22.01.1948
Sameinað þing: 36. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. S-Þ., að margar þáltill. liggja hjá allshn. í Sþ. Sakir ýmissa orsaka var n. ekki við því búin að afgreiða þau mál svo fljótt sem skyldi. N. hafði sent þau ýmsum aðilum til umsagnar, og höfðu fæstir þeirra svarað fyrir jól. Nú er það auðvitað nefndarinnar að afgreiða þessi mál svo fljótt sem auðið verður, svo að þau geti sætt þinglegri meðferð, en það, sem veldur því, að n. hefur ekki þegar hafizt handa, er það, að allir nm. eru ekki enn komnir til þings, og hefur því verið dokað við með fundahöld. En strax og allir nm. eru mættir, verða málin afgreidd, eftir því sem ástæður leyfa.