24.03.1948
Efri deild: 89. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)
Starfslok deilda
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil gera fyrirspurn um það, hvort ekki verði tekið fyrir á fundinum þetta mál, sem tekið var hér fyrir áðan, frv. um rekstrarsjóð symfóníuhljómsveitar Íslands. Mér skildist, að hæstv. forsrh. mundi leyfa afbrigði fyrir málinu. En hæstv. ríkisstj. hefur það á valdi sínu að neita um afbrigði við 3. umr. Og ég kynni þá betur við, að það kæmi skýrt fram.