02.03.1948
Neðri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur sent frv. þetta vitamálastjóra til umsagnar, og hefur vitamálastjóri tjáð góð skilyrði til lendingarbóta, en hins vegar er erfitt að segja um, hverjar framtíðarkröfurnar verða. N. var sammála um að mæla með, að frv. verði samþykkt. Þá hefur verið vísað til n., hvort fært þætti að setja sérstök hafnarlög fyrir Reykjavík, en n. hefur ekki séð sér fært að samþykkja það. Með l. nr. 29 1946, um lendingarbætur, voru felld niður ýmis ákvæði úr fyrri 1. um þetta efni og þar á meðal sérákvæði um Reykjavík, og sér n. ekki ástæðu til að setja það inn aftur. Þó að þetta frv. um Reykjavíkurhöfn, sem er 121. mál, sé borið fram sem sérstakur lagabálkur, þá er meginhluta þess að finna í hafnarlögunum. Það eru einkum tvö atriði, sem Reykjavíkurbær vill fá lögfest, í fyrsta lagi sjóveð fyrir hafnargjöldum, í öðru lagi undanþágu fyrir Reykjavík frá 4. mgr. 9. gr. l. nr. 29 1946. Fyrra atriðið hefur áður verið í l., en var fellt niður og lögtök látin nægja fyrir hafnargjöldum. Það er töluvert vandamál og varbugavert að leggja sjóveð á skip fyrir fleiru en brýn nauðsyn er til. Þegar fjárþörf er mikil fyrir útveginn er venjulega eina leiðin að fá lán út á veð í skipinu, en það verður að sjálfsögðu miklu erfiðara, ef margs konar lögveð eru fyrir. Það er sjálfsagt óhjákvæmilegt, að sjómenn hafi lögveð fyrir kaupi sínu. Sömuleiðis mun vera með tryggingariðgjöld, en þetta sýnist líka vera nægilegt. Eins og nú er, hefur hafnarsjóður lögtaksrétt fyrir hafnargjöldum, og eftir þeirri reynslu, sem ég fékk í þau fjögur ár, sem ég hafði með þessi mál að gera á Siglufirði, en það mun vera næstmest notaða höfn á landinu, þá tel ég lögtaksréttinn nægilegan. Það var hverfandi litið, sem tapaðist. Öll erlend skip verða að afhenda skilríki, og við afhendingu eða afgreiðslu þeirra er auðvelt að innheimta hafnargjöld. Þetta gerir því hvorki til né frá hvað snertir erlend. skip. Það eru því aðallega fiskiskipin, sem um er að ræða, en eins og nú er ástatt með útvegun rekstrarfjár til útvegsins, gæti aukning á föstum lögveðum í fiskiskipunum skapað útvegsmönnum mikla erfiðleika, því að slíkt hefði í för með sér enn meiri erfiðleika við að fá rekstrarfé hjá bönkunum en nú er.

Hins vegar held ég, að það sé ekki ástæða til að ætla, að hafnargjöldin tapist, og tel þar af leiðandi, að þetta væri mjög misheppnuð ráðstöfun, sem einungis hefði í för með sér aukna erfiðleika fyrir útveginn. Vegna þess, að þetta mál er svo fast sótt, væri fróðlegt að vita, hvað hafnarsjóður Reykjavíkur hefur tapað miklu á því að hafa ekki lögveð fyrir hafnargjöldum. En sé þetta tap svo mikið, að það sé nauðsynlegt að fá þessa breytingu fyrir hafnarsjóð Reykjavíkur, þá sjá allir, að það er ekki síður nauðsynlegt fyrir aðrar hafnir á landinu, sem allar hafa miklu erfiðari aðstöðu. Sem sagt, n. vill ekki mæla með þessari breytingu, því að hún telur, að það hafi óhagræði og truflun í för með sér fyrir útveginn, og sér heldur ekki ástæðu til að veita hafnarsjóði Reykjavíkur sérréttindi í þessu efni.

Um hitt atriðið er það að segja, að nokkur vafi hefur leikið á því í framkvæmdinni, hvað væru sambærileg mannvirki. Þeir, sem fylgdust með setningu l. nr. 29 1926, minnast þess líka, að nokkur ágreiningur var um þetta atriði. Sumir vildu láta hreppsfélögin njóta góðs af bryggjum einstaklinga, sem notaðar væru, og fá með því fé í hafnarsjóð, en niðurstaðan varð sú, að ekki má taka bryggjugjöld né gjöld af vörum, sem um einstaklingsbryggjur fara, í hafnarsjóð, fyrr en hafnarsjóður hefur komið upp sambærilegum mannvirkjum til afgreiðslu skipa. Nú mun í þessu sambandi hér vera átt við olíubryggjurnar í Skerjafirði, og þó að þær séu í sjálfu sér góðar, þá virðist það langt sótt, að hin fullkomnu hafnarmannvirki Reykjavíkurhafnar séu ekki sambærileg. Hins vegar má vel vera, að rétt væri að taka af öll tvímæli um þetta atriði og setja í staðinn fyrir „sambærilegu mannvirki“ í greininni: hafnarmannvirkjum, — þannig að þetta hljóðar svo: „Nú eiga einstaklingar eða félög hafskipabryggju innan hafnarsvæðis, og má þá ekki taka í hafnarsjóð bryggjugjöld né gjöld af vörum, sem um þær bryggjur fara, fyrr en hafnarsjóður hefur komið upp hafnarmannvirkjum til afgreiðslu skipa, enda er eigendum slíkra mannvirkja óheimilt að taka gjöld af vörum, sem fara um bryggjur þeirra, nema samþykki hafnarstj. komi til.“ Og þar með er tekinn af allur vafi um það, að hver höfn, sem kemur upp hjá sér hafnarmannvirkjum, getur tekið gjöld af bryggjum einstaklinga, ef skip eru afgreidd þar. Þannig er öðru atriðinu í frv. um Reykjavíkurhöfn fullnægt.

Ég fyrir mitt leyti hefði helzt kosið, að 4. mgr. hefði verið felld niður, af því að ég tel hana óeðlilega. Hins vegar gat ekki orðið samkomulag um það í n., en það varð samkomulag um þessa lausn málsins. En þessi 4. mgr. 9. gr. tekur ekki, að mig minnir, nema til eins hreppsfélags á landinu, og ég veit ekki til, að frá því hafi komið beiðni um að breyta þessu ákvæði. Það sýnist því ekki vera ástæða til þess að gera till. um breyt. á því, fyrr en slíkt lægi fyrir.

Það er samkomulag innan n. að fullnægja óskum Reykjavíkurbæjar, að ekki leiki neinn vafi á því, að bærinn geti tekið vörugjald af vörum, sem fara um bryggjur einstaklinga.

Frá hendi sjútvn. ber að skoða þetta nál., sem hér liggur fyrir, sem afgreiðslu frá n. á frv. um Reykjavíkurhöfn. Og hefur n. að svo komnu máli ekki tekið aðrar ákvarðanir um það frv. Hins vegar, ef koma eindregnar óskir um það, að málið verði afgr. frá n. sérstaklega, þá mun n. taka það til athugunar og gera sínar ályktanir.