17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

Orlofsfé þingmanna

Finnur Jónsson:

Hæstv. forseti taldi það réttara að beina slíkri fyrirspurn sem þessari til ríkisstj. Ég álít þó, að þetta mál heyri ekki undir ríkisstj., heldur sé það undir ákvörðun forseta komið. Ég vil ekki draga það í nokkurn efa, að þessir tveir þingmenn eigi rétt á orlofsfé, en þessi aðferð finnst mér nokkuð óvenjuleg, að greiða þingmönnum fé á bak við þingið og án þess að hafa um það samstarf við þingfararkaupsnefnd. Í fljótu bragði virðist mér, eftir því sem komið hefur fram í þessum umr., að allir þm. eigi rétt á orlofsfé. — En ég býst við, að það sé alveg nýtt í þingsögunni að mismuna þingmönnum fyrir störf sín á Alþingi, og ef þessir tveir þm. eiga að hafa rétt til orlofsfjár, þá gefur það tilefni til að taka þetta mál upp í heild og endurskoða það.

Forseti (JPálm): Ef hv. þm. Ísaf. hefur ekki verið viðstaddur og því ekki heyrt það, sem ég sagði áðan, þá endurtek ég það, að það er ekki hlutverk forseta að taka ákvarðanir í þessu máli. Hvort þm. eða starfsmönnum Alþingis skuli greitt orlofsfé, heyrir vitaskuld undir skrifstofustjóra Alþingis eða þingfararkaupsnefnd.