10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég bjóst ekki við því, að farið yrði að ræða efni þessara till., sem liggja hjá allshn., en fyrst svo er mjög kallað eftir áliti um þessar tvær till., þá get ég sagt það viðvíkjandi hinni fyrri, um lyfjabúðir, að n. er með það til athugunar, hvernig heppilegast er að afgr. málið. Það er nú svo með jafneinfalt mál, sem ekki þarf margar umr., að þá getur það enn tekizt, að málið fái þinglega afgreiðslu. N. mun, hvað þetta mál snertir eins og önnur, gera sér grein fyrir því, sem hún leggur til málsins og afgreiðslu slíkra mála. Viðvíkjandi hinu málinn, sem hv. þm. Snæf. minntist á, fæðingardeildinni, þá er það að segja um það málefni, að ef n. hefði afgr. það á þeim tíma, sem hún er búin að fá, og eftir upplýsingum um, hvernig ástatt er um það mannvirki, þá hygg ég, en skal þó ekki fullyrða það beinlínis, en hygg, að afgreiðsla málsins hefði þá verið sú, að Alþ. hefði vísað því til ríkisstj., eins og þá stóð á. Allshn. kvaddi á sinn fund þá ráðh., sem þessi mál heyra undir, og landlækni og húsameistara, og þá kom í ljós, að húsnæðið var ekki nærri tilbúið. Og get ég reyndar búizt við, að því sé ekki lokið enn, eða ef svo er, þá nýlega. Hins vegar virðist mér eftir skýringum, sem gefnar voru um húsið, að það hafi tafizt vegna þess, að illa gengi að fá nema smátt og smátt, seint og síðar meir, það efni, sem þyrfti til stofnunarinnar frá útlöndum. N. getur nú kynnt sér á ný, hvað líður byggingunni og hvort hún er tilbúin. En um það mál má segja, að eftir því, sem kom fram af hálfu heilbrigðisstj., landlæknis og ráðh., þá mundi hún taka til starfa, þegar það þætti forsvaranlegt. Og þá er ekki tilefni hjá Alþingi til þess að gera ályktun um málið. Ég skal svo fyrir hönd n. kynna mér á ný, hvað þessu máli líður, og að því athuguðu er það svo nefndarinnar að taka sínar ákvarðanir.