16.03.1948
Efri deild: 79. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins geta þess, að það er dálítill misskilningur, að þetta sé gert eftir ósk hafnarstjórnar Reykjavíkur. Hafnarstjórn Reykjavíkur hefur út af fyrir sig ekki óskað eftir þessari breyt. En hafnarstjórn Reykjavíkur hefur óskað eftir að fá samþ. á Alþ. sérstök hafnarlög fyrir Reykjavíkurbæ, þar sem m.a. væri gefin heimild til þess að hafa lögveð í skipum fyrir bryggjugjöldum og einnig, að þessari gr. væri breytt nokkuð öðruvísi en hér er gert ráð fyrir. Nú vil ég benda á, að í hinum almennu hafnarl. er þessi gr. þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú eiga einstaklingar eða félög hafskipabryggju innan hafnarsvæðis, og má þá ekki taka í hafnarsjóð bryggjugjald né gjöld af vörum, sem um þær bryggjur fara, fyrr en hafnarsjóður hefur komið upp sambærilegu mannvirki til afgreiðslu skipa, enda er eigendum slíkra mannvirkja óheimilt að taka gjöld af vörum, sem fara um bryggjur þeirra, nema samþykki hafnarstjórnar komi til.“
Nú er hugsað, að þessu verði breytt þannig, að þetta hljóði svo: „Nú eiga einstaklingar ...“ o.s.frv.„ fyrr en hafnarsjóður hefur komið upp hafnarmannvirkjum til afgreiðslu skipa ... o.s.frv.
Ég benti á það í sjútvn., að ég sæi ekki mikinn eðlismun á því, þó að þetta væri samþ. eins og hér er lagt til. Ég sé ekki, að það form, sem hér er lagt til að hafa á þessu, gefi minni rétt til viðkomandi aðila né heldur meiri rétt til Reykjavíkurhafnar til að innkalla hafnargjöld af einstaklingsmannvirkjum í Skerjafirði. Og ég get ekki séð, að þetta geti gert nokkuð til þeim aðilum, sem eiga hafskipabryggjur úti á landi, né heldur gefi þetta Reykjavík nokkurn sérstakan rétt til þess að innkalla þetta fé, ef því verður mótmælt, enda hefur hafnargjaldkerinn í Reykjavík lýst því yfir við mig, að hann óskaði ekki eftir þessu, heldur hinu, að hafnarlög verði samþ. fyrir Reykjavík. Með þeirri skýringu, sem ég hef greint, að þetta breytir engu raunverulega, þá get ég ekki verið að greiða atkv. á móti þessari till. til breyt. og mun greiða atkv. með frv. eins og það liggur fyrir.