30.10.1947
Efri deild: 11. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):
Í fyrra, þegar allt í einu vildi svo vel til, að síld fór að veiðast hér í flóanum, þá var stjórn síldarverksmiðja ríkisins falið að annast þessi mál og þá um leið, hvernig hagkvæmast væri að nytja þessa veiði. En eins og kunnugt er, þá var síldin flutt norður þrátt fyrir Sólbakkaverksmiðjuna. Þar sem stjórn síldarverksmiðjanna annast þessi mál einnig nú, hef ég ekki séð ástæðu til þess að skipta mér frekar af þeirra ráðstöfunum en það að heimila bræðslu í ríkisverksmiðjunum. Það liggur því beint fyrir að varpa þessari fyrirspurn til stjórnar síldarverksmiðjanna. Hins vegar hef ég heyrt lauslega, að verksmiðjan á Sólbakka sé ekki í starfhæfu standi.
Viðvíkjandi tapinu, sem varð við Ísafjarðardjúp á dögunum, er síld tapaðist úr lásum, þá er það lausleg ágizkun, að veðrið hefði ekki rifið næturnar, ef síldin hefði verið unnin á Sólbakka. Hitt er rétt, að það er styttri sigling á milli Sólbakka og Ísafjarðardjúps heldur en á milli Djúpsins og Siglufjarðar. En svona stóra lása fer mikill tími í að tæma, svo að það má endalaust gizka á um það, hvort það er því að kenna, að síldin var flutt til Siglufjarðar, að síldin tapaðist út nótunum á dögunum, sem var auðvitað ákaflega slæmt, að skyldi koma fyrir. — En þó að þetta sé allt látið liggja á milli hluta, þá er mér það útlátalítið að benda stjórn síldarverksmiðja ríkisins á þetta, sem hér hefur fram komið, þó í raun og veru að slíkt ætti að vera óþarft. Því að ég þykist vita, að með þeim mannakosti, sem er í þeirri stjórn, hljóti þeir að hafa haft opin augu fyrir möguleikunum til að hagnýta síldina á Sólbakka. En skipakostur er nægur til þess nú orðið að flytja síldina norður, þar sem bætzt hafa skip í þann hóp, sem síldina flytur. En ég tek undir það með hv. þm., sem fyrirspurnina gerði, að ef ekki væru einhverjar sérstakar ástæður, sem kæmu til á móti því, þá væri heppilegra að geta unnið á Sólbakka síldina, sem þarna veiðist í Ísafjarðardjúpinu. En ég þykist vita, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins hafi álitið eða vitað einhverjar hindranir í vegi fyrir því, sem hafi gert það að verkum, að henni hafi ekki þótt tilvinnandi að snúa sér á þann veg í málinu og hafi þess vegna sent síldina norður, þar sem þar eru vitanlega síldarverksmiðjur, sem eru alveg tilbúnar til þess að taka á móti þessari síld.
Ég mun, að gefnu þessu tilefni, ræða þetta mál við stjórn síldarverksmiðja ríkisins.