02.03.1948
Neðri deild: 67. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1761)
85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Nokkru fyrir jól fluttu sex þm. Reykv. ásamt mér frv. til l. um Reykjavíkurhöfn. Þessu frv. var síðari hluta janúarmánaðar vísað til hv. sjútvn., en hún hefur ekki komið því í verk að skila áliti um frv. Hins vegar hefur hún skilað áliti um frv., sem hv. þm. V-Húnv. flytur um lendingarbætur í Hindisvík á Vatnsnesi. Og má skilja það á nál., að það eigi jafnframt að vera nál. um frv. um Reykjavíkurhöfn.
Ég vildi nú út af þessu beina þeirri beiðni til hæstv. forseta, að hann taki sem fyrst frv. til l. um Reykjavíkurhöfn á þskj. 214 á dagskrá, því að vitanlega er ekki til þess ætlazt, að ein n. leggist þannig á mál, að hún geri það að verkum, að það sé alls ekki tekið á dagskrá framar. Vitaskuld er það skylda n. að skila sérstöku nál. um þetta mál. Og afsökun hv. frsm., sem n. hefur borið við, hefur ekki við rök að styðjast.
Ég mun að sjálfsögðu geyma að ræða um frv., þar til það verður tekið til 2. umr., og fer ég því ekki út í það að svara hinni löngu ræðu hv. frsm. n., sem gerði frv. um Reykjavíkurhöfn að aðalefni ræðu sinnar, sem raunar átti að vera um frv. um lendingarbætur í Hindisvík á Vatnsnesi.
Ég tel þó rétt í þessu sambandi að geta þess, að þetta frv. um Reykjavíkurhöfn er flutt að einróma beiðni hafnarstjórnar Reykjavíkur, vegna þess að með hinum almennu hafnarl. var Reykjavíkurhöfn svipt vissum réttindum, sem hún hafði haft áður, en það er lögveðsréttur, og auk þess rétti til þess að innheimta gjöld af bryggjum eða öðrum mannvirkjum, sem eru í eigu félaga eða einstaklinga. Frv. er því flutt til þess að fá leiðréttingu á þessu.
Reykjavíkurhöfn hefur þegar beðið nokkurt tjón vegna þess, að lögveðsrétturinn var af henni tekinn, og ummæli hv. frsm. um það, að það skipti engu máli, hvort sá réttur sé í l. eða ekki, hefur ekki við rök að styðjast. Það má vera, að gagnvart Siglufirði skipti það ekki miklu máli, en gagnvart Reykjavík hefur lögveðsrétturinn verulega þýðingu.
Ég vil fyrst og fremst undirstrika þetta, að hér er ekki með frv. um Reykjavíkurhöfn verið að fara fram á nein fríðindi eða sérréttindaaðstöðu fyrir Reykjavíkurhöfn, heldur er beðið um að leiðrétta það, sem var af henni tekið með hinum almennu hafnarl., og að því er ýmsir telja, meira af vangá heldur en af ásettu ráði. Hitt er svo annað mál, hvort réttara er að samþykkja sérstök hafnarl. fyrir Reykjavík eða gera breyt. á hinum almennu hafnarl. Það gæti verið ástæða til þess, en hafnarstjórn taldi réttara að flytja um þetta sérstakt frv.
Reykjavíkurhöfn hefur nokkra sérstöðu vegna þess, að ríkissjóður hefur ekki greitt til Reykjavíkurhafnar nema sáralítið fé og ekki neitt í hlutfalli við það, sem greitt hefur verið til annarra staða á landinu. Þar er um mjög verulega sérstöðu að ræða.
Í öðru lagi var það svo í hinum eldri hafnarl., að þau voru mjög mismunandi, þannig að það var ekki óskað eftir því frá sumum stöðum að hafa lögveð, en hafnarstj. Reykjavíkur óskar eftir því eindregið að fá, þennan rétt, sem hún hafði áður. Auk þess hefur það komið í ljós við framkvæmd hinna almennu hafnarl., að þau eru óskýr og ekki vel samin. Það gæti verið ástæða til þess, í staðinn fyrir að ganga til lagfæringar og leiðréttingar á mörgum ákvæðum þeirra, að semja ný l. En fyrir hafnarstj. Reykjavíkur er það ekkert aðalatriði. Ef þær brottfellingar á sérréttindum fyrir Reykjavík, sem gerðar voru með hinum almennu hafnarl., fást leiðréttar og ákvæðin, sem þar voru niður felld gagnvart Reykjavík, fást tekin í l. aftur, þá verður það ekki gert að ágreiningsefni, á hvern hátt það er leiðrétt.
Sem sagt, ég vil taka fram, að mér finnst þessi afgreiðsla hv. n. ákaflega undarleg og þær hugmyndir hennar, að hún þurfi ekki að skila nál. um frv. um Reykjavíkurhöfn, sem vísað var til hennar.
Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann taki frv. til l. um Reykjavíkurhöfn sem fyrst á dagskrá.