22.03.1948
Efri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)
173. mál, skipun prestakalla
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég er dálítið hissa á þessu frv. Það er almennt talað um að draga saman, eins og hv. frsm. meiri hl. að vísu minntist á. En það á að gera það hér á þann hátt að bæta við nýjum embættismanni. Og rökin eru þessi: Á sóknarprestinn hafa hlaðizt ýmis störf, svo að auðsætt er, að honum einum er ofvaxið að leysa þessi margvíslegu störf af hendi, enda sé svo komið, að s.l. ár hafi hann verið tilneyddur að taka sér aðstoðarprest, þar sem heilsa og starfsþrek hans sé farið að bila. Rökin eru ekki þau, að hann hafi svo mikið að gera sem prestur. Nei, nei. Það hafa hlaðizt á hann „ýmis störf“ ! Og þessi „ýmsu störf“ getur hann ekki unnið, af því að hann er orðinn heilsulítill og starfsþrekið farið að bila. Og þá á að skaffa honum aðstoðarprest! Ég botna sannast að segja ekkert í menntmn. að láta sér detta þetta í hug, að fara fram á slíkt við Alþingi. Það væri svipað, ef einhver embættismaður hér í Reykjavík, t.d. skrifstofustjóri í stjórnarráðinu, færi jafnframt að reka verzlun hér í bænum og sitja í bæjarstjórn og annast ýmis önnur störf, svo að hann gæti ekki lengur komizt yfir embættisstörf sín. Síðan kæmi till. um að skipa aðstoðarskrifstofustjóra til að hjálpa honum meðan hann væri að vinna sín „ýmsu störf“. Ekki veit ég, hvar það ætti að lenda, ef framfylgja ætti þessari stefnu í embættisfærslu á landi hér. Hér er nú að ræða um heilsubilaðan mann.
En það er farið fram á að setja nýtt fast embætti, til þess að hann megi hafa aðstoð. Hér er ekki talað um að bæta úr í bili, eins og stj. hefur gert, þar eð þessi embættismaður er orðinn bilaður að starfsþreki, svo að hann getur ekki annað embætti sínu og ýmsum störfum í viðbót. En í grg. frv. liggur beinlínis, að prestur, sem hefur fulla heilsu og starfsþrek, geti leikið sér að því að koma af prestsverkunum, því að rökin eru bara þessi, að mörg önnur störf hafi hlaðizt á þennan prest, sem sé bilaður á heilsu og hafi misst starfsþrek. En ef þessi prestur á að fá fastan mann til aðstoðar, þá eiga allir aðrir prestar rétt til hins sama. Mér finnst þetta svo fjarlægt, að ég skil ekki, hvernig hv. 1. þm. Eyf. getur, þó að honum sé málið skylt, þar sem hann á heima á Akureyri, flutt slíkt fram. Ég er ekki trúaður á það, að hann hafi orðið var við, að sálgæzlan hafi verið svo illa rækt, að hann sé í voða staddur þess vegna. Og ég hygg það séu fáir á Akureyri, sem finnst það. Ef það þykir ákaflega erfitt fyrir Akureyrarprest að þjóna Lögmannshlið, getur vel komið til mála að leysa hann frá því og fela kirkjuna Möðruvallapresti. Hann hefur haft hana áður. Þetta væri vel hægt, enda þótt hann eigi að taka við Bægisá eða sé kannske þegar búinn að því. Yfirleitt á stefnan að mínum dómi, hvað presta snertir, að vera sú, að fækka þeim mikið frá því, sem nú er, í staðinn fyrir að fjölga þeim. Það er svo fjarlægt, að við þurfum að hafa fleiri presta á því svæði, sem við teljum einum lækni fært að komast yfir, því þó að þeir séu til, sem meta blessaða sálgæzluna meir en störf læknisins og telja, að það þurfi að vera fleiri prestar, þá er ég ekki einn í þeirra tölu.
Ég er sannfærður um, að við eigum að fella þetta frv., en kannske með rökst. dagskrá, þar sem tekið er fram, að aðstoða megi þennan prest, sem þarna er nú með bilað starfsþrek, en alls ekki slá neinu föstu um, að í framtíðinni skuli alltaf vera þarna tveir prestar. Síðan þyrftum við að taka til að endurskoða prestaskipunina í heild og stórfækka prestum. Ég mun þess vegna ekki greiða þessu frv. atkv., heldur vera á móti því.