16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í B-deild Alþingistíðinda. (200)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. — Öllum, sem hugsa af skynsemi og ábyrgðartilfinningu, er það ljóst, að lengi hefur verið þörf róttækra aðgerða, ef verðbólgan ætti ekki að valda frekara tjóni. Ef litið er yfir helztu svið fjárhagsmálanna, eru horfurnar dökkar. Um gjaldeyrismálin er það að segja, að í byrjun þessa mánaðar var inneign okkar rétt um 10 millj. kr. Þar af voru 4.6 millj. clearing-gjaldeyrir, 1.7 millj. pund og 3.7 millj. dollarar. Það hefur tekizt að koma í veg fyrir skuldasöfnun með því að gera mjög harðhentar aðgerðir til þess að stemma stigu við innflutningi. Það hefur verið neitað að yfirfæra gjaldeyri út á leyfi, og þannig hefur ástandið verið í næstum heilt ár. Þetta gjaldeyrisástand hlýtur að koma undarlega fyrir sjónir, þegar tekið er tillit til þess, að á árunum 1940–´44 varð að meðaltali 115 millj. kr. aukning árlega á gjaldeyriseign þjóðarinnar og náði hámarki í okt. 1944 og varð þá 586 millj. kr. Árið 1945 urðu hins vegar þáttaskipti í gjaldeyrismálunum. Á því ári lækkaði gjaldeyriseign þjóðarinnar um 100 millj. kr., og árið 1946 lækkaði gjaldeyrisinneignin um hvorki meira né minna en 272 millj. kr. Það má segja, að þessi mikla og skyndilega minnkun á gjaldeyri hefði ekki verið svo mikil í raun og veru, ef hún hefði fært okkur tilsvarandi verðmæti, ef þessum gjaldeyri hefði verið varið til kaupa á nýsköpunartækjum og vörum. En því var ekki að heilsa.
Árin 1937–39, eða þrjú síðustu árin fyrir stríð, var varið 15% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar til kaupa á vörum, sem nú eru kallaðar nýsköpunarvörur, en árin 1940–´46 er einungis varið 19% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar til kaupa á slíkum vörum, að meðtöldum þeim vörum, sem búið var að kaupa og búið að greiða, en voru ókomnar. Af þessu verður greinilega ljóst, að hin geysimikla og öra rýrnun á gjaldeyriseign þjóðarinnar verður ekki skýrð með nýsköpuninni. Það hafa ekki komið inn í landið ný framleiðslutæki, sem svari til þessarar miklu rýrnunar á gjaldeyriseigninni. Þetta ber vissulega vott um það, að mjög fjarri sé því, að vel hafi verið haldið á gjaldeyrismálunum þessi ár.
Um afurðasölumálin er það að segja, að það er enn stríðsverð á síld og síldarafurðum og ísfiski, og það er það, sem heldur uppi þessum atvinnuvegum nú. En um hinar tvær þýðingarmestu útflutningsvörur okkar, freðfiskinn og saltfiskinn, er það að segja, að þar er framleiðslukostnaðurinn kominn verulega upp fyrir það, sem svarar til útflutningsverðs þessara vara. eins og það var í fyrra og nú. Það má segja, að framleiðslukostnaður saltfisks sé 3 kr. kg, en útflutningsverð hans sé 1.70 kg. Framleiðslukostnaður freðfisks mun vera kringum 3 kr. kg. en útflutningsverð frá 1.70 og upp í 3 kr. kg.
Á sviði fjármálanna er hin mesta ringulreið. Hagfræðingan., sem starfaði hér í fyrra, gerði áætlanir um væntanlega fjárfestingu árið 1947. þannig að ýmsir opinberir aðilar legðu í framkvæmdir fyrir um 101 millj. kr., byggingarframkvæmdir um 162 millj. kr. og einstaklingsfyrirtæki legðu í framkvæmdir fyrir um 11 millj. kr. og 60 millj. kr. yrði varið til nýsköpunarinnar. En ástandið í gjaldeyrismálunum kemur greinilegast í ljós í öllum þeim umsóknum um leyfi til bygginga, sem borizt hafa.
