19.03.1948
Efri deild: 82. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1793)
85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Frv. þetta hefur tekið miklum breyt. í hv. Nd. Hér er heimilað, að skipagjöld verði tryggð með lögveði í skipum. Þetta er svo mikilvæg breyt., að ég vil mælast til þess, að hæstv. forseti taki málið af dagskrá, svo að hægt verði að athuga það í nefndinni.