06.02.1948
Neðri deild: 52. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Það var óþarft hjá 2. þm. Reykv. að spyrja, hvort ríkisstj. hefði borizt skýrsla um þetta mál, því að eins og ég tók fram í upphafi, þá hef ég ekkert heyrt um þetta, nema það sem stendur í Þjóðviljanum í dag. En sem sagt, það verður fyrst athugað, hvort þessi frétt hefur við rök að styðjast, og gefi sú athugun tilefni til frekari aðgerða, þá mun ríkisstj. taka það til athugunar.