18.03.1948
Neðri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (1787)
85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Pétur Ottesen:
Ég sé, að hv. formaður sjútvn. er ekki mættur, og ég vildi því í sambandi við brtt. frá hv. þm. Snæf. benda á það, að hv. sjútvn. hefur ekki getað fallizt á að taka þetta ákvæði upp í l., og mér er ekki kunnugt um, að afstaða n. hafi breytzt neitt í þessu máli.
Það hefur réttilega verið varað við að hlaða miklu af lögveðum á þessi mannvirki, og það leiðir af sjálfu sér, að með því eru rýrð stórlega veð fyrir öðrum lánum, bæði fasteignalánum og öðrum lánum, sem kann að þurfa að taka vegna rekstrar og útgerðar. Það er vegna þess, að varhugavert þótti að hafa þessi ákvæði, þegar lögin um hafnargerðir voru samin. Ég vildi aðeins láta þetta koma fram vegna þess, að ég hef ekki orðið var við, að álit n. á þessu hafi breytzt, og þeir nm., sem hér eru viðstaddir, munu því greiða atkv. á móti brtt.