28.10.1947
Neðri deild: 9. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í C-deild Alþingistíðinda. (2110)
20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Háttv. hlustendur. Óskir Sósfl. um útvarpsumr. um þetta mál vekja efalaust furðu landsmanna. Innflutningur á öðrum vörum en matvörum er því sem næst enginn, og hefur málið því litla þýðingu. Hins vegar bíða allir landsmenn með óþreyju eftir því, að eitthvað verði gert í atvinnu- og dýrtíðarmálunum, og er það að vonum. Ég mun því ekki ræða frv. þetta í einstökum atriðum, heldur víkja að afstöðu Sósfl. til höfuðmála dagsins, þó með hliðsjón af frv. því, sem til umræðu er.
Alþ. hefur setið að þessu sinni mánaðartíma. Árangurs af störfum þess er beðið með meiri eftirvæntingu um allt land en nokkru sinni fyrr. Það er öllum orðið ljóst, að gjaldeyrisforði þjóðarinnar er þrotinn og hvorki landið sjálft né verzlunarstéttin getur lengur staðið í skilum með erlendar skuldbindingar og vörukaup. Inn á við er ástandið þannig, að vísitala framfærslukostnaðar hækkar óðfluga, og væri hún nú um 390 stig, ef hún væri ekki greidd niður með margra milljóna framlagi úr ríkissjóði.
Í byrjun vetrarvertíðar neyddist Alþ. til þess, vegna verðbólgunnar, að taka fyrir hönd ríkisins stórkostlega ábyrgð á útfluttum bátafiski, til þess að koma útgerðinni af stað. Þessi ábyrgð veldur ríkissjóði útgjöldum svo mörgum millj. kr. skiptir. En þó er síður en svo, að hún hafi stöðvað hækkun á dýrtíðinni, og þrátt fyrir hana hafa bátasjómenn borið lakari hlut frá borði en flestar aðrar stéttir þjóðfélagsins. Um útveginn er það á allra vitorði, að fjöldi bátaútvegsmanna er svo illa farinn eftir lélega vetrar- og vorvertíð og misheppnaða síldarvertíð, að eigi er unnt að hreyfa skipin.
Skipverjar hafa eigi fengið hin lágu laun sín greidd, og allt er á kafi í sjóveðskröfum og skuldum. Togararnir eru nær einu fleyturnar. sem sækja sjóinn, því ekkert má út af bera með afla þeirra og sölur, svo útgerðin fari á bólakaf í skuldir. Ef markaður félli úr hámarksverði, sem togararnir selja nú fyrir í Bretlandi, mundi sækja í stöðvun, eins og hjá vélskipaflotanum, einnig hjá þessum mikilvirku aflaskipum okkar.
Allt erfiði og auður hyrfi þá í dýrtíðar- og verðbólguhítina, þrátt fyrir það þó að togararnir njóti enn í mörgu til útgerðar sinnar hins lága verðlags í Bretlandi, gagnstætt bátaflotanum, sem býr að öllu við hið háa verðlag hér heima.
Samhliða þeim erfiðleikum og þeirri stöðvun,sem þegar er komin eða vofir yfir útgerðinni, hefur vegna skorts á gjaldeyri stórkostlega verið dregið úr öllum innflutningi til landsins.
Reynt hefur verið eftir mætti að halda uppi innflutningi á útgerðarvörum og byggingarvörum svo og hráefni til ýmiss konar iðnaðar, en margir eru nú að vinna úr síðustu birgðum sínum, og meðan eigi er unnt að afla aukins gjaldeyris, er engin von til, að úr þessu verði unnt að bæta.
Komi ekki eitthvað alveg óvænt fyrir, hlýtur gjaldeyrisskorturinn því að valda atvinnuleysi í iðnaði og byggingarvinnu, á sama hátt og verðbólgan stöðvar útgerðina, nema því aðeins, að horfið verði að því að leita fyrir um lán erlendis til að fleyta okkur yfir örðugleikana, sem þó verður að telja neyðarúrræði.
Eftir birtingu skýrslna fjárhagsráðs um þessi mál, er þetta orðið öllum heilskyggnum landsmönnum ljóst. Aðeins eitt blað, Þjóðviljinn, aðeins einn flokkur, kommúnistarnir í Sameiningarflokki alþýðu. hafa rengt þessa skýrslu og hamra á því dag eftir dag, að hér séu engin gjaldeyrisvandræði. Þeir leyfa sér að fullyrða, að skýrslur fjárhagsráðs séu falsaðar og rangar.
