15.12.1947
Neðri deild: 33. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (BG):

Forseti gerir það að till. sinni, að ræðutími verði takmarkaður. Umr þessi hefur þegar staðið í allt að átta stundir og virðist vera orðin alllöng. Einnig er alllangt liðið á nóttu.

Till. um það, að ræðutími hvers hv. þm., sem kveður sér hljóðs, verði ákveðinn 10 mínútur, verður borin undir atkv. hv. þd.