill hluti af þessari hæstu húsaleigu er meira og minna dulbúinn, þar sem sá, sem leigt hefur húsnæðið, er neyddur til að borga fyrir fram leigu í stórum stíl, svo að þetta ákvæði getur aldrei orðið raunhæft. Auk þess er sagt til þess að punta upp á frv.: „Ákvæði þetta skerðir í engu vald húsaleigunefnda samkvæmt gildandi lögum til niðurfærslu húsaleigu.“ Það væri nú vissara að vald húsaleigun. yrði ekki skert til þess að lækka húsaleigu. Hvenær hafa húsaleigun. lækkað húsaleigul. Og það hefur ekki heldur verið ætlazt til þess. Nú er gott að nota þetta upp á punt, að áfram skuli standa í gildi vald húsaleigun., þar sem þeim þykir við þurfa. Nei, auðsætt er, hvert stefnt er með þessu. Húsaleiga mun geta farið hækkandi, eftir að þannig hefur verið á málunum haldið, að þrengt er mjög kosti manna til þess að byggja yfir sig og þannig aukin eftirspurn eftir húsnæði. Og hvað sem segir í frv., munu húseigendur hafa sömu aðstöðu og hingað til til þess að hækka húsaleiguna, enda þótt reynt sé að gylla það fyrir mönnum hér í þessu frv., að ætlazt sé til þess, að húsaleigan lækki. Eða hvernig hugsar stjórnin sér að koma þessu fram?
Þá eru einkennileg ákvæði í frv. þessu í 16. gr., þar sem talað er um verðlag landbúnaðarins. Ég lít nú þannig á þetta frv., að vel hefði mátt kalla það frv. til stuðnings við landbúnaðinn. Í 16. gr. er ekki skorið niður við ákveðna tölu. Þar er sagt á þessa leið:
„Framleiðsluráð landbúnaðarins skal, þegar er lög þessi hafa tekið gildi, verðskrá landbúnaðarvörur af nýju. Skal þá við það miða, að laun þeirra, er að framleiðslunni vinna, bænda og annarra, haldist í sama hlutfalli við laun þeirra stétta, sem við var miðað við verðákvörðun varanna sumarið 1947, þangað til ný landbúnaðarverðlagsvísitala hefur verið ákveðin samkvæmt lögum nr. 94/1947, um framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl“
Hver skilur svo þetta? Þeim er sjálfum fengið framkvæmdarvaldið í þessu, og setja á nýtt verð, miðað við það, sem telja verður sæmileg launakjör fyrir bændur eftir þeim launagrundvelli, sem miðað var við s.l. sumar, en sem kunnugt er, var mikill ágreiningur milli fulltrúa neytenda og fulltrúa bænda um það, hvaða samræmi væri í þessu efni. Hér er ólíkt öðruvísi farið með bændur en með aðra. Bændur gætu komið af stað nýrri hækkun. Og hvernig stóð á því, að valin var þessi leið, sem er í 16. gr., en ekki sama leið og hjá öðrum þjóðfélagsþegnum? Af hverju mátti ekki binda verð þeirra fast, þangað til þessi nýi grundvöllur er fenginn? Nei, sennilega er það svo, að Framsfl., sem lét kúga upp á sig veltuskatt, þó að menntmrh. kalli það söluskatt, en ekki veltuskatt, því að vitanlega skammast þeir sín fyrir hann. — Framsfl. þurfti að fá blóm í staðinn. Fyrir það fengu þeir útflutningsuppbætur á kjöt og gærur meiri en allar uppbæturnar á sjávarútvegsafurðirnar. Það má í þessu efni segja, að framsóknarmenn hafi staðið sig nokkuð vel fyrir sína umbjóðendur. Ég býst samt við því, eins og þessi mál liggja fyrir, þá verði landsmenn litlu ánægðari með þetta plagg, þótt svona sé á haldið í þessu efni.
Það er fleira en þetta, sem ástæða væri að spyrja um, en ég skal ekki fara út í það að sinni. Ég vil að lokum benda á, að það, sem ætti að vera uppistaða þessa máls, baráttan gegn dýrtíðinni og verðbólgunni, hefur tekizt þannig til, að það verða ráðstafanir til að hækka allt verðlag í landinu, til þess að menntmrh. geti haldið áfram sínu heilaga stríði við verðbólguna og talað um hana í tíma og ótíma. Svo er hitt, að stuðningurinn við útveginn er þannig, að það verður til þess að draga hann stórkostlega niður og minnka framleiðsluna. Á hinn bóginn er svo samþykki. talsverð launalækkun á alla launþega, þannig að búast má við, að af þessu hafi stjórnin ekki nema skömm eina. Launþegar sætta sig ekki við slíkar ráðstafanir. Þeir hafa sýnt það áður, að þeir láta ekki beita sig ofbeldi, og munu taka þetta til athugunar og haga gerðum sínum þar eftir. Það hefur orðið ljóst í umr. um þetta mál, að það frv., sem hér liggur fyrir, er til þess fallið að auka dýrtíðina, en það er fyrst og fremst árás á launakjör almennings í landinu.