17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)

Orlofsfé þingmanna

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki fara að blanda mér inn í þessar umr. með löngu máli, en það hefur verið upplýst hér í dag, að tveir þm. fá greitt orlofsfé, en aðrir ekki. Þetta hafði ég ekki heyrt áður, og mér finnst það skrýtið. Ég hafði haldið, að þm. væri greitt sama kaup fyrir störf sín, en þessir tveir fá 4% uppbót á laun sín. Ég veit nú ekki, hvernig þetta er metið. Er farið í Alþingistíðindin til þess að meta störf manna, og afreka þessir tveir menn 4% meira en aðrir þm.? Ég vil skjóta því hér að, hvort ekki væri rétt að setja það í l., að þm. skuli fá sömu laun. Ég felldi mig bezt við, að greiðsla orlofsfjár félli niður og þessir tveir þm. fengju engar uppbætur fyrir þetta þing.