17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)

Orlofsfé þingmanna

Forseti (JPálm):

Ég vil taka það fram í sambandi við þessa fyrirspurn, að kaup þingmanna heyrir ekki undir forseta, heldur þingfararkaupsnefnd. Ég hef spurzt fyrir um þetta, og mun það vera rétt, að orlofsfé hefur verið greitt til tveggja þingmanna, sem engum öðrum opinberum störfum gegna. Þetta var gert í samráði víð lögfræðing, og hygg ég, að allt sé því lögum samkvæmt.