Með tilliti til þessara staðreynda, sem ég mjög stuttlega hef drepið á, er hin mesta fjarstæða að álita, að hægt sé að láta reka á reiðanum fjárhagsmálefni þjóðarinnar. Það mátti öllum vera ljóst, að nauðsyn væri róttækra aðgerða í þessum málum. Hagfræðingan., sem starfaði fyrir rúmu ári, gerði athugun um ástand og horfur á þessu sviði atvinnulífsins. Sú athugun leiddi í 1jós, að horfurnar voru svo alvarlegar, að augljóst var, að gjaldeyririnn mundi verða þrotinn, þegar fáir mánuðir væru liðnir af árinu. Horfur í afurðasölumílunum voru mjög uggvænlegar, og í fjárfestingarmálunum var allt á ringulreið. Því er hins vegar ekki að leyna, að þessu áliti hagfræðinganna var ekki vel tekið, því var beinlínis illa tekið af mörgum mönnum og alveg sérstaklega af Sjálfstfl. og Sósfl., sem teygðu allt og toguðu. sem í álitinu fólst, en þó alveg sérstaklega skýrsluna um hið raunverulega ástand í fjárhagsmálunum, sem var mjög slæmt. Það eru ekki liðnir nema um 9 mánuðir, síðan fyrrv. forsrh., Ólafur Thors, sagði hér í frægri útvarpsræðu, að aldrei hefði verið eins bjart fram undan í íslenzkum fjárhagsmálum og á þeim tíma. Við erum nú að enda árið, sem fyrrv. hæstv. forsrh. sagði, að mundi verða eitthvert hið allra glæsilegasta í sögu fjárhagsmála Íslendinga. Nú geta allir metið fyrir sitt leyti, hversu mikil léttúð var í þessum ummælum fyrrv. hæstv. forsrh. En það var ekki einungis fyrrv. hæstv. forsrh., sem hélt þessu fram. Ég veit ekki, hvort hann vildi endurtaka þessi orð nú, hann lætur svo litið til sín heyra nú. En þá eru skoðanabræður hans, hv. þm. Sósfl., ennþá á þeirri skoðun og stagast ennþá á þeim setningum, sem fyrrv. hæstv. forsrh. varð sér til minnkunnar fyrir fyrir rúml. 9 mánuðum
Við í hagfræðingan. komum okkur saman um, þó að við værum skipaðir af 4 stjórnmálafl., að leggja fram sameiginlega till. til úrlausnar þessara vandamála. Ég skal rekja þessar till. í örstuttu máli.
1. að almenn eignakönnun yrði látin fara fram og lagður á stórfelldur eignarskattur og í því sambandi gerðar alveg sérstakar ráðstafanir til þess að hagnýta það fé, sem skotið hefði verið undan skatti undangengin ár, og enn fremur lagður verðhækkunarskattur á fasteignir og sérstakar ráðstafanir gerðar gegn skattsvikum og afmáð þannig það átumein, sem grafið hefur um sig í íslenzkum fjármálum;
2. að gerðar verði ráðstafanir til þess að koma á allsherjar stjórn á allri fjárfestingu;
3. hækkun á aðflutningstollum á öðrum innfluttum vörum en nauðsynjavörum;
4. að leita samvinnu við launþegasamtök og samtök atvinnurekenda um festing verðlagsuppbótar í 300 stigum;
5. í síðasta lagi lögðum við til, að verzlunarálagning lækkaði mjög verulega og gerð veruleg og gagngerð breyting á skipulagi innflutningsverzlunarinnar, bæði til þess að minnka verzlunarkostnaðinn og til þess, að hægt væri frekar en áður að hafa eftirlit með gjaldeyrisnotkun, skattaframtölum og verðlagningu innflutnings.
Um þessa till., sem ég hef lýst mjög stuttlega, vorum við allir sammála. Við vorum líka sammála um það, að leggja bæri sérstaka áherzlu á það, að þær byrðar, sem óhjákvæmilega þyrfti að leggja á þjóðina í þessu sambandi, yrðu lagðar á efnastéttir þjóðfélagsins. Í þessu sambandi vil ég leyfa mér að lesa upp tvær málsgr. úr nál. hagfræðingan., og ég vil endurtaka það, að um þetta vorum við allir sammála — með leyfi hæstv. forseta: „Öllum þeim, sem af skynsemi og ábyrgðartilfinningu hugsa um ástandið í fjárhagsmálefnum þjóðarinnar, hlýtur að vera ljóst, að lengi hefur verið þörf róttækra aðgerða til að stemma stigu við frekara tjóni af verðbólgu og dýrtíð. Því fer fjarri, að viðhorfið sé nú svo breytt, hvað þetta snertir.