Nú er það öllum þeim vitað, sem einhver viðskipti hafa við bankana, að yfirfærslubeiðnir, innheimtur og ábyrgðarbeiðnir með fullum leyfum liggja vikum og mánuðum saman óyfirfærðar. Enn fremur vita allir forustumenn opinberra stofnana um hinn óskaplega gjaldeyrisskorts. Halda þeir Þjóðviljamenn, að bankarnir geri öllum viðskiptamönnum sínum slík óþægindi að gamni sínu eða þeim til bölvunar?
Ég hef nú um skeið haft sérstök kynni af hinum stórkostlegu gjaldeyrisvandræðum. Ég fullyrði, að skýrslur fjárhagsráðs séu í öllu sannleikanum samkvæmar, og ég óttast, að gjaldeyrisskorturinn geti leitt til fullrar stöðvunar á yfirfærslum innan skamms, ef ekki verður gripið til annarra ráðstafana en þegar hafa verið reyndar.
Í vandræðum sínum horfa menn að vonum til Alþ. og ríkisstjórnar og spyrja: Hvenær koma fram till. um að bæta úr dýrtíðar- og verðbólguvandamálunum? Nú þegar Alþ. hefur setið heilan mánuð, eru margir orðnir óþolinmóðir. Það líður senn að vertíð. Hver dagur er dýrmætur. Sjómennirnir þurfa að ráða sig í skiprúm. Fólkið, sem vinnur við hraðfrystihúsin, bíður. Iðnaðarmennirnir, og byggingarverkamennirnir, sem eru að missa atvinnu sína vegna gjaldeyrisskorts, vona að úrlausn finnist, svo útgerðin fari á stað, til þess að afla gjaldeyris.
Þeir eru fáir, sem eru þannig settir, að lífsþægindi þeirra og afkoma sé eigi undir því komin, að úrlausn fáist sem skjótast í þessu vandamáli. Óskir allra landsmanna ættu að fara saman í þessu efni. En svo er þó ekki. Það er frá þessu undantekning. Forsprakkar Kommúnistaflokksins, sem gengur hér á Alþ. undir nafninu Sameiningarflokkur alþýðu, gera allt, sem þeir geta, til þess að telja þjóðinni trú um, að hér sé allt í lagi. — Þeir segja: „Hér er enginn gjaldeyrisskortur“. „Ríkisstjórnin er að búa til kreppu í landinu til þess að fá átyllu til að fá lán hjá Bandaríkjunum“. o. s. frv.
Þetta eru þeirra svör, þegar þeir eru spurðir, hvað þeir vilji gera til þess að bægja voða dýrtíðar og verðbólgu frá dyrum almennings. Sem stjórnarandstöðuflokki ber kommúnistum að krefjast aðgerða af ríkisstjórninni í dýrtíðar- og atvinnumálum. En þetta hafa þeir alveg svikizt um, og í því skyni að hylja þessi svik sín og villa almenningi sýn, bera þeir svo fram ýmiss konar fjarstæður, eins og t. d. þá, að ríkisstjórnin sé að búa til kreppu í landinu!!! til þess að skapa sjálfri sér og öðrum vandræði. Hver trúir þessu? Enginn.
En það er eftirtektarvert að hinir kommúnistísku forsprakkar Sameiningarflokks alþýðu eru einu mennirnir í landinu, sem einskis krefjast af ríkisstjórninni í dýrtíðarmálunum. Og þeir gera meira, þeir neita því, að alþýðu manna stafi nokkur hætta af verðbólgunni og dýrtíðinni eða gjaldeyrisskortinum, sem þeir segja, að sé enginn.
Sér er nú hver stjórnarandstaðan. Verðbólga og dýrtíð eru að sliga atvinnuvegina og hafa þegar valdið talsverðri stöðvun. Það sjá allir hættuna, sem framundan er. Það mætti e. t. v. ásaka ríkisstjórnina fyrir seinagang í þessum málum, og að minnsta kosti lægi nærri, að flokkur, sem kallar sig verkalýðsflokk, sæti sig eigi úr færi með það.
„Atvinna handa öllum“ hefur lengi verið helzta hagsmunamál verkalýðsins. og kröfur til ríkisstjórnar í hverju landi um að uppfylla það skilyrði hafa verið sameiginlegar fyrir jafnaðarmenn og kommúnista. En nú eru forsprakkar kommúnista hérna fallnir frá þessu. Hér á Alþ. minnast þeir hvorki á atvinnu- né dýrtíðarmál, og ef einhver annar gerir það, harðneita þeir, að nokkur þörf sé úrbóta.
