10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. S-Þ. um langan drátt hjá allshn. að skila áliti um till. varðandi fjölgun lyfjabúða í Rvík. Ég veit ekki, hvað langt er síðan málinu var vísað til n., en það er margfalt lengri tími en það, sem eðlileg athugun ætti að taka. Ef ekki koma skýlaus loforð frá heilbrigðisstjórninni, þá er ekki öllu lengur þolandi annað en að flytja á þessu þingi frv., þar sem hún sé skylduð til að veita leyfi til þessa. Ég hef skorað á allshn. að skila áliti sem fyrst til þess að fá úr þessu skorið, og mér skildist í viðtali við form. n., áður en fundur hófst, að von væri á áliti, áður en langt um líður. Einnig vil ég beina því til n., að hún skili áliti um hina till., sem sami þm. flytur varðandi fæðingarstofnunina í Rvík. Mér skilst, að n. ætli ekki að skila áliti um það, heldur sofna á því, og tel ég það illa farið. Eins og í þeim málum er ástatt, þá er fullkomin nauðsyn á, að fram komi opinber grg. um það, hvernig á þeim óskiljanlega drætti stendur. Ég vil skýra frá því, að í fyrra sumar var farið fram á það að fá keyptar þvottavélar, sem herinn hafði í Kamp Knox, og var þá talið óhjákvæmilegt annað en að fá þessar vélar, til þess að fæðingardeildin gæti tekið til starfa. Féllst bæjarstjórnin á þetta, svo að það stæði ekki fyrir því, að hún gæti tekið til starfa. Um leið og þetta var, þá var farið fram á að fá upplýsingar frá aðalframkvæmdamanni í þessu máli, landlækni, hvenær vænta mætti, að hún tæki til starfa, ef Rvíkurbær seldi þessar þvottavélar 17. júní s.l. Nú eru 8 mánuðir síðan. Þá skrifaði landlæknir að lokum staðfest ummæli um. að nái ríkisstjórnin í þvottavélarnar og komi ekkert óvænt fyrir, ætti fæðingardeildin að taka til starfa í haust. Nú er komið fram undir miðjan marz, og hún er ekki enn tekin til starfa, og hæstv. ráðh. upplýsir, að hún sé ekki enn fullbúin. Ég spyr, hvað óvænt hafi komið fyrir, þannig að opnun stofnunarinnar hefur dregizt meira en hálft ár. Mér finnst allur gangur þessa máls vera þannig, að fullkomin nauðsyn sé á að fá skriflega grg. um, hvernig ástatt er um þetta mál, og skora á allshn. að skila áliti um þessa till. hv. þm. S-Þ., en sofna ekki á henni.