22.03.1948
Efri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

85. mál, hafnargerðir og lendingarbætur

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þetta frv. hefur tekið þeim breyt. í hv. Nd., að bætt hefur verið nýrri gr. í frv., svo hljóðandi: „Heimilt er að ákveða í hafnarreglugerð, að skipagjöld skuli tryggð með lögveði í skipi, og gangi það veð í 2 ár fyrir samningsveðskuldum.“ — Sjútvn. hefur haft þetta til athugunar og er sammála um að leggja til, að gr. falli niður.

Þannig er mál með vexti, að í hafnarl., eins og þau voru fyrir Reykjavík, var ákveðið að hafnargjöld skyldu tryggð með lögveði í skipum, en ekki til lengri tíma en eins árs. Ef nú ætti hins vegar að heimila að setja þetta ákvæði inn í hverja hafnarreglugerð á landinu og að þetta gildi til 2 ára, gæti slíkt valdið ýmsum erfiðleikum fyrir þá menn, sem hlut eiga að máli. Nm. eru því sammála um að fella þessa gr. niður, og vil ég því leyfa mér að leggja fram svo hljóðandi skrifl. brtt. við 3. gr. frv.: „Greinin falli niður.“