11.11.1947
Efri deild: 17. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)

43. mál, búnaðarmálasjóður

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Ég sé ekki ástæðu til að tala meira um þetta. Það getur orðið við 3. umr. eitthvað. En eins og málið liggur nú fyrir, þar sem flm, till. hefur tekið hana aftur til 3. umr., álít ég liggja næst að ljúka umr. Það er búið að tala svo mikið um þetta, en atkvgr. er ekki hægt að hafa núna, eins og forseti sér.

Hv. l. þm. N-M. (PZ) skýrði svo nákvæmlega frá því með dæmum, hvernig færi, ef brtt. yrði samþ., til hverra vandræða það horfði, að ég get hugsað, að hv. 2. þm. Árn. sjái það, að hann verður að ganga af þessu fóstri sínu dauðu og reyna að betrumbæta till. sína.