27.02.1948
Efri deild: 70. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)

142. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur rætt þetta mál og sent það til umsagnar til stjórnar Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum, og er svar stjórnarinnar birt sem fskj. með nál. á þskj. 381. — N. lítur svo á, að lögin um vátryggingarfélög fyrir fiskiskip eigi að ná til allra skipa, enda mun það hafa verið hugsun löggjafans á sínum tíma, því að bráðabirgðaákvæðin um Vestmannaeyjar eru sett með það fyrir augum, að samræma megi þessi mál innan skamms. Það hefur enn ekki tekizt, og undanþágan fyrir Vestmannaeyjar hefur verið framlengd árlega. En n. lítur svo á, að stefna beri að því að samræma þetta. Eftir því, sem n. hefur fengið upplýst, munu tryggingargjöld í Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja vera lægri en hjá öðrum bátaábyrgðarfélögum, þar með og talin endurtryggingargjöld, en hins vegar mun matið á skipunum og bótaskyldurnar ekki að öllu leyti sambærilegt. Enn fremur er upplýst, að það hefur verið erfiðleikum bundið að fá bátaábyrgðarfélagið til að taka við öllum skipum til ábyrgðar, sem þeim var jafnvel skylt að gera, og munu dæmi til þess, að þau skip hafi orðið að leita til Samábyrgðarinnar. N. þykir rétt, að samræma beri starfsemi þessara aðila, þannig að fullt tillit verði tekið til hagsmuna heildarinnar annars vegar og sérstöðu Vestmannaeyja hins vegar, og í trausti þess, að það verði gert, þá hefur n. lagt til, að frv. breytist þannig, að 1. gr. orðist svo: „Í stað orðanna „til ársloka 1948“ í bráðabirgðaákvæði komi: til ársloka 1949, — en 2. gr. leggur n. til, að falli niður. Er þá ætlazt til þess, að viðkomandi aðilar hafi 2 ár til að skipuleggja málið og koma á samræmi um allt land. — Ég vil benda á, að lögunum hefur verið breytt nýlega og vátryggingarsvæðin stækkuð að mun, og enn fremur hefur verið ákveðið, að ríkissjóður leggi fram 11/2 milljón kr. til Samábyrgðarinnar. Bendir þetta allt til þess, að þetta eigi að vera aðalábyrgðarfélagíð í landinu, og því er ekki eðlilegt, að starfsemin sé klofin sundur. — N. leggur því til, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem um getur á þskj. 381.