Enn er ríkjandi stórfellt og óréttlætanlegt misræmi í afkomu launþega og smáframleiðenda annars vegar og hátekjumanna hins vegar. Af þessum sökum og vegna þess, að skipting stríðsgróðurs hefur orðið eins ójöfn og raun ber vitni, verður að gera þá kröfu, að þungar byrðar verði lagðar á þá, sem breiðust hafa bökin fjárhagslega, í sambandi við þær heildaraðgerðir, sem væntanlega verður ráðizt í innan skamms. Á móti þeim byrðum, sem lagðar verða á launþegana og fleiri stéttir, ætti að ákveða mjög verulega álagningarlækkun á innfluttum nauðsynjavörum og innlendum iðnaðarvörum og þjónustu. Byrðarnar, sem hér er talið rétt að leggja á efnaminni stéttir þjóðfélagsins, eiga ekki rétt á sér, nema eftirtaldar ráðstafanir, sem allar eru ræddar á öðrum stöðum í álitinu, verði framkvæmdar út í yztu æsar: Allsherjar eignakönnun, eignarskattur í eitt skipti fyrir öll, skyldulán, stóraukið eftirlit með skattaframtölum, endurbætt skattalöggjöf, endurbætt tilhögun á innflutningsverzluninni og sérstakar ráðstafanir gegn fjárflótta.“
Þessar till. okkar fengu því miður ekki góðar undirtektir sem heild. Þótti í nokkuð mikið ráðizt að framkvæma þær eins og þær voru, en við höfðum einmitt lagt sérstaka áherzlu á það, að ef ætti að ná nokkuð verulegum árangri, þá yrði að framkvæma þær till. í heild. Nú ættu hins vegar fleiri að sjá, að það hefði vissulega verið betra að hefja þær framkvæmdir þá þegar og þá væri ekki við marga af þeim örðugleikum að stríða, sem við verðum nú að horfast í augu við. En þeir erfiðleikar, sem þjóðin átti þá við að stríða og framkvæmd þessara till. átti að leysa, eru óleystir enn.
Í umr. um þetta mál innan Alþ. og utan er yfirleitt lögð megináherzla á afkomu sjávarútvegsins, og hún er talin eitt stærsta vandamálið, sem nú eigi að taka föstum tökum og glíma við. En ég er ekki viss um, að þetta sé alls kostar rétt. Ég held, að ástandið í gjaldeyrismálunum sé í sjálfu sér erfiðara viðfangsefni, torleystara og þýðingarmeira. Ég held, að með tilliti til stríðsverðsins, sem er á síldarafurðum og ísfiski, þá sé það vandamál tiltölulega auðleyst með ríkisábyrgð og takast muni að afla þess fjár, sem þarf til þess að standa straum af þeirri ábyrgð. En ástandið í gjaldeyrismálunum er hins vegar mjög alvarlegt og ekki sjáanlegt, hvernig fram úr þeim geysilega vanda verður ráðið. Þessum málum er allt of lítill gaumur gefinn og alveg furðulegt, að varla hefur verið vikið að því í þeim löngu umr., sem hér hafa farið fram, til þessa. En meginástæðan til gjaldeyrisvandræðanna er í stuttu máli sú, hversu geysimikill munur er á verðlagi hér og í viðskiptalöndunum og að peningatekjur hafa vaxið hér geysimikið, samtímis því að genginu er haldið óbreyttu. En hitt atriðið, sem oft er ekki nægilega gaumur gefinn, er hin geysilega gjaldeyrisþörf sem nú er og erfitt er að fullnægja. Hún á rót sína að rekja til þess, sem nú kemur í ljós, að þeirri þörf er fullnægt eða hún er framkvæmd án nokkurrar skynsamlegrar heildaráætlunar. Það hefur komið í ljós, að fé, sem lagt var til hliðar til greiðslu á nýbyggingarvörum, var aðeins ætlað til kaupa á sjálfum framleiðslutækjunum, en hins vegar hefur alveg gleymzt að ætla fé til þess að tryggja það, að hægt sé að láta framleiðslutækin taka til starfa, og einnig gleymzt þær framkvæmdir, sem óbeint verða nauðsynlegar í landinu kringum þessi tæki fyrstu árin, á meðan þau eru að komast í notkun.