Það verður ekki annað séð en að þeir séu ánægðir með, að allt færi hér í kaldakol vegna dýrtíðar og verðbólgu. Hvað búast þeir við, að upp úr því mundi spretta? Væri það slíkur jarðvegur eymdar og volæðis, sem þeim mundi bezt henta? Margt bendir á, að svo sé.
Nokkru áður en Alþ. kom til funda, fór það að spyrjast, að ástandið í dýrtíðar- og gjaldeyrismálunum væri svo alvarlegt, að ríkisstjórnin væri farin að láta athuga, á hvern hátt unnt væri að bæta úr því. Þá ruku þeir til. hinir kommúnístísku forsprakkar Sameiningarflokks alþýðu og fóru í flugvélum, jeppum og öðrum farartækjum um allt landið til þess að æsa menn upp — gegn hverju? Gegn því, ef einhverjar hugsanlegar till. kynnu að koma frá ríkisstjórninni til þess að bæta úr dýrtíðar- og atvinnumálunum.
Hvað sannar þessi þögn forsprakka kommúnista um dýrtíðarmálin, síðan Alþ. kom saman, og þessi hatrammi mótþrói gegn hugsanlegum tillögum?
Hann sannar, að forsprakkar flokks þessa, Sameiningarflokks alþýðu, stjórna honum ekki lengur sem íslenzkum verkamannaflokki. Þar eru önnur sjónarmið efst á baugi. Heilbrigð íslenzk stjórnarandstaða hefði fyrst og fremst krafizt þess af ríkisstjórninni, að hún legði tafarlaust fram till. í dýrtíðarmálunum til þess að tryggja atvinnu almennings í landinu, og að þær till. væru miðaðar við það, að hagsmunum hinna vinnandi stétta væri vel borgið.
Og vitanlega hefur hæstv. ríkisstjórn þetta mál í athugun. En það verður að segjast, að hér er um meira vandamál en svo að ræða, að fram úr því verði ráðið í einni svipan.
Frá því stríðið hófst og æ síðan hefur hver ríkisstjórnin af annarri haft þetta mál á stefnuskrá sinni, en dýrtíðin og verðbólgan hafa vaxið jafnt og þétt, og enginn hefur ráðið við neitt. Alltaf hefur verið bjargazt af með bráðabirgðaráðstöfunum. en nú verður ekki séð að neitt slíkt dugi lengur. Nú verður að hefjast handa.
Á þessum erfiðu tímum erum við svo heppin að hafa ríkisstjórn, sem stór meiri hluti landsmanna ber traust til og vonar, að leysi þann vanda, sem fyrir höndum er, á réttlátan og viturlegan hátt. Við erum einnig svo heppin, að við höfum nú miklu betri skipastól en nokkru sinni fyrr, við erum vel búnir að mönnum, vélum og verksmiðjum til veiða og til að verka aflann.
Alþfl. átti á sínum tíma þá till., að lágmark nýbyggingarreiknings var ákveðið 300 millj. kr. Þeirri upphæð hefur verið varið til að búa okkur undir framtíðina. Fulltrúar Sósfl. höfðu í samningum ekki krafizt neins lágmarks, heldur vildu samþykkja ótiltekna upphæð. Við getum því horft björtum augum á framtíðina, takist okkur að kveða niður dýrtíðar- og verðbólgudrauginn. Að því mun vilja vinna mikill þorri manna úr þeim flokkum, er nú standa að hæstv. ríkisstjórn, og fjöldinn allur af kjósendum Sameiningarflokks alþýðu. Að minnsta kosti sá hluti þess flokks, sem metur atvinnu og velferð íslenzkrar alþýðu með íslenzkum augum og frá íslenzku sjónarmiði.
Framferði þessa flokks og mótþrói hans gegn því, að hafizt verði handa í dýrtíðar- og verðbólgumálunum, eru bein svik við kjósendur flokksins, og þeir sjá nú, að forusta hans hefur brugðizt, og kjósendurnir munu snúa við henni baki. Þetta munu þeir hafa fundið sárlega, sendimenn Sósfl., sem fóru um landið í fundahöld áður en Alþ. hófst, en fengu hvergi neinar undirtektir undir mál sitt.
