12.02.1948
Efri deild: 60. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (2188)

90. mál, landshöfn í Þórshöfn

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 124 er einnig um landshöfn. Ég geri þó ráð fyrir því. að ekki verði eins miklar umr. um það, því að n. er óklofin og hefur ekki tekið efnislega afstöðu til málsins í nál., eins og var um Hornafjörð.

Í umsögn vitamálastjóra og samtali við hann kom það fram, að þannig er ástatt á Þórshöfn, að fyrir utan hafnarsvæðið liggur malarrif og ef unnt er að grafa skurð gegnum þetta malarrif, mundi það minnka kostnaðinn stórkostlega, hvort sem héraðið eða ríkið ætti í hlut. Það þótti því eðlilegast, að fyrir lægju fullkomnar upplýsingar um. hvort hægt væri að grafa slíkan skurð. Hins vegar þótti það ekki eðlilegt, að þessi rannsókn yrði kostuð af fátækum hafnarsjóði, bæði vegna þess að það mundi verða honum ofviða og eins vegna þess, að þetta mundi, ef vel gengur, spara ríkissjóði sem á að greiða 40% af mannvirkjunum fé.

Í bréfi frá hafnarmálastjóra, sem prentað er með nál. sem fskj. II. er kostnaðaráætlun, og er þar gert ráð fyrir því, að þessi tilraun muni kosta um 80.000 kr. Það er því um það að ræða að leggja fram þá upphæð. N. hefur samþ. að leggja til, að þessi rannsókn verði kostuð af ríkissjóði, en síðan skiptist kostnaðurinn milli aðilanna, ef sýnt þykir, að hægt sé að halda verkinu áfram, og er þá viðbótarkostnaður áætlaður 200.000 kr.

Það hefur því orðið samkomulag í n. um að leggja það til, að frv. verði afgr. með rökst. dagskrá, sem er að finna á þskj. 325 og hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Með því að upplýst er að kostnaður við byggingu hafnarmannvirkja á Þórshöfn mundi verða allverulega lægri ef takast mætti að grafa skipaskurð í gegnum malarrif, sem liggur fyrir utan fyrirhugað hafnarsvæði, enda líkur til, að þetta sé framkvæmanlegt, og í trausti þess, að ríkisstj. láti eins fljótt og því verður við komið gera slíka tilraun, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.

Vitamálastjórinn upplýsti að ekki væri hægt að gera þessa tilraun í ár, vegna margvíslegra verkefna, sem Grettir þyrfti að leysa af hendi. en það yrði gert eins fljótt og auðið væri.

Um þetta mál hefur einnig verið leitað umsagnar annarra aðila, m. a. Fiskifélags Íslands, sem gefið hefur almennt svar um skoðanir sínar á landshöfnum.

Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar með því að hér er ekki um efnislega afgreiðslu að ræða. N. leggur til, að málið verði afgr. með þeirri rökst. dagskrá. sem liggur fyrir á þskj. 325.