En til úrlausnar á þeim vanda, sem ég hef nú drepið á, koma fjárhagsmál þjóðarinnar fyrst og fremst til greina. Og nú liggja fyrir þinginu tvö frv., annars vegar frv. Sósfl. og hins vegar frv. ríkisstj., sem nú er til umr. og ætlað er að leysa þennan vanda. Ég ætla að leyfa mér að víkja nokkrum orðum að frv. Sósfl. og vona, að ég fari þó ekki með því út fyrir dagskrána. Í því frv. er till. til úrlausnar á þeim vandamálum. sem ríkisstj. ætlar að leysa. Í því frv. virðist mér vera fjögur meginatriði. Það er ríkisábyrgð á útfluttum fiski, í öðru lagi er gert ráð fyrir lækkun á útlánsvöxtum til sjávarútvegsins, í þriðja lagi endurskipulagning innflutningsverzlunarinnar og loks niðurfelling á tollum á þeim vörum. sem ganga inn í vísitöluna. Tvö atriðin eru ekki nýmæli, það er ríkisábyrgðin og endurskipulagning innflutningsverzlunarinnar. Um ríkisábyrgð er það að segja, að ákvæði þessa frv. eru sótt í ábyrgðarl. frá því í fyrra og sömu ákvæði og eru í frv. ríkisstj. Þá er ákvæðið um endurskipulagningu innflutningsverzlunarinnar í þessu frv. í meginatriðum sótt í frv., sem ég flutti á síðasta Alþ., og sízt sæti það á mér að vera á móti þeim lið. Ég tel slíkar ráðstafanir, sem þar er lagt til, að gerðar verði, ekki aðeins skynsamlegar, heldur bráðnauðsynlegar og einar af þeim ráðstöfunum, sem mest knýjandi nauðsyn sé til að grípa til í fjárhagsmálum okkar. Um þetta fjölyrði ég ekki frekar, en ætla að fara nokkrum orðum um hin atriðin tvö, vaxtalækkunina og niðurfellingu tolla af neyzluvörum,
Í frv. Sósfl., held ég, að sé allt of mikið gert úr þýðingu vaxtalækkunar. Þar er sagt, að vaxtalækkunin mundi þýða 15 þús. kr. lækkun á rekstrarkostnaði á meðalfiskibát yfir árið. En flestar þessar tölur eru alger fjarstæða. Landssamband ísl. útvegsmanna hefur í áætlun sinni gert ráð fyrir, að vextir þessir mundu nema um 8–9 þús. kr., og sá maður í hópi Sósfl., sem ég tel, að hafi bezta þekkingu á þessum sviðum, Jónas Haralz, hefur ásamt mér, því að við höfum átt saman þátt í því að reikna út kostnað bátaútvegsins, ekki treyst sér til þess að vefengja þessar tölur L.Í.Ú. að neinu verulegu leyti. Og þegar þess er gætt, að verulegur hluti af þessum vaxtaútgjöldum er um 2% vextir, sem gert er ráð fyrir, að þau lækki í, þá er það auðsætt, hvílík reginfjarstæða það er að gera ráð fyrir, að þessi lækkun muni nema svona miklu. Það munu allir sammála um það að búa bátaútveginum betri vaxtakjör en nú á sér stað, þó að því megi ekki gleyma, að á undanförnum árum hefur verið gert mikið til þess að bæta vaxtakjör hans.
Þá má ekki heldur gleyma því, að það hlýtur að koma að því á næstunni, að útlánsvextir banka verði hækkaðir. Það verður að koma að því, og sé tillit tekið til þessa, þá er augljóst, að skilyrði bankanna til þess að lækka vextina verulega eru um leið mun minni. Hinu vil ég ekki mótmæla, að æskilegt sé að búa sjávarútveginum að einhverju leyti hagkvæmari vaxtakjör en nú á sér stað, en ég tel þær tölur, sem hér eru nefndar um þýðingu þessarar ráðstafana, vera mestu fjarstæðu.