Umræðurnar um mál það, sem hér er á dagskrá, sýna ljóslega, hve stjórnarandstaðan er hugmyndasnauð og lætur sér í léttu rúmi liggja, á hverju veltur.
Vegna hins tilfinnanlega skorts á gjaldeyri hafa síðan fjárhagsráð tók til starfa, verið skorin niður innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir öllum vörum nema brýnustu lífsnauðsynjum. Og í þessu hefur verið gengið lengra en æskilegt hefði verið, vegna gjaldeyrisleysis. Hv. flm. 6. þm. Reykv., Sigfús Sigurhjartarson, upplýsir í grg. fyrir frv. sínu. „að álagning á matvöru er svo lág, að það sé rétt um það bil að matvöruverzlanir beri sig,“ en hins vegar verulegur hagnaður að verzla með vefnaðarvöru, skófatnað og búsáhöld. Eins og nú hagar til er ekkert eða sama sem ekkert flutt inn af hinum síðar nefndu vörum, og hefur því flutningur þessa frv. bókstaflega enga þýðingu, hvorki fyrir kaupfélög né kaupmenn. Enda er tilgangur frv. sá einn að reyna að vekja deilur milli stjórnarflokkanna, í þeirri von, að úrlausn dýrtíðarmálanna, sem þarf að sitja fyrir öllu, dragist á langinn.
Hv. flm. og flokksmenn hans segjast bera frv. þetta fram af umhyggju fyrir samvinnufélögunum almennt, en sú umhyggja hefur ætíð verið blandin. Má þar til sanninda nefna, að þau tvö ár, sem þeir sátu í ríkisstjórn og höfðu góða aðstöðu til að hafa áhrif á gang slíkra mála, hreyfðu þeir þessu aldrei. Hins vegar gerðu þeir nokkrum sinnum kröfu fyrir sérinnflutningi og sérhagsmunum fyrir KRON og létu jafnframt getið, að þá skipti engu, þó að slík sérréttindi fyrir innflutningi KRON yrðu tekin af kvóta annarra kaupfélaga innan S.Í.S. en ekki af innflutningskvóta kaupmannanna. Áhuginn fyrir réttindum samvinnumanna var ekki meiri en þetta.
Í sambandi við launadeilur Dagsbrúnar báru fulltrúar Sósfl. fram kröfur um þetta í ríkisstjórn, og á fundi ríkisstjórnarinnar 5. jan. 1945 ítrekuðu þeir enn þessi sérréttindi handa KRON og gerðu þau beinlínis að skilyrði fyrir því, að þeir féllust á hinn svo nefnda veituskatt. Hagsmuni samvinnufélaganna almennt létu þeir sig engu skipta, það mál var þeim óviðkomandi. Enda er frv. þetta heldur eigi borið fram af flm. í þeim tilgangi að sjá hagsmunum samvinnumanna í landinu borgið. heldur af öðrum ástæðum, — þeirri staðreynd, er ég hef skýrt frá.
Ummæli þessi byggi ég á reynslu minni af samstarfi við þá hv. þm. Sósfl., hv. 4. landsk. Brynjólf Bjarnason, og hv. þm. Siglf., Áka Jakobsson, þau rúmlega tvö ár, sem við sátum saman í ríkisstjórn. En hún var sú, að peningar, stöður og völd handa flokksstofnunum og flokksmönnum gengu fyrir um öll hagsmunamál almennings og fyrir hagsmunum kjósenda flokksins. Hugsjónir og stefnumál Sósfl. var aðalsöluvarningur hans meðan hann tók þátt í ríkisstjórn.
Er aðeins fátt eitt komið í ljós í þeim málum enn þá, og sést minnst af því í ríkisstjórninni, en skýrist betur og betur jafnskjótt og athuguð eru fyrirtæki þau, er undir þessa ráðherra heyrðu.
Kemur þar til greina hvert fyrirtækið af öðru, einkum þau, er heyrðu undir hv. þm. Siglf. (ÁkJ). Bygging nýju síldarverksmiðjanna, landssmiðjan, flugvöllurinn í Reykjavík og fiskiðjuver ríkisins ásamt fleiru. Hvert eitt þessara fyrirtækja á sér í ráðherratíð Áka Jakobssonar langan lista gegndarlausrar fjársóunar, sem öllum blöskrar að heyra um, hvað þá þegar öll eru lögð saman.
