15.12.1947
Neðri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (2117)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Ásgeir Ásgeirsson:

Sem form. n. hef ég ekki annað að segja en að n. hefur afgr. þetta mál, og frsm. hefur verið tilnefndur fyrir hönd meiri hl. n., og gengur þetta því sinn vanagang, án þess að hægt sé að segja um það, hvaða dag álit meiri hl. n. komi.