Um þýðingu niðurfellingar tolla á vísitöluvörum hef ég rætt áður við flm. frv. og get látið nægja mjög fá orð. Ég sýndi fram á, að niðurfelling tolla á þessum vörum mundi væntanlega lækka vísitöluna um 15–17 stig, og miðað við innflutning ársins mundi tekjumismunurinn verða 20–25 millj. kr., en spara ríkissjóði um 10–11 millj. kr., svo að auðséð er, að það mundi frekar hafa í för með sér útgjöld fyrir ríkissjóð að framkvæma lækkun vísitölu á þennan hátt, og þá virðist niðurfelling tolla ekki vera það, sem fyrst og fremst eigi að keppa að.
Með tilliti til þess, að augljóst er, að framkvæmd á þeim till., sem fólgnar eru í þessu dýrtíðarfrv. Sósfl., mun kosta ríkissjóð verulega fjárfúlgu, bæði hvað snertir útflutning á sjávarafurðum og niðurfelling á tollum á vísitöluvörum, þá er það alveg augljóst mál, að ekki er hægt að taka frv. Sósfl. alvarlega, þar sem engin till. er í því um tekjuöflun til þess að mæta þessum útgjöldum. Þess var að vísu getið af hálfu flm. frv., að ef frv. yrði tekið alvarlega, mundi hann sýna lit á því að bera fram tekjuöflunartill., en vissulega hefði verið eðlilegra og í alla staði meiri líkur fyrir, að frv. yrði tekið alvarlega, að till. þess efnis hefðu komið í frv. sjálfu.
Það er talið, að á þessu ári muni útflutningsuppbætur á saltfisk vera um 12–14 millj. kr., uppbætur á freðfisk um 10–20 millj. kr. og kjötuppbætur um 20 millj. kr. En fram hjá öllu þessu er gengið, og hefur ekki þótt ástæða til þess að gera till. um tekjuöflun til þess að mæta öllum þessum útgjöldum, sem vissulega verða stórkostleg. Samning þessa frv. er vissulega ekkert afrek og Sósfl. hvorki til gagns né sóma. Þess er skylt að geta, að Sósfl. rökstuddi þetta með því, að ekki mundi þurfa að greiða neinar útflutningsuppbætur á fiskafurðir á næsta ári, því að lítill vandi væri að selja meginhluta af okkar fiskafurðum til viðskiptalanda, sem keyptu þær vörur hærra verði en fiskábyrgðarverðið væri. En í því sambandi er einmitt rétt að fara nokkrum orðum um stefnu sósíalista í þessum málum. Þeir leggja hina mestu áherzlu á, að okkar viðskipti verði sem allra mest við vöruskiptalöndin í Mið-Evrópu og Austur-Evrópu. Fjárhagslega séð er það hinn mesti barnaskapur að einblína á það, hvar við fáum mest að krónutali fyrir okkar vörur, og alveg sérstaklega þegar salan fer fram með þeim hætti, að hún er bundin skilyrði að kaupa ákveðna vöru í staðinn. Ef meta á gildi slíkra vöruskiptasamninga, þá er þar einn skynsamlegur grundvöllur, sem kemur til greina, en það er að bera saman magn og gæði þeirra vara, sem við getum fengið fyrir tiltekið magn af íslenzkum útflutningsafurðum. Krónutölur skipta hér engu máli. Því miður hefur verið lögð á það allt of lítil áherzla að gera skipulagða athugun á verðlagi vöru á vöruskiptalöndunum annars vegar og á tilsvarandi vöru, sem við getum fengið frá löndunum, sem eru með frjálsar vörur, hins vegar, því að án þess að hafa tölur til að gera slíkan samanburð er óhugsandi að gera sér í hugarlund, hvernig allar aðstæður eru. Það hefur skort allar upplýsingar um þetta, og það hefur orðið til þess, að blaðaskrif og umr. um þessi mál hafa orðið út í loftið meira en æskilegt hefði verið.