Sósfl. á Alþ. er kunnugt um það, að verið er að láta fara fram sérstaka athugun á ýmsum þessara fyrirtækja, og býst flokkurinn við, að niðurstaða þeirrar athugunar verði bráðlega birt. Þetta finnst þeim félögum fyrirkvíðanlegt. sem von er, og nú reyna þeir með öllum ráðum að koma í veg fyrir, að þetta verði. Og eina ráðið, sem þeir sjá til þess, er að reyna að komast aftur í ríkisstjórn. Þess vegna neita þeir með öllu, að hér séu nokkur gjaldeyrisvandræði, þó að vitanlegt sé, að yfirfærslur til útlanda séu að stöðvast vegna gjaldeyrisskorts. Þess vegna neita þeir með öllu, að hér séu nokkur vandræði vegna dýrtíðar og verðbólgu, þótt vélbátarnir séu stöðvaðir, togararnir neyðist til að hætta, ef markaðsverð lækkar í Bretlandi, og byggingarvinna og annar iðnaður sé að stöðvast vegna skorts á gjaldeyri. Þeir eru að bíða eftir því, að allt fari í strand, og þá kemur þeirra tími, að þeir halda. Þeir hafa stjórn Alþýðusambandsins. Alþýðusambandið ætla þeir að nota sem vopn, ekki til þess að vinna að hagsmunum meðlima þess, heldur til þess með einhverjum ráðum að komast á ný inn í ríkisstjórn. Þangað telja þeir sig þurfa að komast á ný, til þess að breiða yfir fyrri gerðir sínar og til þess að þjóna sínum herrum, sem ekki eru af íslenzku bergi brotnir. Slík verzlun með verkalýðssamtökin nær engri átt. Það er full ástæða til þess að vara verkamenn við henni og skora á þá að vera vel á verði gegn því, að kommúnistum takist slík skemmdarstarfsemi. Gömul og ný óstjórn, fjármálaspilling og sukk fengi þá að njóta sín til fullnustu, ef kommúnistar kæmust á ný í ríkisstjórn. Þetta er ævintýrið, sem þá dreymir um. En hvaða stjórnmálaflokkur mundi vilja hjálpa þeim til að gera það að veruleika?
Ég hef nú lýst gjaldeyrisástandinu, og það er svart, útlitinu fyrir atvinnuvegunum, og það er svart, og ég hef lýst kommúnistaforsprökkunum hér á Alþ., og fyrirætlanir þeirra og framferði eru svartar. En þar eð ég er sá síðasti, sem talar hér í kvöld, get ég ekki látið hlustendur ganga til svefns með allan þennan sorta fyrir augum.
Við höfum, Íslendingar, oft þurft að þola þjáningar og harðrétti, en við höfum þrátt fyrir allt rétt okkur úr kútnum hverju sinni. Í þetta skipti erum við, svo sem ég áður sagði, betur búnir út í lífsbaráttuna en nokkru sinni fyrr. Okkur er engin vorkunn. Við erum frjálsir. Skipin okkar, nýju tækin okkar og vélarnar bíða þess að vinna fyrir okkur.
Við þurfum engan volæðissöng að hefja, en okkur er nauðsynlegt að horfa á staðreyndirnar og hegða okkur samkvæmt þeim.
Við þurfum að halda áfram þeirri stefnu, sem ríkisstjórnin og fjárhagsráð hafa tekið upp, að takmarka innflutning við hið allra nauðsynlegasta, vegna atvinnuveganna.
Við þurfum að ráðast gegn verðbólgu og dýrtíð með almennum ráðstöfunum, sem hver landsmaður tekur þátt í eftir efnum og ástæðum. Og þar hefur Alþfl. það sérstaka hlutverk að vinna að sjá um, að þeir, sem mesta hafa burðina, taki stærstu byrðarnar.
Við þurfum að efla útflutningsframleiðslu okkar á sjávarafurðum svo mjög sem unnt er.
Við þurfum að nota fossaaflið og hitann í iðrum jarðar til stórfelldra virkjana og iðnaðarframkvæmda. Og við þurfum að þvo af okkur kommúnistasortann.
Með því að vakna nú þegar til dáðríkra starfa til þess að bæta úr gjaldeyrisskortinum og ráða bót á dýrtíðinni og verðbólgunni, með því að horfast í augu við sannleikann, nota þann manndóm, hyggindi og náttúruauðæfi, sem þjóðinni eru gefin, getum við á skömmum tíma sigrazt á öllum hindrunum og látið rætast hina beztu drauma um bjarta framtíð þjóðarinnar. — Góða nótt.