19.11.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)

Orðsending frá ríkisarfa Norðmanna

Forseti (JPálm):

Mér hefur borizt eftirfarandi orðsending:

Herra Jón Pálmason

forseti sameinaðs Alþingis.

Sem heiðursforseti norsku Snorranefndarinnar og formaður sendinefndar norsku ríkisstjórnarinnar við afhjúpun Snorralíkneskisins í Reykholti leyfi ég mér að færa yður, herra forseti sameinaðs Alþingis, og íslenzku ríkisstjórninni innilegustu þakkir vorar fyrir þær ágætu móttökur, sem norsku fulltrúarnir urðu aðnjótandi á Íslandi á s.l. sumri.

Það varð oss öllum til innilegrar ánægju, að íslenzka ríkisstjórnin og þjóðin tóku við Snorralíkneskinu með sama hugarþeli og gjöfin var afhent sem einlægan vott um þakklæti vort og tákn um vináttu milli norrænu frændþjóðanna.

Vér munum ætíð minnast þessara júlídaga á Íslandi, hátíðarinnar í Reykholti, þar sem þjóðin kom þúsundum saman ásamt forustumönnum sínum með forseta Íslands í öndvegi, hinnar fögru og áhrifaríku minningarathafnar í Fossvogskirkjugarði. Þar hreif oss mest hið innilega vinarþel, sem tengir oss Íslandi.

Ekki munum vér sízt minnast samverustundanna, gestrisninnar og einlægninnar, sem kom í ljós í veizlum og ferðalögum á degi hverjum.

Ég þakka yður, herra forseti sameinaðs Alþingis, fyrir hönd allra Norðmanna. Konungshöllinni í Oslo í ágúst 1947

Olav (sign.)

Johan E. Mellbye (sign.).