En auk þess sem á að gera samanburð á slíkum grundvelli, held ég, að samanburðurinn sé að ýmsu leyti ekki hagstæður fyrir vöruskiptalöndin, og einnig þarf að taka tillit til þess, að ekki er hægt að fá allar vörur frá vöruskiptalöndunum, þó að við vildum beina viðskiptum okkar þangað, en þegar tekið er tillit til þess, hve mikið af okkar útflutningi fer til þess að kaupa fyrir aðrar vörur, verðum við að geta keypt okkar helztu nauðsynjavörur þar, sem útflutningurinn er seldur, ef ekki er um að ræða að selja á frjálsum markaði eða í gjaldeyrislöndum á þeim grundvelli, sem ég gat um áðan. En að sjálfsögðu má ekki miða við verðið í íslenzkum krónum eingöngu, og í sambandi við það held ég, að rétt sé að vekja athygli á einu atriði, sem ég held, að hafi verið allt of lítill gaumur gefinn.
Hv. Sósfl. leggur til, að viðskipti okkar verði í svo ríkum mæli sem unnt er flutt yfir á vöruskiptalöndin, sem borga hærra, en selja líka með hærra verðlagi, og rökin fyrir þessu eru afar einföld. Sjávarútvegurinn fær það, sem hann þarf að fá, en vörurnar eru ekki óseljanlegar innanlands vegna þess, hve kaupmátturinn er mikill. En raunverulega er hér alveg um hliðstæða lausn að ræða og vera mundi, ef gengi krónunnar yrði lækkað. Það, sem hér er um að ræða, er að skaffa sjávarútveginum hærra verð á þann hátt að fá innflutning með hærra verðlagi. Hér er um að ræða ráðstöfun, sem verkar eins og gengislækkun, og hefur mig oft stórfurðað á því, að ekki skuli hafa verið á það bent, að þessi flokkur hugsar sér að leysa vandræði sjávarútvegsins nákvæmlega á sama hátt og gengislækkun mundi gera, svo að með stefnu Sósfl. er um dulbúna gengislækkun að ræða. Það er þannig hvatning til gengislækkunar að hvetja til að selja í svo ríkum mæli til þeirra landa, sem hafa hærra verðlag en við. Ég er ekki með þessu að segja, að það geti ekki verið skynsamlegt að auka viðskiptin við þessi lönd, en það fer eftir verðskráningunni, sem ég minntist á áðan, og fannst mér rétt að þetta kæmi fram.
Skal ég svo ekki ræða þetta frv. hv. Sósfl. nánar, en sný mér að frv. stjórnarinnar. Það frv. má skoða frá tveim ólíkum sjónarmiðum: hvort það nái tilgangi sínum, og hvort ákvæði þess séu réttlát eða sanngjörn.
Ef tilgangurinn er að koma sjávarútveginum af stað á vertíðinni — og það hygg ég, að telja megi höfuðtilgang frv. —, þá hygg ég, að það muni ná tilgangi sínum, eða ég vona, að svo sé. Í frv. er gert ráð fyrir tekjuöflun, sem hæfir þessum leiðum, og þess vegna álít ég, að það sé rökrétt heild og muni ná þeim tilgangi, sem því er ætlað að ná.
Hitt er svo annað mál, hvort ákvæði frv. geta frá félagslegu sjónarmiði talizt réttlát. Ég er á þeirri skoðun, að þjóðinni sé svo mikill vandi á höndum, að allar stéttir verði að taka á sig nokkrar fórnir, en bök manna eru misjafnlega breið. Undanfarin ár hefur gróði safnazt á hendur margra manna, og tekju- og eignaskiptingin er ójöfn. Hún var ójöfn fyrir stríð, og það hefur aukizt. Fjöldi manna hefur aðstöðu til stórtekna og er milljónamæringar, sérstaklega stórútgerðarmenn, verzlunar- og iðnaðarmenn. Ég tel, að þótt nauðsynlegt sé, að allar stéttir þjóðfélagsins taki á sig nokkrar byrðar, sé það meginskilyrði, að þessir menn fórni — ekki aðeins fyrst — heldur færi þeir miklu þyngri fórnir en launþegar og verkalýður, og skal ég leyfa mér að nefna nokkrar ráðstafanir, sem ég tel nauðsynlegar og rétt að grípa til, til þess að þessar stéttir og þessir menn færi þær fórnir, sem þeim ber að færa.
