23.03.1948
Efri deild: 86. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1214 í B-deild Alþingistíðinda. (1977)

118. mál, hitaaflstöð og hitaveita á Ísafirði

Þorsteinn Þorsteinsson:

Þar sem yfirlýsing hefur nú verið gefin um það, að ekki verði óskað eftir að fá meiri ábyrgð en sem nemur 85% af stofnkostnaðinum, og þar sem það er auðséð, að það að hrekja málið á milli d. er hið sama sem að koma málinu fyrir kattarnef á þessu þingi, þá segi ég nei við brtt.

Frv. samþ. með 9:3 atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 670).