08.03.1948
Neðri deild: 70. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)
79. mál, kaupréttur á jörðum
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Mál þetta er komið frá Ed., og hefur landbn. athugað það nokkuð. Við þessa athugun hefur n. komizt að þeirri niðurstöðu, að ástæða sé til að setja skýrari ákvæði en eru í 2. gr. frv., að því er snertir, hvaða jarðir skuli vera undanþegnar þessu ákvæði. Í frv. hefur þess ekki verið gætt, að um óðalsjarðir gilda sérstök l. og sérstakar reglur um ábúð þeirra. N. var sammála um, að ekki kæmi til mála að draga þær inn í þetta frv. Sama gildir um þær jarðir, sem í þeim l. eru nefndar ættarjarðir. Þetta er meira skýringaratriði en breyt.
Í 2. brtt. er gert ráð fyrir því, að í staðinn fyrir 4 ár komi 3 ár. Í óðalsréttarl. er einnig miðað við 3 ár, og þetta ákvæði verður því í samræmi við önnur ákvæði í gildandi l.
Tveir hv. nm. hafa flutt brtt. við frv. Um hana ræði ég ekki. Þeir munu gera grein fyrir henni. En n. leggur til, að þessar brtt. verði samþ.