17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (2048)
Orlofsfé þingmanna
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég skil varla, við hvað hv. þm. V-Húnv. hefur átt, er hann talaði um það áðan, að þm. væri mismunað fyrir störf sín. Mér skilst, að skrifstofa Alþingis hafi veitt tveim þm. orlofsfé samkv. l., er þeir fóru fram á það að fá það greitt, en aðrir þm. hafi ekki beiðzt orlofsfjár. Ég býst ekki við því, að utanbæjarmönnum sé greitt öðruvísi en innanbæjarmönnum. Þm. þeir, sem nú eiga sæti á Alþingi, hafa mjög mismunandi störfum að sinna utan sinna þingstarfa, og finnst mér eðlilegast, að þingfararkaupsn. taki þessi mál til athugunar. Væri nógu fróðlegt fyrir stjórnarliðið að kanna þetta nokkuð og fá upplýsingar um tekjur þm.