Ég vil þá fyrst nefna stórfelldan eignaraukaskatt og að hert verði á skattaeftirlitinu og gerðar alvarlegar tilraunir til þess að lækna það átumein, sem er í íslenzku þjóðfélagi, að launastéttirnar bera í raun og veru miklu þyngri skattabyrðar en þeim ber, og er það vegna þess, að þeir, sem stunda atvinnurekstur, hafa aðstöðu til þess að skjóta miklum hluta tekna sinna undan skatti. Þetta misrétti tel ég nauðsynlegt að afnema.
Það er opinbert leyndarmál, að íslenzkir ríkisborgarar eiga verulegar fjárfúlgur í erlendum bönkum og erlendum fyrirtækjum, sem þeir hafa að miklu leyti aflað á síðustu stríðsárum. Ég tel nauðsynlegt, að gerð sé tilraun til þess að festa hendur á þessu fé, sem ekki er aðeins ólöglega geymt, heldur ólöglega komið þangað og af ólöglegum tekjum. Ég veit, að það er miklum örðugleikum bundið að ná slíku fé, og ef það er ekki hægt, er ekki hægt að krefjast þess með sanngirni, að það sé gert.
Þá þarf að gerbreyta skipulagi innflutningsverzlunarinnar. Um það mál skal ég ekki ræða frekar. Ég flutti í fyrra frv. á Alþingi um, hvaða skipan ég teldi nauðsynlega á innflutningsmálunum og hvaða skipan ég teldi mögulegt að taka upp nú. Innflutningsverzlunin skiptir meira máli hér hjá okkur en hjá nokkru hinna Norðurlandanna sökum þess, hve mikið við flytjum inn erlendis frá, auk þess, hve miklum hluta af þjóðartekjunum við verjum til þess að kaupa erlendar vörur. Þess vegna er það, að stór hluti af þjóðartekjunum gengur í gegnum hendur innflytjendanna, meiri hluti en á hinum Norðurlöndunum, en þessi grein er sérstaklega óskynsamlega og óhaganlega rekin og hefur verið það um langan aldur.
Gera þarf ráðstafanir gegn húsaleiguokri og ráðstafanir til þess að bæta úr húsnæðisskorti. Ég tel nauðsynlegt að leggja á stóríbúðaskatt. sem ætti að vera ein af þeim byrðum, sem efnastéttirnar taka á sig.
Gera þarf ráðstafanir til þess að takmarka há laun og setja takmarkanir við greiðslu arðs úr hlutafélögum. Það er alkunna, að fjöldi manna hefur svo há laun, að engin ástæða er til, 80–100 þús. kr. og 100–200 þús. kr., bæði hjá einstaklingum og hinu opinbera.
Þá þarf að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir, að einstaklingar hafi stórgróða af einokun í þjóðfélaginu, svo sem af kvikmyndahúsum, smjörlíkisframleiðslu, öl- og sælgætisgerð o.s.frv.
Slíkar aðgerðir hef ég talið nauðsynlegar, um leið og komið er til almennings og launastéttanna og ætlazt til fórna af þeim.
Ég geri mér það ljóst, að margar af þessum ráðstöfunum hafa ekki beina þýðingu til þess að hjálpa til að koma sjávarútveginum af stað, en þær eru bara nauðsynlegar til þess, að þessar stéttir sætti sig við verulega kjaraskerðingu, og það er af því, sem ég álít nauðsynlegt að leggja áherzlu á slíkar ráðstafanir.
Mér finnst fórnirnar, sem af almenningi er krafizt, vera svo miklu meiri hlutfallslega en af efnastéttunum. Og ef litið er á frv. stjórnarinnar í þessu ljósi, virðast mér fórnir launþeganna vera þrjár.
1. Verðlagsuppbótin er fest. Þ.e. að ekki má framvegis hækka kaup í sama mæli og verðlag hækkar í landinu, en það fyrirkomulag hefur verið síðan 1939, er Alþfl. fékk þessu komið á, og hefur það verið talin hin mesta kjarabót, sem fram hefur komið, en slíkt u að leggja niður.
