24.03.1948
Sameinað þing: 64. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)

Þinglausnir

forseti (JPálm):

Háttvirtu alþingismenn.

Það þing, sem nú er að enda, er allmiklu styttra en sum önnur, sem háð hafa verið að undanförnu. Þó er það orðið alllangt, eins og þegar hefur verið tekið fram. Þær orsakir, er liggja til þess, að það hefur tekið svo langan tíma, eru þær sömu og að undanförnu, sem sé sívaxandi óvissa og sívaxandi fjöldi mála, sem Alþingi þarf að fjalla um. Þegar svo stendur sem nú, að þrír allólíkir stjórnmálaflokkar standa að ríkisstjórninni, þá kostar afgreiðsla allra stærri mála langvarandi og víðtækan undirbúning, sem venjulega veldur miklum örðugleikum og kostar mikla vinnu. Þannig hefur gengið á þessu þingi, að þau tvö stórmál, sem fyrst og fremst setja svip sinn á þingið, dýrtíðarlögin og fjárlögin, hafa haft í för með sér miklar rannsóknir og athuganir. Vinnan við undirbúning þeirra og afgreiðslu hefur tekið mestan tíma þingsins. Gildir það ekki einkum fundarhöld og umræður í þingsölunum, heldur fyrst og fremst erfitt, tímafrekt og vandasamt starf hjá hæstvirtri ríkisstjórn í þeim flokkum, sem styðja hana, og í umsvifamestu nefnd þingsins, háttvirtri fjárveitinganefnd.

Þessi tvenn lög, dýrtíðarlögin og fjárlögin, hafa áhrif á hag og atvinnu svo að segja hvers einasta manns í landinu á því ári, sem yfir stendur, og lengra fram í tímann. Það er ágreiningur um minni hluti en þá, sem þar er um að ræða og því er eðlilegt, að svo sé einnig um þetta. Ég mun ekki gera neina tilraun til þess hér að lýsa þessum eða öðrum lögum og samþykktum, sem þingið hefur afgreitt. Þýðingarmestu lögin, fjárlögin fyrir árið 1948, eru nokkuð kunn landsfólkinu af nýafstöðnum útvarpsumræðum. Ég sé eigi ástæðu til við þetta tækifæri að gefa af þeim frekari lýsingar og ekki heldur af öðrum lögum. En ég óska þess, að sú gæfa hljótist af starfi og ráðstöfunum þessa Alþingis, sem þeir menn gera ráð fyrir, sem bjartsýnastir eru á áhrif þeirra.

Ég þakka háttvirtum alþingismönnum, hæstvirtri ríkisstjórn og öllum starfsmönnum þingsins góða og ánægjulega samvinnu við mig sem forseta. Ég óska þeim öllum gleðilegrar í hönd farandi páskahátíðar og gæfuríks komandi sumars. Öllum utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Óska ég þess og lýsi þeirri von, að þegar Alþingi hefst næst, þá megi allir núverandi alþingismenn hittast heilir heilsu.