15.12.1947
Efri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (1811)

79. mál, kaupréttur á jörðum

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Hv. frsm. hefur lýst yfir, að von sé á ýmsum brtt. Þætti mér eðlilegt, að það yrði geymt að ljúka þessari umr., þangað til þær kæmu.

Ég vil enn fremur vita, hvort hv. frsm. vildi

ekki taka til athugunar, hvort hægt væri að fá inn í l. ákvæði um það, að ef hlutafélag á jörð, sem vel getur komið fyrir, þá gengju hluthafar fyrir um kauparétt. Virðist það ekki óeðlilegt, og vil ég biðja hv. frsm. að athuga, hvort hægt væri að fá ákvæði um það inn í lögin.