2. Verðlagsuppbótin er lækkuð og laun lækkuð um 81/2%. Verð á landbúnaðarvörum lækkar, svo að lækkunin verður ca. 41/2%.
3. Söluskattur, svo að verð vöru, sem neytendur kaupa, mun hækka verulega. Forsrh. hefur áætlað, að raunveruleg kauplækkun muni vera 8—9%
Ef notaður er sá mælikvarði, sem ég gat um áðan, er fórn efnastéttanna aðeins ein, eignaraukaskatturinn, og skal ég nú leyfa mér að líta á hann.
Af fyrstu 100 þús. kr. er enginn skattur greiddur. Af 200 þús. kr. eru greiddar 5 þús. kr., af 300 þús. kr. 15 þús. kr., af 400 þús. kr. 25 þús. kr., af 500 þús. kr. 40 þús. kr., af 600 þús. kr. 55 þús. kr. og nær ekkert af þessu 10%. Loks er af 700 þús. kr. 75 þús. kr., og er þá komið aðeins yfir 10%.
Auk þess er þess að geta, að verulegur stórgróði er undanskilinn, en það er stórgróði Eimskipafélagsins, nýbyggingarsjóðir allir og varasjóðir samvinnufélaganna.
Ef við lítum á forstjóra stórútgerðarfyrirtækja, stórkaupmenn, iðnaðarmenn og aðra, sem hafa grætt vel á stríðinu, og berum fórnir þeirra saman við fórnir hinna, þá er ekki líklegt, að þessir menn hafi kaup, sem reiknað er með vísitölu. Ef slíkur maður hefur grætt upp í 600 þús., þá borgar hann 10% til baka, og þó að hann hafi grætt milljón, þá borgar hann 14% til baka, samtímis því sem víst er, að hann þarf ekki að lækka sinn lífs-standard. Mér þykir þetta frv. sýna, að fulltrúar efnastéttanna hafi viljað hlífa sínum skjólstæðingum of mikið og að þeir hafi komið sínum vilja fram.
Alþfl. hefði viljað hafa þetta frv. á annan veg, og veit ég það, að ef flokksins hefði ekki notið við, hefði frv. orðið miklu óhagstæðara launastéttunum en það er, samkvæmt þeim ummælum, sem komu fram hjá Jóni Pálmasyni, sem lýsti andstöðu sinni við frv., af því að stórgróðamönnunum væri ekki hlíft nóg, en röksemdin var sú, að hann væri móti því, að eignaraukaskattur væri lagður á, svo að það er ekki að efa, hvernig frv. hefði orðið, ef þeir hefðu fengið að móta það.
Ég tel frv. allt of mikið mótað af flokkunum til hægri við Alþfl. og fulltrúum eignastéttanna. Mér finnst eignaraukaskatturinn ekki nærri nógu hár. Engar ráðstafanir eru gerðar til þess að stöðva skattsvikin og til þess að koma innflutningnum á heilbrigðan grundvöll og til þess að stöðva há laun og arðsútborganir í hlutafélögum.
Ég er ekki ánægður með frv., en skal þó játa, að hæstv. ríkisstj. hefur verið mikill vandi á höndum. Það er vissulega erfitt að samhæfa sjónarmið þriggja flokka. Þótt ég hafi frá upphafi haft mjög takmarkaða trú á, að hægt væri að leysa dýrtíðarmálin skynsamlega og réttlátlega í samvinnu við fulltrúa eignastéttanna, og mér finnist reynslan nú vera að sýna, að sú skoðun hefur átt við rök að styðjast, hef ég stutt núverandi ríkisstj., þar sem flokkur minn á fulltrúa í henni og stendur að henni. Ég mun gera það áfram, og mun ekki greiða atkvæði gegn henni í svo þýðingarmiklu máli og ekki bera fram við það brtt. Hins vegar sé ég mér ekki fært að fylgja frv. og læt þá skoðun mína, að ekki séu með því nægar byrðar lagðar á stóreigna- og hátekjustéttirnar miðað við byrðar almennings, koma þannig í ljós, að ég mun ekki greiða atkvæði um málið.